Fréttablaðið - 12.01.2011, Blaðsíða 12
12 12. janúar 2011 MIÐVIKUDAGUR
Við gerum
Vínbúðina
Skeifunni
fallegri og betri
Vínbúðin Skeifunni verður lokuð
til 10. febrúar vegna endurbóta.
Opnum aftur 10. febrúar
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Sjáumst eldhress á eftir,
við erum tilbúnir að taka
á móti mikilli traffík. Stutt bið,
þó svo það eru 30 manns í röð.
Heilsuátak með aukinni fiskneyslu
GELLUR OG KINNAR
HROGN
OG LIFUR
Fiskfars
550 kr.kg
Fiskhakk
790 kr.kg
kinnar
Nýjar og nætursaltaðar
790 kr.kg
Ýsuflök
1.390 kr.kg
Stór og falleg flök, ekki
ein hverjir smátittir
eins og fást í ákveðinni
verslun.
í sósu
Fiskréttir
1.390 kr.kg
Karrýkókós, Mangósósa, Tikka
masala sósa, Sinneps og graslaukur,
Hvítlaukspipar sósa og fleiri og fleiri.
Lingaphone námskeið
Óska eftir að kaupa íslenskt enskt lingaphone
námskeið sem samanstendur af einni stórri
kennslubók innbundin sem kilja sem á stendur
íslenskt enskt lingaphonenámskeið.
Námskeiðið samanstendur af kennslubók,
kassettum og tösku undir námskeiðið.
Ég borga 50.000 kr fyrir námskeiðið.
Björgvin Ómar Ólafsson s. 865-7013.
VIÐSKIPTI Farþegum fjölgaði um 14,4 prósent hjá
Icelandair milli áranna 2009 og 2010 að því er
fram kemur í tilkynningu félagsins til Kaup-
hallar Íslands. Alls flutti félagið í fyrra 1,5
milljónir farþega.
„Sætanýting Icelandair í reglulegu áætlun-
arflugi á síðasta ári var sú besta í sögu félags-
ins eða 78,4 prósent, sem er 3,4 prósentustigum
betri en árið á undan þegar hún var 75 prósent,“
segir jafnframt í tilkynningunni og árangurinn
þakkaður nákvæmari stýringu og eftirliti.
Fram kemur að í fyrra hafi orðið nokkur
breyting á hlutföllum markaðshópa félagsins.
„Farþegar til Íslands og frá Íslandi voru ámóta
margir og árið á undan, en farþegum á leið um
Keflavíkurflugvöll milli heimsálfanna fjölgaði
um 51 prósent og voru tæplega 40 prósent af
heildinni.“ Haft er eftir Birki Hólm Guðnasyni,
framkvæmdastjóra Icelandair, að þótt eldgosið
í Eyjafjallajökli hafi reynt verulega á sveigjan-
leika og rekstur félagsins hafi það styrkt stöðu
sína. „Og þar skipti Inspired by Iceland-átakið
miklu máli,“ segir hann.
Icelandair ætlar enn að auka sætaframboð
sitt, nú um 17 prósent. „Og ef að líkum lætur
mun farþegum fjölga um 250 þúsund og fara í
rúmlega 1,7 milljónir, og verða fleiri en nokkru
sinni áður,“ segir í tilkynningu félagsins. - óká
Icelandair flutti 1,5 milljónir farþega 2010 sem er 14,4 prósentum meira en árið áður:
Sætanýting Icelandair aldrei verið betri
Í BÍÓSAL LOFTLEIÐA Birkir Hólm Guðnason, fram-
kvæmdastjóri Icelandair, kynnir fjárfestum stöðu
félagsins á fundi í nóvember síðastliðnum.
UMHVERFISMÁL „Gangi frumvarp-
ið óbreytt í gegn mun það skaða
skógrækt á Íslandi stórlega til
frambúðar.“
Svo segir í bréfi sem Skógrækt-
arfélag Íslands hefur sent aðild-
arfélögum sínum um allt land, 61
talsins. Tilefnið er framkomin
drög að frumvarpi til breytinga
á lögum um náttúruvernd, sem
umhverfisráðherra hefur kynnt.
Skógræktarfélagið hvetur aðild-
arfélögin í bréfinu til að mótmæla
drögunum.
„Ljóst er að ekkert samráð
hefur verið haft við Skógræktar-
félag Íslands né einstök aðildar-
félög þess af hálfu þeirrar nefnd-
ar sem samið hefur áðurnefndar
frumvarpstillögur,“ segir enn
fremur. „Ljóst er eftir aflestur
frumvarpsins að það mun íþyngja
mjög framkvæmd alls skógrækt-
arstarfs í landinu.“
Þá segir að það virðist vera
markviss tilgangur frumvarpsins
að setja öllum „framandi lífver-
um“ meðal annars þeim trjáteg-
undum, sem nú eru helst notaðar
í skógrækt, skorður og hömlur, að
því er virðist sakir þess að allar
tegundir sem séu framandi gætu,
í náinni eða fjarlægri framtíð, átt
eftir að reynast ágengar og fram-
andi lífverur.
„Í þessu sambandi ber að geta
þess að 70% þeirra trjáa sem
árlega eru gróðursett á Íslandi
teljast „framandi lífverur“ í skiln-
ingi greinargerðar við frumvarps-
tillögurnar. Sömu aðilar og settu
saman frumvarpstillögurnar hafa
áður dæmt allar þær trjátegund-
ir í flokk með „helstu ágengum
og framandi tegundum á Íslandi“.
Hafa þeir sent skrifstofu samn-
ings Sameinuðu þjóðanna um líf-
fræðilega fjölbreytni lista yfir 20
„verstu og ágengustu framandi
lífverur í íslensku lífríki“, segir
í bréfinu.
Þá er bent á að engin almenn
sátt sé um það innan íslenska
fræðasamfélagsins né annars
staðar í samfélaginu um hvenær
telja skuli lífveru framandi og
hvenær innlenda. Komið verði
á umfangsmiklu eftirlits-, skrif-
finnsku- og skattheimtukerfi þar
sem allur innflutningur og rækt-
un framandi tegunda séu háð
geðþótta og óskoruðu valdi eft-
irlitsstofnunar til leyfisveitinga.
Auk þess verði ræktendum gert
að vinna svokallað hættumat og
greiða Umhverfisstofnun leyfis-
veitingu. Ráðherra fái heimild
til að ganga þvert gegn stjórnar-
skrárvörðum eignarrétti og eyða
tegundum á eignarlöndum sam-
kvæmt mati eftirlitsstjórnvalds-
ins hverju sinni.
jss@frettabladid.is
SKÓGRÆKTIN Skógræktarfélag Íslands hvetur aðildarfélög sín til að mótmæla drög-
um að frumvarpi um náttúruvernd sem umhverfisráðherra hefur kynnt.
FRETTABLADID/VILHELM
Skógræktarfélagið
hvetur til mótmæla
Skógræktarfélag Íslands hefur sent rúmlega sextíu aðildarfélögum bréf þar sem
þau eru hvött til að mótmæla drögum að frumvarpi til breytinga á lögum um
náttúruvernd. Ný lög eru sögð skaða skógrækt á Íslandi stórlega til frambúðar.
þeirra trjáa
sem árlega eru
gróður sett á
Íslandi teljast „framandi lífver-
ur“ í skilningi greinargerðar
við frumvarpstillögurnar.
70%
BANDARÍKIN Í byrjun næsta árs taka
gildi í Bandaríkjunum nýjar regl-
ur Matvælaeftirlits Bandaríkjanna
(FSIS) sem gera framleiðendum
skylt að upplýsa um næringargildi
á umbúðum 40 algengustu kjöt- og
fuglakjötstegunda í verslunum.
Greint er frá því á vef Landssam-
bands kúabænda (naut.is) að með
reglunum eigi að sporna við offitu-
faraldri í Bandaríkjunum. Hluti af
því sé betri upplýsingagjöf um nær-
ingargildi matvöru.
Í tilkynningu FSIS er haft eftir
Tom Vilsack, landbúnaðarráðherra
Bandaríkjanna, að sífellt fleiri fjöl-
skyldur þar í landi kalli eftir upp-
lýsingum um næringargildi sem
séu auðskiljanlegar og fljótlegt að
kynna sér. „Við þurfum að beita
öllum ráðum til að hjálpa neytend-
um að taka upplýstar ákvarðanir
með hjálp slíkra merkinga,“ segir
hann.
Fram eiga að koma upplýsingar
um fjölda kalóría og heildarfitu-
innihald og skiptingu milli mett-
aðra og ómettaðra fitusýra.
„Athygli vekur að engar tilraun-
ir verða gerðar til þess að upplýsa
neytendur um hormónainnihald
kjötsins, en eins og kunnugt er eru
hinir umdeildu vaxtarhormónar
leyfðir við nautakjötsframleiðslu í
Bandaríkjunum,“ segir á vef Lands-
sambands kúabænda. - óká
KJÖT Á GRILLI Framleiðendum í Bandaríkjunum verður brátt skylt að merkja kjötvör-
ur með upplýsingum um næringargildi og fituprósentu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Tekið á offituvanda í Bandaríkjunum með bættum merkingum kjötvöru:
Kjöt merkt með fituinnihaldi
ÚTI AÐ GANGA Sascha Prehn með
gæludýrið sitt á göngutúr í heimabæ
sínum, Berkentin í norðanverðu Þýska-
landi. Eftir að bæjarbúar fóru að kvarta
hefur Prehn gætt þess að fara einkum
fáfarnari götur með tígrisdýrið, sem
heitir Sina. NORDICPHOTOS/AFP
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA