Fréttablaðið - 12.01.2011, Blaðsíða 42
12. janúar 2011 MIÐVIKUDAGUR34
sport@frettabladid.is
1
DAGUR
GEIR SVEINSSON hefur oftasta allra leitt íslenska landsliðið út á völlinn sem fyrirliði í úrslitakeppni HM. Geir Sveins-
son var fyrirliði landsliðsins í þremur heimsmeistarakeppnum, HM 1993, HM 1995 og HM 1997 eða alls í 23 leikjum. Dagur
Sigurðsson nálgaðist met Geirs á sínum tíma en hann var fyrirliði á þremur HM (2001, 2003 og 2005) og alls í 20 leikjum.
HANDBOLTI Gunnar Magnússon er
einn af lykilmönnunum í kringum
landsliðið. Hann sér um að leik-
greina andstæðinga landsliðsins í
ræmur og vakir á nóttunni á meðan
strákarnir okkar sofa.
Það þekkja því fáir andstæðinga
Íslands á HM betur en Gunnar og
Fréttablaðið fékk Gunnar til þess
að segja frá styrkleika og veik-
leikum andstæðinganna sem bíða
okkar. Fyrsti leikur íslenska liðs-
ins í riðlakeppninni er gegn Ung-
verjum.
„Þeir eru með hörkuskyttur og
afar sterkan línumann sem tekur
mikið pláss. Þeir eru líka með góða
hornamenn þannig að þeirra styrk-
leiki liggur svolítið í sóknarleikn-
um. Breiddin í liðinu er líka ansi
mikil þó svo Lazlo Nagy sé ekki
með þeim,“ sagði Gunnar og vitn-
aði þar til örvhentu stórskyttunnar
sem spilar með Barcelona.
„Hann á aftur á móti rétthentan
bróður og hann er með. Þeir eiga
mikið af skyttum og geta skipt ört
út af breiddinni. Vonandi henta þeir
okkur vel. Við eigum að geta gengið
út í skytturnar en það þarf að sama
skapi að hafa góðar gætur á línu-
manninum sterka,“ segir Gunnar
en hvað um veikleikana?
„Þeir eru seinir aftur og vörn-
in er kannski ekki þeirra sterkasta
hlið heldur. Þetta er samt
hörkulið og mér finnst
þetta vera lið sem á góða
möguleika á að komast
upp úr riðlinum. Þetta
er sveiflukennt lið og
maður veit ekki allt-
af hvar maður hefur þá.
Þetta er samt mjög
krefjandi fyrsta
verkefni á þessu
móti.“
Íslandi hefur
ekki geng-
ið sem skyldi á móti Austurríki.
Liðin gerðu jafntefli á EM í janúar
á síðasta ári og svo rúlluðu Aust-
urríkismenn yfir strákana okkar
í undankeppni EM í vetur. Aust-
urríkismenn munu því vafalítið
mæta fullir sjálfstrausts í leikinn
gegn Íslandi.
„Þetta er hörkulið og þetta verð-
ur erfiður leikur. Þeir eru með góða
vörn, markmann og fínar skytt-
ur. Línumaðurinn er erfiður og er
mikið fyrir að leika. Hornamenn-
irnir eru líka öflugir þannig að
þetta er bara hörkulið,“ segir Gunn-
ar en hvar hefur íslenska liðið verið
að klikka gegn Austurríki?
„Fyrst og fremst í varnarleikn-
um. Við fórum reyndar illa líka
með dauðafærin. Þeir ætla sér
stóra hluti á þessu móti og telja sig
hafa tak á okkur. Þessi leikur verð-
ur því gríðarleg áskorun fyrir liðið.
Við höfum lært ýmislegt af þessum
síðustu tveimur leikjum gegn þeim
og það verðum við að nýta okkur.
Við verðum að koma með svörin
við því sem við höfum lært í síð-
ustu leikjum,“ sagði Gunnar.
Dagur Sigurðsson þjálfaði Aust-
urríki á EM en er hættur með liðið
eftir að hafa byggt upp hörkulið.
Við hans starfi tók Svíinn Magn-
us Andersson og hann hefur hald-
ið áfram á þeirri braut sem Dagur
var með liðið á. „Hann hefur
litlu breytt og þeir eru enn að
keyra sömu kerfi.“
Ísland mætir Noregi í
lokaleik sínum í riðlinum.
Norðmenn hafa í gegnum tíð-
ina verið okkur erfiður ljár í
þúfu. Undirbúningurinn
þeirra fyrir mótið
gekk ekki sem
skyldi og tals-
verður vand-
ræðagangur á
liðinu.
„Ég hef
sagt það og
segi enn að
Noregur er með eitt besta byrjun-
arliðið á HM í ár ef allir leikmenn
eru heilir. Þeir hafa frábæra horna-
menn, tvo magnaða línumenn og
svo menn eins og Kjelling, Mame-
lund og Lund fyrir utan. Í markinu
stendur svo Steinar Ege sem er enn
magnaður. Þess utan eru að koma
upp ungir menn eins og Rambo. Það
sem Norðmenn vantar er að finna
taktíkina sem hentar þeirra liði.
Þeir hafa hópinn en meiðsli hafa
farið illa með þá í undirbúningn-
um,“ sagði Gunnar og hann reikn-
ar með að það hafi áhrif á fram-
haldið.
„Þeir gætu lent í basli í upphafi
riðlakeppninnar. Ef þeir sleppa við
það og mæta okkur í úrslitaleik í
lokaumferðinni þá verður það mjög
erfiður leikur. Norðmenn hafa verið
að stefna hátt og ef þeir fara ekki í
undanúrslit núna eða á næsta ári þá
gera þeir það aldrei. Ég yrði ekki
hissa ef þeir næðu góðum árangri
en vonandi ná þeir sér ekki á strik
og hafa að litlu að keppa þegar þeir
mæta okkur.“ henry@frettabladis.is
Við erum í mjög erfiðum riðli
Gunnar Magnússon, myndbandsmaður landsliðsins, er þegar byrjaður að greina andstæðinga Íslands á
HM sem hann segir vera mjög sterka. Strákarnir okkar muni þurfa að hafa fyrir hlutunum í Svíþjóð.
TRYGGÐU
ÞÉR ÁSKRIFT
HEFST Á MO
RGUN
GUNNAR
MAGNÚSSON
VIKTOR SZILAGYI Austurríkismaðurinn fór illa með íslenska landsliðið í undankeppni
EM í október síðastliðnum. MYND/DIENER
KÖRFUBOLTI Einar Árni Jóhannsson
og Friðrik Ragnarsson munu þjálfa
karlalið Njarðvíkur í sameiningu
það sem eftir lifir tímabilsins en
þeir eru tveir síðustu þjálfararnir
sem hafa gert Njarðvík að Íslands-
meisturum. Sigurður Ingimund-
arson hætti með liðið eftir slakt
gengi á tímabilinu en Njarðvík er
í 10. sæti Iceland Express-deildar-
innar og hefur aðeins unnið 4 af 12
deildarleikjum sínum í vetur.
Friðrik þjálfaði áður Njarðvíkur-
liðið frá 2000 til 2004. Hann gerði
Njarðvíkinga að Íslands- meistur-
um 2001 og 2002
og liðið vann bik-
arinn undir hans
stjórn árið 2002.
Einar Árni þjálf-
aði liðið áður frá
2004 til 2007 en
hann gerði Njarð-
vík að Íslands-
meisturum 2006
og liðið varð bik-
armeistari undir
hans stjórn árið
áður.
Þeir Friðrik og
Einar Árni náðu
frábærum árangri
með Njarðvíkurlið-
ið sem sést vel á því
að liðið vann 112 af
154 deildarleikjun-
um undir þeirra stjórn frá 2000 til
2007. Sigurhlutfall liðsins á þess-
um sjö árum var því 72 prósent.
„Löngum höfum við átt góða
þjálfara í Njarðvík og verður vatn-
ið því ekki sótt yfir lækinn í þetta
skiptið,“ stóð í frétt um nýju þjálf-
arana á heimasíðu Njarðvíkur í
gær en Sigurður Ingimundarson
er eins og kunnugt er Keflvíking-
ur. Njarðvíkingar hafa ekki skipt
um þjálfara á miðju tímabili síðan
tímabilið 1996-97 þegar Keflvík-
ingurinn Hrannar Hólm var rek-
inn frá félaginu 17. desember
1996 og Njarðvíking-
urinn Ástþór Ingason
tók við.
Fyrsti leikur Njarð-
víkurliðsins undir
stjórn þeirra Einars
Árna og Friðriks
verður á móti ÍR
í Ljónagryfjunni
á sunnudags-
kvöldið. Liðin
eru í 10. og 11.
sæti deildar-
innar og eins
og staðan er
núna þá er
þetta leikur
upp á líf og
dauða í fall-
baráttunni.
- óój
Einar Árni og Friðrik taka saman við Njarðvíkurliðinu:
Vatnið ekki sótt yfir
lækinn í þetta skiptið
Enski deildarbikarinn
West Ham-Birmingham 2-1
1-0 Mark Noble (13.), 1-1 Liam Ridgewell (56.),
2-1 Carlton Cole (78.). Seinni leikur liðanna
fer fram í Birmingham 26. janúar næstkomandi.
Ipswich og Arsenal mætast í kvöld.
N1 deild kvenna í handbolta
FH-ÍBV 24-25 (13-10)
Mörk FH: Heiðdís Rún Guðmundsdóttir 10, Hind
Hannesdóttir 7, Berglind Ósk Björgvinsdóttir 4,
Birna Íris Helgadóttir 2, Ingibjörg Pálmadóttir 1.
Mörk ÍBV: Aníta Elíasdóttir 7, Ester Óskarsdóttir
5, Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 4, Sigríður L Garð
arsdóttir 3, Guðbjörg Guðmannsdóttir 3, Renata
Horvath 2, Drífa Þorvaldsdóttir 1.
Sænski körfuboltinn
Sundsvall Dragons-Uppsala Basket 96-84
Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur hjá
Sundsvall með 22 stig en Hlynur Bæringsson var
með 10 stig, 10 fráköst og 4 stoðsendingar í
tólfta sigri liðsins í röð. Helgi Már Magnússon var
með 9 stig og 6 fráköst hjá Uppsala.
Norrköping-Solna Vikings 90-69
Logi Gunnarsson var með 24 stig, 5 stoðsending
ar og 5 stolna bolta fyrir Solna.
ÚRSLIT Í GÆR
KÖRFUBOLTI Magnús Þór Gunnars-
son hefur ákveðið að hætta að
spila með Njarðvík og ganga til
við sína gömlu félaga í Keflavík-
urliðinu en þetta kom fram hjá
Víkurfréttum í gærkvöldi.
Magnús Þór hóf tímabilið með
danska liðinu Aabyhöj en kom til
Njarðvíkur í nóvember. Magnús
Þór spilaði síðast með Keflavík
veturinn 2007-2008 og tók þá við
Íslandsbikarnum sem fyrirliði
liðsins Hvorki hann né Keflavík
hefur unnið titilinn síðan að hann
fór yfir í Njarðvík. - óój
Magnús Þór Gunnarsson:
Fer í Keflavík
MAGNÚS ÞÓR GUNNARSSON Varð
Íslandsmeistari þegar hann spilaði síðast
með Keflavík. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL