Fréttablaðið - 12.01.2011, Síða 34

Fréttablaðið - 12.01.2011, Síða 34
26 12. janúar 2011 MIÐVIKUDAGUR BAKÞANKAR Jóns Sigurðar Eyjólfssonar ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Pondus Eftir Frode Overli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta Fyrir stuttu las ég frétt unna upp úr grein Stefáns Ólafssonar, prófessors í félagsfræði við Háskóla Íslands, þar sem sagði að íslensk stjórnvöld væru að vinna svo vel úr kreppunni að afleiðingar hennar myndu ekki dynja með jafn miklum þunga á lægri- og millitekjuhópa eins og gerist til dæmis á Bretlandi og Írlandi. ÉG varð afar kátur en svo las ég áfram en þar var vitnað í Stefán: „Skandinavíska leiðin, sem er yfirlýst stefna íslensku rík- isstjórnarinnar, er um margt öndverð við stefnu hægri stjórnanna á Írlandi og Bretlandi, þar sem tekjulægra fólk finn- ur hlutfallslega meira fyrir kreppunni.“ ÞÁ hugsaði ég sem svo, getur úttekt Stefáns Ólafssonar á ástandinu leitt til annarrar niðurstöðu en einmitt þessar- ar meðan þessi stjórn er við völd? ÞAÐ er kosturinn við raunvís- indi að þar er venjulega hægt fá nákvæmar niðurstöður alveg óháð því hver gerir rannsókn- ina. Til dæmis sýður vatn við 99,97 gráður og skipt- ir þá engu hvort Stef- án Ólafsson eða Pétur Blöndal stendur við pottinn. Eins er til dæmis hægt að mæla hitastig og segja með óyggjandi hætti hvort það hækki, lækki eða standi í stað. Í félagsvísindum er þetta flóknara eins og sannaðist þegar þessir tveir menn tókust á um það hvort skattar hefðu hækkað eða lækkað í stjórnartíð Dav- íðs Oddssonar. NIÐURSTAÐA rannsókna í félagsvísindum fer nefnilega venjulega eftir því hvort bláa eða rauða mælikerið er notað. Til dæmis er ég alveg viss um að ég eigi aldrei eftir að lesa fréttir eins og þessar: „ÞÓRÓLFUR Matthíasson hagfræðingur er í sjokki eftir að útreikningar hans sýndu að kvótakerfið hefur orðið til mikillar hagræð- ingar fyrir íslenskt samfélag. „Þetta kom mér alveg í opna skjöldu,“ sagði Þórólfur.“ SVONA frétt mun ég heldur aldrei sjá: „Skattahækkanir ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur hafa haft verulega jákvæð áhrif á íslenskt efnahagslíf. Þetta er nið- urstaða rannsóknar Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, prófessors í stjórnmála- fræði. „En það breytir því ekki að Jóhanna er alveg húmorslaus,“ sagði Hannes.“ NIÐURSTÖÐURNAR í félagsvísindum falla venjulega alveg að hugmyndafræði þess sem vinnur rannsóknina. AUÐVITAÐ; annars myndu hagsmunahópar ekki vita hvern þeir ættu að fá til verksins. Blá og rauð mælikerLÁRÉTT2. sjúkdómur, 6. frá, 8. trygging, 9. hljóð rjúpunnar, 11. guð, 12. rót, 14. hopp, 16. drykkur, 17. blundur, 18. pota, 20. skóli, 21. vegur. LÓÐRÉTT 1. þungi, 3. átt, 4. raf, 5. svelgur, 7. formann, 10. fálm, 13. smátt lausa- grjót, 15. slabb, 16. kaðall, 19. strit. LAUSN LÁRÉTT: 2. asmi, 6. af, 8. veð, 9. rop, 11. ra, 12. grams, 14. stökk, 16. te, 17. lúr, 18. ota, 20. ma, 21. gata. LÓÐRÉTT: 1. farg, 3. sv, 4. merskúm, 5. iða, 7. forseta, 10. pat, 13. möl, 15. krap, 16. tog, 19. at. Þar sem léttmjólkin verður til Hvað segirðu? Á ég að ná í baðhetturnar og sultuna? Nei! Mér finnst ein- hvern veginn að rómantíkin sé að hverfa! Hjá ykkur líka? Það gerist víst smám saman. Sultan er nú bara notuð við morgunverð- arborðið! En annars, já! Við eigum ekki allt hráefni í þessa uppskrift en kannski ég geti bjargað mér fyrir horn. Alvöru eldamennska snýst hvort eð er alfar- ið um sköpunargáfu myndi ég segja. Taílenskur kjöthleifur? Með spaghettíi! Jóna, áttarðu þig á því að þú ert búin að vera heimavinnandi húsmóðir í meira en sjö ár? Jább, alveg síðan Solla fæddist. Váááá. Saknarðu þess ekki að vinna? TRYGGÐU ÞÉR ÁSKRIFT HEFST Á MORGUN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.