Fréttablaðið - 12.01.2011, Qupperneq 8
8 12. janúar 2011 MIÐVIKUDAGUR
STJÓRNSÝSLA Innanríkisráðuneytið
hefur óskað eftir gögnum frá Ind-
landi sem varða Jóel Færseth Ein-
arsson, sem fékk íslenskan ríkis-
borgararétt í lok síðasta árs. Þrátt
fyrir það hefur drengurinn enn ekki
fengið vegabréf til að snúa heim
til Íslands. Fulltrúar ráðuneytis-
ins vildu ekki tjá sig um málið við
Fréttablaðið, en yfirlýsing var birt
á vef þeirra í gær.
„Íslensk stjórnvöld sendu í lok
desember, erindi til indverskra yfir-
valda þar sem óskað er tiltekinna
upplýsinga sem ætlað er að greiða
úr óvissu um réttarstöðu barnsins,
hvað varðar ríkisfang og hvort hin
íslensku hjón fari með forsjá þess
að indverskum lögum,“ segir meðal
annars í yfirlýsingu ráðuneytis-
ins. „Þessar upplýsingar hafa ekki
borist en þegar afstaða indverskra
yfirvalda liggur fyrir er vonast til
að unnt verði að afhenda íslensku
hjónunum vegabréf barnsins.“
Jóel fæddist á Indlandi í nóvem-
ber síðastliðnum. Foreldrar hans,
þau Einar Þór Færseth og Helga
Sveinsdóttir, fengu hjálp indverskr-
ar staðgöngumóður sem gekk með
barnið fyrir þau. Staðgöngumæðrun
er ólögleg hér á landi, en engin lög
eru til um hana á Indlandi.
Dögg Pálsdóttir, lögmaður hjón-
anna, segir alls óvíst hvort eða hve-
nær indversk stjórnvöld verði við
beiðni ráðuneytisins.
Fyrirspurnin felur meðal annars
í sér endanlega staðfestingu á því
að Helga og Einar fari með forsjá
barnsins, en einnig hvort Jóel hafi
við fæðingu einnig fengið indversk-
an ríkisborgararétt. Þá vill ráðu-
neytið fá staðfestingu á því að Einar
sé í raun líffræðilegur faðir barns-
ins. Á fæðingarvottorði Jóels, sem
er gefið út af yfirvöldum í Mahar-
ashtra-ríki á Indlandi, eru Helga og
Einar skráðir foreldrar hans. Vott-
orðið hefur verið staðfest af utan-
ríkisráðuneyti Indlands. Innanrík-
isráðuneytið hefur ekki staðfest við
Dögg hvers vegna vottorðið sé ekki
nægilegt til að veita barninu vega-
bréf, að auki sé Alþingi búið að veita
Jóel íslenskan ríkisborgararétt.
„Ég hef ekki hugmynd um hvort
eða hvenær indversk stjórnvöld
munu svara þessari fyrirspurn,“
segir Dögg. „Á meðan ráðuneyt-
ið ætlar að láta þetta stýra vinnu-
brögðum í málinu, er alls óvíst hve-
nær þau komast til Íslands með
barnið.“ sunna@frettabladid.is
– Lifið heil
Fyrir þig
í Lyfju
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
27
51
1
2/
10
Prófaðu Green tea
– við þyngdarstjórnun
Green tea hylkin eru andoxandi,
vatnslosandi og draga úr nartþörfinni.
MEÐ HEIMI OG KOLLU
ALLA VIRKA DAGA KL. 6.50BÍTIÐ
Ráðuneytið
vísar á stjórn-
völd erlendis
Innanríkisráðuneytið hefur óskað eftir gögnum frá
Indlandi vegna Jóels Færseth. Óvíst er hvenær ind-
versk stjórnvöld svara. Alþingi hefur veitt drengnum
ríkisborgararétt en hann fær ekki vegabréf.
DÖGG PÁLSDÓTTIR LÖGMAÐUR Lögmaður hjónanna segir það alls óvíst hvenær
fjölskyldan komist heim til Íslands, þar sem útgáfa vegabréfs fyrir Jóel strandi hjá
fyrirspurnum ráðuneytisins til indverskra stjórnvalda.
Innanríkisráðuneytið
Reykjavík 7. janúar 2011
„Íslensk yfirvöld geta ekki staðfest að
indverska fæðingarvottorðið […], gefið út
þann 24. nóvember 2010 af Government
of Maharashtra, […], feli efnislega í sér að
umbjóðendur yðar séu löglegir foreldrar
barnsins að indverskum rétti eða að vott-
orðið staðfesti að þau hjón fari með forsjá
þess að indverskum rétti.“
„Fæðingarvottorðið er ekki viðurkennt
hér á landi sem staðfesting á því að
hjónin séu löglegir foreldrar barnsins að
íslenskum rétti og að þau fari með forsjá
barnsins að íslenskum rétti, enda telst
kona sem elur barn vera móðir þess
samkvæmt íslenskum lögum, og sé hún í
hjúskap, eiginmaður hennar faðir þess.“
„Ráðuneytið hefur á hinn bóginn farið
þess á leit við utanríkisráðuneytið að það
afli tiltekinna upplýsinga frá indverskum
yfirvöldum. Að þeim fengnum mun
afstaða indverskra yfirvalda liggja fyrir til
þess hvort umrædd hjón fari með forsjá
barnsins að indverskum rétti.“
Úr bréfi ráðuneytis til
Daggar Pálsdóttur
1 Hvaða bæjarfélag hefur nú lokað
lögreglustöð sinni?
2 Hvaða fisktegund eðlaði sig í
Sæheimum í Vestmannaeyjum í
vikunni?
3 Hvað heitir bandaríski sendi-
herrann á Íslandi?
SVÖR
1. Búðardalur 2. Steinbítur 3. Luis E.
Arreaga
STJÓRNSÝSLA Fulltrúar sjálfstæð-
ismanna í borgarráði munu leggja
fram fyrirspurn á borgarráðsfundi
á morgun um lagalega endurskoð-
un á hlutverki mannréttindaráðs
Reykjavíkur.
Júlíus Vífill Ingvarsson, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokks, segir
mannréttindaráð ekki hafa stefnu-
markandi hlutverk og því síður
boðvald yfir öðrum ráðum borg-
arinnar. Hann vísar þar í þriðju
grein samþykktar ráðsins, þar
sem segir meðal annars að ráðið sé
fagsviðum til samráðs og ráðgjaf-
ar um forgangsröðun verkefna á
sviði mannrétt-
indamála. Júlí-
us bendir á að
ráðið eigi ekki að
taka stefnumót-
andi ákvarðanir
gagnvart öðrum
ráðum innan
borgarinnar og
vísar þá sérstak-
lega í þá ákvörð-
un ráðsins um
breytingar á samskiptum leik- og
grunnskóla við trúfélög og lífskoð-
anahópa. „Menntaráð hefur ákveð-
ið hlutverk lögum samkvæmt og í
mínum huga er það vald algjörlega
skýrt. Mannréttindaráð hefur hlut-
verk samkvæmt samþykktum borg-
arinnar,“ segir Júlíus. „Við munum
óska eftir því að borgarlögmaður
fari yfir þessi mál.“
Meirihluti mannréttindaráðs
lagði til breytingar á samstarfi
skóla og trúfélaga í lok síðasta árs
og hefur málið nú fengið umsagn-
ir hjá menntaráði og íþrótta- og
tómstundaráði. Breytingarnar fólu
meðal annars í sér að heimsókn-
um presta í skóla yrði hætt, líkt og
heimsóknum barna í kirkju í trúar-
legum tilgangi. - sv
Sjálfstæðismenn vilja að borgarlögmaður fari yfir hlutverk mannréttindaráðs:
Hlutverk mannréttindaráðs óljóst
JÚLÍUS VÍFILL
INGVARSSON
BANDARÍKIN, AP F. Lee Bailey, einn
af lögmönnum O.J. Simpson, segir
að mikilvæg sönnunargögn, sem
ekki voru notuð við réttarhöldin
yfir Simpson árið 1995, hefðu sýnt
að hann væri saklaus af morðinu
á fyrrverandi eiginkonu sinni og
elskhuga hennar.
Bailey hefur birt greinargerð
um morðmálið. Hann segir að
fjögur mikilvæg vitni hafi aldrei
verið kölluð fyrir réttinn, þar á
meðal maður sem hugsanlega hafi
séð tvo menn, sem líklega hafi
orðið parinu að bana. - gb
Lögmaður O.J. Simpson:
Enn sannfærð-
ur um sakleysi
VEISTU SVARIÐ?