Fréttablaðið - 12.01.2011, Side 27

Fréttablaðið - 12.01.2011, Side 27
MIÐVIKUDAGUR 12. janúar 2011 3 Jón Björnsson, sálfræðingur og rithöfundur, hefur fjallað um engla á námskeiðum sínum hjá Endurmenntun síðustu misseri. Áhugasvið Jóns nær þó víðar, eða neðar skulum við segja, því á námskeiði í janúar ætlar Jón að fjalla um sjálfan Kölska, skó- sveina hans og vistaverur þeirra og hinna fordæmdu í víti. „Ég kem til með að skoða fjand- ann og hvernig þessi sögulega persóna hefur þróast, úr trúar- hugmyndum annarra þjóða sem Biblíuhöfundar höfðu kynni af og svo innan kristnihefðarinn- ar sjálfrar, frá saksóknara yfir í fulltrúa hins illa,“ útskýrir Jón og segir af nógu að taka þar sem djöfullinn eigi sér langar rætur sem teygi sig í ýmsar og óvæntar áttir. Á námskeiðinu fer Jón líka með þátt- takendur í ímyndaða heimsókn til helvítis, sem hann segir vera hreint út sagt ótrú- lega smíði. „Víti tók ma rga r aldir að hanna því í Biblí- unni er ekki nema um daufa skuggaveröld að ræða sem tekur svo smám saman á sig mynd flókinn- ar byggingar á 12. öld, sem skiptist í ólíkar deildir eftir eðli og alvarleika brota, hreinsunar- eldinn, forgarð vítis og víti sjálft,“ útskýrir Jón, sem hefur auk engla fjallað um spenn- andi ferðaleiðir í mörg ár og segir í raun lítinn mun vera þar á. „Þetta er spennandi viðfangs- efni sem ég hef verið að grúska í í áratug og eðlilegt framhald á því sem ég hef verið að skoða. Líkt og englarnir er fjandinn sjálfur upp- haflega erkiengill sem síðar féll, og alveg eins og fyrirhyggjusamt fólk sem leggur af stað í ferðalag er allt eins ágætt að búa sig undir að fara til vítis með því að kynna sér það betur. Enda var sú tíðin að aðeins einn af hverjum tíu þúsund komst í himnaríki, hinir fóru beinustu leið niður. Reyndar bendir nýleg bandarísk rannsókn til að þeim hafi eitthvað fjölgað sem komast til himna. Þeir eru nú víst orðnir 49 prósent á móti 51 prósent,“ segir Jón. „Ég veit reyndar ekki hvort henni er alveg treystandi.“ Inntur eftir því hvort umfjöllunarefnið eigi eitt- hvert sérstakt erindi til Íslendinga nú, tekur Jón fyrir það. „Alls ekki, það var ekki hugmyndin með námskeiðinu. Það hefur bara ekki verið fjallað áður á jafn markviss- an hátt um fjandann eins áhugaverður og hann er, þannig að þetta er visst braut- ryðjendastarf.“ Námskeiðið Víti, fjandinn og illskan er fjögurra kvölda námskeið, kennt á tímabilinu 24. jan- úar til 14. febrúar. Skráningarfrest- ur er til 17. janúar. Nánari upplýsing- ar má finna á end- urmenntun.hi.is. roald@frettabladid.is Heimsókn í neðra Kölski, skósveinar hans og helvíti eru til umfjöllunar á námskeiði sem Jón Björnsson heldur utan um hjá Endurmenntun. Jón segir ekki seinna vænna að kynna sér efnið þar sem ófáir lendi í neðra. „Þetta er visst brautryðjendastarf,“ segir Jón Björnsson, sem fjallar um fjandann á námskeiði hjá Endurmenntun. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Horn og bein eru hörð efni sem notuð voru í ýmsa smíði til forna. Vífill Valgeirsson í Vífaskarti á Smiðs- höfða 12 heldur námskeið í skart- gripagerð reglulega og hann kveðst leggja aukna áherslu á notkun þess- ara efna með silfursmíðinni. „Horn og bein eru skemmtilegt hráefni í skart þegar búið er að pússa þau upp. Það kemur á þau hágljái,“ segir hann og nefnir sem dæmi hrútshorn og nauts- horn. Hann segir hornin bæði nýtast sem aðalefni í skartið og koma í stað- inn fyrir steina. Íslenskt hraun sem Vífill sker niður í flögur nýtur líka vinsælda sem efni í skart. Tvær sex vikna annir eru fram undan í námskeiðum hjá Vífli. - gun Smíðað úr horni VÍFILL VALGEIRSSON Í VÍFASKARTI Á SMIÐSHÖFÐA 12 HELDUR REGLULEGA NÁMSKEIÐ Í SKARTGRIPAGERÐ. Hrútshorn og bein og skart unnið úr því hráefni. Vífill Valgeirsson kennir fólki að smíða skartgripi. Símenntun Háskólans á Akureyri býður upp á nám í svæðisleiðsögunámi á Norðurlandi í samvinnu við Leiðsöguskólann í MK og SBA-Norðurleið. Að námi loknu fær fólk réttindi til að starfa sem svæðisleiðsögumenn á Norðurlandi. Skráningarfrestur er til 17. janúar. www.unak.is PRÓTÍNBOMBUR! Samkvæmt skýrslu Matís er harðfiskur hollari en áður var talið. Langhollasti þorramaturinn. Fæst í Bónus H R E I N Í S L E N S K F Æ Ð U B Ó T FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MEIRI HALLDÓR BALDURSSON Meiri Vísir. Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem setja „like“ við Vísi á Facebook geta unnið óvænta vinninga í hverri viku. m.visir.is Fáðu Vísi í símannog iPad!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.