Fréttablaðið - 29.01.2011, Side 1

Fréttablaðið - 29.01.2011, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 STJÓRNSÝSLA Landskjörstjórn sagði af sér í gær vegna dóms Hæsta- réttar um að ógilda kosningar um stjórnlagaþing í nóvember. „Landskjörstjórnarmenn hafa í kjölfar ákvörðunar Hæstarétt- ar 25. janúar síðastliðinn um að lýsa kosningar til stjórnlagaþings ógildar, farið yfir málið og ákveðið í ljósi þeirra aðstæðna sem upp eru komnar að segja sig frá störfum í landskjörstjórn frá og með degin- um í dag að telja,“ segir í yfirlýs- ingu hinna fimm meðlima lands- kjörstjórnar. Ekki náðist í Ástráð Haraldsson, formann landskjörstjórnar. Afsögn stjórnarmannanna var send til skrifstofu forseta Alþingis, Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur. „Framhaldið er að þingið kýs nýja aðalfulltrúa í landskjörstjórn. Það verður gert á næstunni þegar flokkarnir sem eiga þar fulltrúa hafa valið þá,“ segir forseti Alþing- is, sem kveðst enga afstöðu taka til ákvörðunar fimmenninganna. „Ég lít einfaldlega á þetta sem ákvörð- un landskjörstjórnar sem vill að friður ríki um hennar störf og ég virði þessa niðurstöðu.“ „Landskjörstjórn telur að hún hafi gert sitt ýtrasta til að kosn- ingar til stjórnlagaþings gætu farið löglega fram innan þess laga- ramma sem settur hafði verið,“ segir enn fremur í yfirlýsingu landskjörstjórnar. „Til að lands- kjörstjórn geti rækt lögbundn- ar skyldur sínar verður að ríkja friður um störf hennar,“ segja Ástráður Haraldsson, Bryndís Hlöðversdóttir, Hervör Þorvalds- dóttir, Þuríður Jónsdóttir og Þórð- ur Bogason. Varafulltrúar skipa landskjörstjórn þar til nýir aðal- fulltrúar hafa verið kosnir. Ögmundur Jónasson innanríkis- ráðherra segir landskjörstjórn taka ákvarðanir á eigin forsend- um. Þær beri að virða. „Það er mín persónulega skoðun hins vegar að það hafi ekki verið tilefni til afsagnar af hálfu þeirra né ann- arra sem komu að framkvæmd kosninganna,“ segir innanríkisráð- herra sem kveður afsögnina ekki setja þrýsting á aðra sem ábyrgð beri að gera slíkt hið sama. „Ég hef ítrekað bent á að það er mikilvægt að allir axli ábyrgð í þessu efni og þá með því að laga það sem úrskeiðis fór,“ segir Ögmundur. Spurður hvernig hægt sé að laga það að hundruðum millj- óna króna var varið í kosningar sem síðan voru dæmdar ógildar svarar ráðherrann: „Ég sé í fljótu bragði ekki hvernig þú lagfærir það vegna þess að kosningin hefur verið dæmd ógild og við það situr. Því breytir ekki afsögn eins eða neins.“ Ríkisstjórnin ákvað í gær að stjórnlagaþing muni fara fram. Innanríkisráðherra segir að eina leiðin til þess sé að halda nýjar kosningar. - gar / sjá síðu 4 3 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Fjölskyldan l Allt l Allt atvinna 29. janúar 2011 LAUGARDAGUR 1 Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 Sýningin Ljósmyndari Mývetninga – mannlífsljósmyndir Bárðar Sigurðssonar frá upphafi 20. aldar verður opnuð í Myndasal Þjóðminjasafns Íslands í dag klukkan 15. Á sama tíma verður sýningin Stoppað í fat opnuð í Horni á 2. hæð, en þar má sjá viðgerða hluti úr safneign. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA H elgarnar, eins og lífið sjálft, hafa lítið breyst eftir að frægðin bank-aði upp á, utan hvað ég vinn þegar aðrir skemmta sér og stundum er leitt að geta ekki tekið þátt í því sem vinirnir gera,“ upp-lýsir tónlistarmaðurinn Friðrik Dór. „Oftast syng ég á föstudags- og laugardagskvöldum, en er svo ræstur á lappir snemma því á laug-ardögum klukkan 9 og sunnudög-um í hádeginu þjálfa ég 7. flokk karla í FH í fótbolta. Því fara þessi tvö störf ekki sérlega vel saman en mér finnst gaman að vakna snemma,“ segir Friðrik, sem er heitari en kraumandi hraun um þessar mundir.„Ég hef spilað víða um land og séð að fólk skemmtir sér mis eftir landshlutum, en ólík stemn-ing og fjölbreytileiki fólksins þykja mér hressandi,“ segir Friðrik, sem eftir þjálfarastarfið safnar kröft-um heima við þar til hann stígur á stokk um kvöldið.„Ég er heimakær og finnst lang-best að tsjilla yfir enska boltan-um, bíómynd, FIFA- eða COD-leik í PlayStation3, en helgarnar nýti ég líka til að sinna vinum og ætt-ingjum,“ segir Friðrik og útskýr-ir að hann hafi aldrei verið drjúg-ur í djamminu um helgar. „Mér hefur aldrei þótt geggjað að fara á skemmtistaði því ég höndla ekki mannþröngina,“ segir Friðrik, sem játar að finna orðið fyrir auknum þunga frægðarinnar.„Allt er það samt vinsamlegt oggaman þeg f eða langar samræður, en meira frasar úr lögunum mínum, eins og „Keyrum þetta í gang“ og þá svara ég með frasa á móti. Aðrir vilja rifja upp fyrri kynni, eins og að hafa hitt mig á flugvellinum í Eyjum, og það er skemmtilegt þótt ég muni sjaldnast eftir andlitinu,“ segir Friðrik hláturmildur. „Ég hef húmor fyrir frægðinni og stelpurnar, jújú, þær eru hress-ar og sækja að mér, en ég á mína kærustu og er voða lítið að pæla í atgangi stelpna.“En er kærastan ekkert smeyk um kærastann sinn í sviðsljósinu?„Ef ég er úti á landi hringir hún kannski oftar en þegar ég erí bænum, en anna Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór syngur fyrir land og þjóð ásamt því að þjálfa fótboltalið FH um helgar Kærastan á mig ein LA LOKADAGUR ÚTSÖLU AÐEINS 4 VERÐ 29. janúar 2011 LAUGARDAGUR 1 Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426 Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441 Vinna með námi Rekstrarfélag Kringlunnar óskar eftir um- sóknum frá aðilum 20 ára og eldri í ábyrgðar- starf sem er að myndast innan félagsins. Um er að ræða hentugt starf fyrir skólafólk þar sem vinnutíminn er milli kl. 14 og 19. Umsóknir berist til Viðars J. Björnssonar á netfangið vidar@kringlan.is fyrir miðviku- daginn 2. febrúar. Starfsmaður þarf að geta hafið störf sem fyrst. Sími 517 9000 | www.kringlan.is Borgun leitar að öflugum hugbúnaðar- sérfræðingi Ráðgjafar á fyrirtækjasvið Inkasso óskar eftir ráðgjöfum á fyrirtækjasvið. Í starfinu felst ráðgefandi sala á þjónustu-lausnum Inkasso, samskipti við viðskiptavini, greining og ráðgjöf um meðferð viðskipta-krafna, auk tilboðs- og samningagerðar. Viðkomandi þarf að búa yfir söluhæfileikum, frumkvæði, jákvæðni og drifkrafti. Í starfinu reynir á sjálfstæð vinnubrögð og virka þátttöku í teymisvinnu. Krafa er gerð um reynslu af sambærilegum störfum. Viðskiptafræðimenntun eða sambærileg menntun er kostur en ekki skilyrði. Um framtíðarstarf er að ræða. Umsóknir berist til Guðlaugs Magnússonar, framkvæmdastjóra Inkasso, á netfangið gudlaugur.magnusson@inkasso.is. INKASSO ehf | Smáratorgi 3 | 201 Kópavogur | Sími 520-4040 | www.inkasso.is Inkasso sérhæfir sig í reikningagerð og innheimtu krafna fyrir fyrirtæki og stofnanir. Inkasso býður viðskiptavinum sínum að stýra innheimtuferlinu allt frá stofnun reiknings til löginnheimtu, ef nauðsyn krefur. Inkasso tók til starfa vorið 2010 og hefur þegar vakið athygli fyrir tæknivædda þjónustu sem getur minnkað álag viðskiptavina verulega og sparað þeim umtalsverðar fjárhæðir. Um Inkasso ehf. Umsóknarfrestur er til 10. febrúar 2011 fjölskyldan [ SÉRBLAÐ FRÉTTABLA ÐSINS UM FJÖLSKYLD UNA ] janúar 2011 Tónlistaruppeld i Helga Rut Guð mundsdóttir h eldur tónlistar nám- skeið fyrir ung abörn og forel dra í Tónagulli. SÍÐA 6 Býr til stóra og smáa ættarhring i Albert Eiríksso n hefur stofna ð fyrirtæki í kringum ætta rhringina sína. SÍÐA 2 29. janúar 2011 24. tölublað 11. árgangur Helgarútgáfa Í friðsælum faðmi fjalla Íslensk hjón búa í bænum Sankt Michael í Austurríki. ferðir 22 KÆRLEIKUR „Sindri er yndislegur ljúflingur og gleðigjafi, húmoristi, stríðinn og erfiður,“ segir Bryndís Ploder, kennari og stuðningsforeldri, um Sindra Ploder, 13 ára. Bryndís er ein fjölmargra stuðningsforeldra sem taka á móti barni eða börnum til sólarhringsvistunar á heimili sínu til að styðja foreldra í uppeldishlutverki þeirra og veita þeim hvíld. Sjá Fjölskyldan FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Hef aldrei verið hógvær Skemmtikrafturinn og rithöfundurinn Sólmundur Hólm er kominn í sjónvarp. fólk 24 Sjötta sætið staðreynd Íslenska landsliðið tapaði fyrir Króötum á HM í gær. sport 48 Martröð þjálfarans fótbolti 28 spottið 16Tónlistarþörf er meðfædd segir Helga Rut Guð- mundsdóttir 6 Villi hugsar rosalega mikið krakkasíðan 36 Austurveri Austurveri - Háaleitisbraut 68 www.lyfogheilsa.is Við opnum kl: Og lokum kl: Opnunartímar08:00-24:00 virka daga 10:00-24:00 helgar Sögðu af sér vegna dóms Hæstaréttar Landskjörstjórn segir af sér vegna stjórnlagaþings- málsins. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir ekki hafa verið tilefni til afsagnar. Menn axli ábyrgð með því að laga það sem fór úrskeiðis. „… kosningin hefur verið dæmd ógild og við það situr. Því breytir ekki afsögn eins eða neins. ÖGMUNDUR JÓNASSON INNANRÍKISRÁÐHERRA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.