Fréttablaðið - 12.01.2011, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 12.01.2011, Blaðsíða 18
18 12. janúar 2011 MIÐVIKUDAGUR Þann 18. desember sl. voru sam-þykkt á Alþingi lög nr. 151/2010 sem m.a. breyttu lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Í þess- um nýju lögum er skýrt kveðið á um að kröfuhafa beri að endurgreiða skuldara þá fjárhæð sem hann hefur ranglega af honum haft vegna ólög- mætra vaxta og/eða verðtrygging- ar. Einnig leggja lögin þá skyldu á fjármálafyrirtæki, sem veitt hefur slík ólögmæt lán, að senda skuld- ara útreikning á nýjum höfuðstól og/eða endurgreiðslu ofgreidds fjár sem af uppgjörinu leiðir eigi síðar en 60 dögum eftir gildistöku laganna. Þessi tilhögun greiðslu- uppgjörs er vitaskuld góðra gjalda verð og til þess fallin að draga úr óvissu um meðferð gengistryggðra bíla- og húsnæðislána. Undirritað- ur hefur hins vegar efasemdir um að endurútreikningur verði klárað- ur fyrir nefnt tímamark og mun tíminn leiða í ljós hvort þau háleitu markmið sem lögin setja í þessum efnum verði uppfyllt. Tilgangur greinar þessarar er að benda á tvö atriði í nýju lögun- um er vakið hafa undirritaðan til umhugsunar og lúta annars vegar að því hvers konar lánsskuldbind- ingar falli undir lögin og hins vegar að þeirri stöðu þegar skuldaraskipti hafa orðið að lánssamningi sem inniheldur ólögmætt gengistrygg- ingarákvæði. Varðandi fyrrnefnda atriðið kemur fram í lögunum að þau taki til húsnæðislána til neytenda sem falli undir skilgreiningu B-liðar 68. gr. laga um tekjuskatt og einnig til lánssamninga og eignaleigusamn- inga sem einstaklingar hafa gert við fjármálafyrirtæki vegna kaupa á bifreið til einkanota. Að mati undirritaðs er þessi þrönga skilgreining á hugtakinu húsnæðislán í lögunum til þess fall- in að mismuna skuldurum gengis- tryggðra lána, enda er það skilyrði samkvæmt nefndu ákvæði tekju- skattslaganna að lán hafi verið tekið vegna kaupa eða byggingar á húsnæði til eigin nota. Í þessu felst að lögin ná ekki til allra einstakl- inga sem tekið hafa lán sem tryggð eru með veði í íbúðarhúsnæði. Sem dæmi falla utan við gildissvið lag- anna svonefnd lánsveð, t.d. þegar einstaklingur hefur fengið veð að láni hjá vinum eða vandamönnum. Hið sama á við um einstaklinga sem sitja uppi með tvær fasteign- ir á gengistryggðum lánum og ekki hefur tekist að selja fyrra húsnæði í kjölfar efnahagshrunsins, en þá er sú fasteign sem ekki er nýtt til eigin nota undanþegin samkvæmt lögun- um. Fleiri dæmi mætti taka og ljóst að margs konar takmarkatilvik geta komið upp varðandi túlkun á þessu skilyrði. Sömu sögu er að segja um það skilyrði laganna að bifreið hafi verið keypt til einkanota, t.d. varð- andi bifhjól og leigubifreiðar sem nýttar eru bæði í einkaerindum og atvinnurekstri. Undirritaður er þeirrar skoðunar að lögin standist að þessu leyti tæpast jafnræðisá- kvæði laga og stjórnarskrár. Síðarnefnda atriðið sem undir- ritaður telur ástæðu til að vekja athygli á er áhrif skuldaraskipta á endurútreikning gengistryggðra lánssamninga. Í 8. mgr. 1. gr. laga nr. 151/2010, sbr. 18 gr. laga nr. 38/2001, er ákvæði er mælir fyrir um að ef einu sinni eða oftar hafa orðið aðila- eða skuldaraskipti að slíkum lánssamningi skuli hver skuldari eiga sjálfstæðan rétt gagn- vart kröfuhafa til leiðréttingar á greiðslum vegna lánsins. Réttindi og skyldur hvers og eins aðila skuli miðast við þann tíma sem viðkom- andi var skuldari lánssamnings og leiðrétting nái bæði til greiðslna og höfuðstóls á því tímabili samkvæmt ákveðnum reglum sem nánar eru útlistaðar í lögunum. Það er kunnara en frá þurfi að segja að skuldaraskipti hafa undan- tekningarlítið átt sér stað í tengslum við eigendaskipti að veðsettum eign- um. Þegar slík yfirtaka á sér stað tekur hinn nýi skuldari yfir réttindi og skyldur samkvæmt viðkomandi lánssamningi á yfirtökudegi. Að mati undirritaðs eiga leiðréttingar á ofgreiðslum á samningstímanum í slíkum tilvikum að renna óskert- ar til þess aðila sem yfirtekið hefur viðkomandi lánssamning en ekki fyrri skuldara samningsins. Með lögunum er hins vegar rótgrónum reglum kröfuréttar um aðilaskipti að kröfum og reglum um viðskipta- bréf breytt og mælt fyrir um sjálf- stæðan rétt fyrri skuldara gagn- vart kröfuhafa til leiðréttinga á ofgreiðslum. Undirritaður telur því hugsanlegt að lögin gangi í berhögg við eignaréttarákvæði stjórnar- skrár og reglum um bann við aftur- virkni laga. Er því mikilvægt fyrir núverandi skuldara gengistryggðra lánssamninga að kanna réttarstöðu sína, þ.m.t. hvort íslenska ríkið hafi með lagasetningunni hugsanlega bakað sér skaðabótaskyldu. Í byrjun ársins 2010 var bjartsýni ríkjandi í íslenskri ferðaþjón- ustu. Fregnir bárust um góða bók- unarstöðu og útlit var fyrir að árið yrði jafnvel hið stærsta frá upphafi. Gosið í Eyjafjallajökli setti alvar- legt strik í reikninginn og vakti ótta um að sumarið 2010 yrði þungt í skauti. Sameiginlegt átak stjórn- valda og ferðaþjónustunnar gerði sitt til að snúa þeirri þróun við. Ráðist var í heildstætt markaðsá- tak í virkri samvinnu, sem sýndi hvernig aðilar geta tekið höndum saman til að bregðast við bráða- vanda. Ekki má þó gleyma að mark- aðssetning íslenskrar ferðaþjónustu er ekki grundvölluð á átaksverkefn- um, heldur viðvarandi vinnu við að vekja og viðhalda áhuga almenn- ings og söluaðila á erlendum mörk- uðum. Sú vinna byggir á daglegum samskiptum, sterkum skilaboðum og heildarsýn, þar sem hlutverk hins opinbera í almennri landkynn- ingu er vel skilgreint Nú í lok ársins 2010 gefa tölur til kynna milli eins og tveggja prósenta fækkun erlendra gesta, sem telst viðunandi þegar horft er til atburða liðins árs og efna- hagsástandsins á þeim mörkuðum sem við sækjum helst á. Jákvæð- ar fréttir erlendra fjölmiðla upp á síðkastið, þar sem Ísland er sett í öndvegi áfangastaða næsta árs, eru meðal þess sem vekja vonir um að árið verði gjöfult. En fleiri ferðamenn kalla á aukna uppbygg- ingu – og í ljósi þess að helsta auð- lind ferðaþjónustunnar er sameign okkar í íslenskri náttúru þurfum við nú að taka höndum saman um að byggja upp gæðaferðaþjónustu sem vaxið getur til framtíðar í sátt við umhverfið. Þar hefur Ferða- málastofa mikilvægu hlutverki að gegna. Tryggja þarf öryggi ferðamanna, bæði á vinsælum ferðamanna- stöðum og með því að skilgreina ramma fyrir ferðaþjónustuverk- efni að starfa eftir. Gera þarf kröf- ur til fyrirtækja um gæði vöru og þjónustu. Ferðaþjónustufyrirtæki eiga hagsmuni af því að hér þró- ist sjálfbær gæðaferðaþjónusta, þar sem þau skilaboð eru send út að almenningur og rekstraraðilar beri virðingu fyrir umhverfi sínu og sérstæðri náttúru landsins. Ferðaþjónustan skapar störf um allt land og við þurfum að vinna að því að auka arðsemi þeirra starfa og tryggja að um sem flest heilsárs- störf verði að ræða. Ferðaþjónustan er mikilvægur liður í byggðafestu og tryggir íbúum víða um land þjónustu sem ekki væri til staðar ef ferðamanna nyti ekki við. Ferðaþjónustan þarfnast nýsköp- unar, sem byggir á þekkingu, en upplýsingar sem Ferðamálastofa tók saman á árinu sem er að líða gefa til kynna að hlutur atvinnu- greinarinnar í rannsóknar- og nýsköpunarsjóðum sé einungis um 0,5%, sem er sérkennilegt í ljósi vægis greinarinnar fyrir þjóðar- búið. Ferðaþjónustan er ein okkar mikilvægustu atvinnugreina. Hún skilaði 155 milljörðum króna í gjaldeyristekjum til þjóðarbúsins árið 2009, sem var um 21% aukn- ing frá árinu áður og 20% af heild- argjaldeyristekjum. Ferðamálastofa er tilbúin að ein- henda sér í þau verkefni sem vinna þarf – og þegar hefur verið hafist handa. Ferðamálastofa hefur í sam- vinnu við hagsmunaaðila og aðra aðila stoðkerfisins hleypt af stokk- unum fjölmörgum verkefnum sem miða að því að styrkja ferðaþjón- ustuna til framtíðar: ■ Metnaðarfullt gæða- og umhverf- isvottunarkerfi er í startholum. Stefnt er á að kerfið nái til flestra þátta ferðaþjónustunnar og verði leiðbeinandi fyrir fyrirtæki í upp- byggingu, um leið og það gerir kröf- ur um metnað og þjónustu. ■ Á nýju ári verður hafin vinna við að skilgreina áherslur og stefnu í rannsóknum á sviði ferðaþjónustu, en hún verður grundvölluð á þeirri ferðamálastefnu sem unnin var á vegum iðnaðarráðherra og lögð verður fyrir Alþingi í upphafi árs. ■ Verið er að leggja lokahönd á öryggisstefnu fyrir ferðamanna- staði, en stefnan er unnin af Ferða- málastofu í góðri samvinnu við Umhverfisstofnun og Slysavarna- félagið Landsbjörg. ■ Endurskoðun á lögum um skipan ferðamála stendur yfir, en þar er m.a. horft til þeirra öryggiskrafna sem setja á fyrirtækjum á sviði ferðaþjónustu. ■ Verið er að vinna áætlun um ferðamennsku á hálendi Íslands á vegum Háskóla Íslands en sú vinna er fjármögnuð af iðnaðarráðuneyt- inu. Ferðamálastofa heldur utan um verkefnið fyrir hönd ráðuneytisins og hefur stutt við grunnrannsóknir á þessu sviði með ráðum og dáð. ■ Ferðamálastofa hýsir fyrir hönd iðnaðarráðuneytis þróunarverkefn- ið Heilsulandið Ísland. Um metn- aðarfullt verkefni er að ræða sem nýtir náttúrulegar auðlindir. ■ Með tilkomu Framkvæmdasjóðs ferðaþjónustunnar, sem verður í vörslu Ferðamálastofu, opnast tækifæri til heildstæðrar áætlun- argerðar á sviði uppbyggingar á ferðamannastöðum um allt land. ■ Þróunarverkefni á sviði menn- ingarferðaþjónustu og matarferða- þjónustu, sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands hafði umsjón með í sam- vinnu við Ferðamálastofu, eru að skila góðum árangri og sýna fram á árangur þess að nýta aðferða- fræði klasavinnu á sviði ferða- þjónustu. ■ Fyrirhugað er að efla kynning- arstarf gagnvart innlendum ferða- mönnum en endurnýjaður kynning- ar- og kortavefur Ferðamálastofu er fyrsta skrefið í þeim efnum. Markaðsstofur landshlutanna gegna hér mikilvægu hlutverki og stefnt er á að efla samstarfið við þær á árinu. Af framangreindu má sjá að spennandi tímar eru fram undan. Jafnljóst er að verkefnin verða ekki unnin nema í góðri samvinnu allra hagsmunaaðila – reynslan sýnir að þannig verður árangurinn bestur. Fyrir hönd Ferðamálastofu óska ég okkur öllum velfarnaðar á næsta ári og hlakka til samstarfsins. Gleðilegt ferðaár 2011 Ferðamál Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri Uppgjör gengislána andstætt stjórnarskrá? Gengistryggð lán Einar Hugi Bjarnason hdl. hjá Ergo- lögmönnum Ferðaþjónustan þarfnast nýsköp- unar, sem byggir á þekk- ingu Tvö atriði í nýju lögunum hafa vakið undirritaðan til umhugsunar Nú hefur verið settur saman starfshópur til að greina tæki- færi til samrekstrar og/eða sam- einingar leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila. Þetta hefur í för með sér að þar sem samein- ingar koma til með að verða, verð- ur öllum stjórnendum sagt upp og búnar til nýjar stöður við samein- aða skóla. Fjöldamargir leikskóla- stjórnendur eru uggandi yfir þess- um aðgerðum og liggja þar ýmsar vangaveltur að baki. Við teljum að ekki sé næg reynsla komin á sam- einingar sem þessar sem nú þegar hafa verið gerðar til þess að þær geti verið fordæmisgefandi. Við verðum að horfa til framtíðar og ef ekki er vandað til verks gæti kostnaðurinn orðið meiri þegar fram í sækir heldur en nú er. Við teljum álag á leikskólastjóra hafa verið mjög mikið undanfarin ár og alltaf er verið að auka við verkefn- in sem þeir þurfa að sinna. Leik- skólastjóri ber ábyrgð á öllu fag- starfi í leikskólum og þarf að hafa meiri ítök í faglegri skipulagningu þar sem fagmenntaðir starfsmenn eru í minnihluta þó að í leikskól- unum starfi fjöldinn allur af vel hæfu fólki. Leikskólastjórinn er starfs- mannastjóri á sínum vinnustað með allri þeirri vinnu sem því til- heyrir. Hann þarf að takast á við öll þau daglegu mál sem koma upp í starfshópnum, hann þarf að miðla málum, veita ráðgjöf og þarf að vita um allt sem gerist. Leikskóla- stjórinn þarf að vera sýnilegur nemendum og starfsfólki og mynda tengsl. Með því að auka álag á hann og taka hann úr tengslum við fólk- ið í skólanum er skapað óöryggi í starfsmannahópnum sem börnin munu skynja. Leikskólastjóri sér einnig um allan innri rekstur leikskólans, sér um að viðhaldi á húsnæði sé sinnt og að öryggismál séu til fyrirmynd- ar. Hann sér um innkaup fyrir leikskólann, hefur samskipti við foreldra þegar þeir koma í fyrsta viðtal og þjónustar þá. Leikskóla- stjóri ber ábyrgð á að endurmat sé gert í leikskólanum tvisvar til þrisvar sinnum á ári og að standa að úrbótum ef þörf krefur. Auk alls þessa hefur fundarseta leik- skólastjóra aukist til muna enda er hann tengiliður leikskólans við samstarfsaðila. Aðstoðarleikskólastjórinn er hægri hönd leikskólastjórans, vinnur ásamt honum að daglegri stjórn leikskólans og skipulagn- ingu starfsins og er staðgengill í hans fjarveru. Hann sér yfirleitt um heimasíðu leikskólans en það er mikið starf ef vel á að vera, einn- ig hefur hann tekið á sig mikið af þeim verkum sem leikskólastjóri þarf að inna af hendi svo hægt sé að komast yfir allar þær skyld- ur sem á honum hvíla. Aðstoðar- leik skólastjórum í þriggja deilda leikskólum ber að vera með deild- arstjórn svo að hann getur ekki verið eins mikil hjálp fyrir leik- skólastjórann eins og þörf er á en það fyrirkomulag hefur verið afleitt og skapað mikið álag fyrir báða stjórnendur. Í fjögurra deilda leikskólum hefur aðstoðarleik skóla- stjórinn aðeins 20% stjórnunar- hlutfall, sem er mjög óraunsætt og er full þörf á að auka það hlutfall til muna. Með sameiningu tveggja leikskóla má segja að staða tveggja stjórnenda sé lögð niður, aðstoðar- leikskólastjóri sinnir þá starfi sem leikskólastjóri sinnti áður í öðrum skólanum en hefur engan sér til aðstoðar. Þetta þýðir að enn fleiri verkefni bætast á deildarstjórana en þeir eru hluti af stöðugildum inni á deildum og hafa nóg með sitt. Deildarstjórar í 100% starfi eiga fimm undirbúningstíma á viku sem erfitt er að leysa þegar mann- ekla er í leikskólum. Afleysinga- hlutfallið var skert fyrir tveim- ur árum og nær sú afleysing sem er í húsi stundum ekki til að leysa alla undirbúningstíma og forföll sem verða í starfsmannahópnum. Ef deildarstjórar fá fleiri verkefni þurfa þeir meiri undirbúningstíma og afleysingu til að leysa það. Þetta hefur í för með sér meira álag á hinn almenna starfsmann auk þess sem deildarstjóri er oft eini fagað- ilinn inni á sinni deild og verður nú enn meira fjarri deildinni. Þetta aukna álag bitnar svo að lokum á börnunum, sem síst mega við því á krepputímum þegar hriktir í öllum stoðum. Einnig er verið að skoða sam- rekstur grunnskóla og leikskóla en ekki er fyrirséð hvernig slík sameining gæti átt sér stað ef skól- arnir eru ekki í sama húsi. Þá er líka hætta á að leikskólastjórar veigri sér við að sækja um stöðu skólastjóra vegna vanþekkingar á grunnskólamálum, sem og vegna stærri og flóknari rekstrareining- ar. Að auki óttumst við að þeir leik- skólastjórar og aðstoðarleikskóla- stjórar sem hljóta ekki ráðningu eða kjósa að sækja ekki um þessar stöður vegna aukins álags í starfi fari úr starfsgreininni og kjósi sér annan starfsvettvang. Þar fer mikill mannauður og margra ára reynsla og þekking á leikskólamál- um. Við leikskólastjórnendur eigum því mjög erfitt með að koma auga á þann faglega og fjárhagslega ávinning sem sameiningar eiga að hafa í för með sér. Þau rök þurfa að vera mjög sterk og vega þyngra en sá fórnarkostnaður sem fyrir hendi er. Fyrir alla muni, vandið ykkur! Sameining leikskóla Leikskólar Arndís Árnadóttir leikskólakennari Sólveig Dögg Larsen leikskólakennari

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.