Fréttablaðið - 29.01.2011, Side 4

Fréttablaðið - 29.01.2011, Side 4
4 29. janúar 2011 LAUGARDAGUR VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 15° 0° 1° 3° 1° 4° 1° 1° 19° 4° 15° 4° 21° 0° 2° 13° 1° Á MORGUN 8-18 m/s, kólnandi. MÁNUDAGUR Vaxandi NA-átt. -2 -2 1 1 3 4 4 5 7 4 4 8 5 15 14 18 15 13 7 7 6 16 3 0 2 3 4 -3 -40 2 0 STÍF SUNNANÁTT Það verður stíf sunnanátt ríkjandi á landinu í dag með talsverðri úr- komu suðvestan- og vestanlands. Svipað veður á morgun, hvöss suðvestanátt með skúrum eða slydduéljum sunn- an og vestan til en þá kólnar heldur í veðri. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður GENGIÐ 28.01.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 213,5508 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 115,30 115,86 183,10 184,00 158,35 159,23 21,241 21,365 19,938 20,056 17,857 17,961 1,3943 1,4025 180,20 181,28 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is STJÓRNSÝSLA Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir ráðuneyti sitt bera ábyrgð á þremur af sex annmörkum sem Hæstiréttur taldi á framkvæmd kosningarinnar til stjórnlagaþings. Hann fellst á að í einu atriðanna hafi verið brotið gegn lögum en lýsir sig andsnúinn niðurstöðu um tvö. Þetta kemur fram í greinargerð ráðherrans um málið. Ögmundur segir sveitarfélögin og landskjörstjórn bera ábyrgð á þremur efnisatriðum. Hæstiréttur fann að auðkenningu kjörseðla og mat hana verulegan annmarka. Sagði í nið- urstöðunni að auðvelt hefði verið að færa upp- lýsingar samhliða nöfn- um kjósenda þannig að rekja mætti til númera seðlanna. Um þetta segir Ögmundur að mjög flókið sé að rekja kjörseðil til ákveðins kjósanda. Slíkt hafi krafist tiltekinna upp- lýsinga, aðgangs að gagnagrunni og sérfræðiþekkingar til að leita í honum. „Þrátt fyrir þetta kemst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að við val á auðkennistákni hafi verið brotið gegn 4. grein laganna um stjórnlagaþing. Þá niðurstöðu ber að virða og nýta til leiðbeining- ar þegar notast verður við rafræna talningu í framtíðinni.“ Ósammála um ólög- mæti Ögmundur segir þau aðfinnsluatriði réttarins að ekki hafi mátt brjóta kjörseðlana saman og að kjörkass- ar hafi verið ófull- nægjandi á ábyrgð ráðuneytisins. Hann er hins vegar ósammála því að þau atriði hafi verið ólögmæt. Varðandi kjörseðl- ana vísar hann til minnihluta réttarins en tveir dómaranna töldu það stand- ast lög að ekki hafi mátt brjóta seðlana saman. Um kjörkassana segir Ögmundur það hafa verið sameiginlegt mat landskjörstjórn- ar og ráðuneytisins að kjörkass- arnir væru nægilega traustir og þannig úr garði gerðir að ekki væri unnt að opna þá eða ná í kjör- seðla úr þeim án mikillar fyrir- hafnar. „Á þetta féllst Hæstiréttur ekki.“ Kjörklefar mál sveitarfélaga Um ágalla á kjörklefum bendir Ögmundur meðal annars á að það sé sveitarfélaga að bera ábyrgð á gerð þeirra og uppsetningu. Ráðu- neytið hafi tekið að sér umfram lagaskyldu að láta skoða hvort unnt væri að hanna nýja útgáfu kjörklefa sem mættu þeim þörfum sem kosningarnar kölluðu á. Um þá lausn sem varð ofan á segir hann að ráðuneytinu sé kunn- ugt um að hún hafi verið tíðkan- leg í mörgum vestrænum ríkjum. Teikning af slíkum kjörklefa hafi verið send öllum sveitarfélögum ef hún mætti gagnast en ekki hafi verið gefin fyrirmæli um notkun. Bendir hann líka á að kjörstjórn- ir hafi séð um að halda uppi eft- irliti á kjörstað með því að kosn- ingaathöfnin færi fram í samræmi við gildandi reglur þannig að kjós- endur stæðu ekki hver yfir öðrum meðan þeir kysu eða reyndu að sjá á kjörseðil næsta manns. Varðar veginn fram á við Hæstiréttur sá líka annmarka á tveimur atriðum er varða talningu atkvæða. Ögmundur segir innan- ríkisráðuneytið ekki hafa komið að framkvæmd talningar og fjallar því ekki um þann þátt. Í lokaorðum segir að af hálfu þeirra sem stóðu að framkvæmd- inni hafi verið unnið að heilindum og að það hafi verið skilningur allra sem að komu að ákvarðanir sem teknar voru hefðu verið í fullu samræmi við lagabókstafinn. „Nú hefur Hæstiréttur Íslands komist að annarri niðurstöðu. Sú niður- staða er tekin alvarlega og varðar veginn fram á við.“ bjorn@frettabladid.is Gengst við einum ágalla Innanríkisráðherra segir ráðuneytið bera ábyrgð á þremur af sex ágöllum sem Hæstiréttur taldi á kosningu til stjórnlagaþings. Hann fellst á einn en er ósammála tveimur. Aðrir beri ábyrgð á öðrum efnisatriðum. Eins og áður hefur komið fram ákvað landskjörstjórn að talning atkvæða í þessum kosningum yrði rafræn. Hér var um mjög flókna talningu að ræða en rafræn talning hefur þá kosti fram yfir handtalningu að hún er ódýrari í framkvæmd og getur gefið nákvæmari niðurstöður. Ef um handvirka talningu hefði verið að ræða hefði þurft að slá inn handvirkt yfir 5 milljón tölustafi og samkvæmt upplýs- ingum sérfræðinga út frá prófunum sem gerðar hafa verið á báðum aðferðum er rafræna talningin um 100 sinnum nákvæmari en innsláttur. Hin rafræna talning gerði svo kröfur til þess að kjörseðill væri gerður á ákveðinn hátt svo unnt væri að skanna hann og telja þannig atkvæði rafrænt. Hafði komið fram að skannar þeir sem notaðir væru við rafræna talningu ættu mun auðveldara að lesa úr ósamanbrotnum seðlum en þeim sem brotnir hefðu verið saman. Slíkt myndi flýta mjög fyrir talningunni. Úr greinargerð Ögmundar Rafræn talning 100 sinnum nákvæmari INNANRÍKISRÁÐ- HERRANN Ögmund- ur Jónasson segir að niðurstaða Hæsta- réttar varði veginn fram á við. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FRÁ KRISTJANÍU Danska lögreglan mun á næstunni stórauka viðveru sína í fátækrahverfum. DANMÖRK Danska lögreglan mun á næstunni stórauka viðveru sína í fátækrahverfum landsins. Tak- markið er að vinna bug á glæpa- vandamálum sem hafa verið land- læg í þeim 26 hverfum sem hafa verið skilgreind á þennan hátt. Ný aðgerðaráætlun sem var kynnt í gær kveður á um að eftir helgi verði komnar upp starfs- stöðvar í öllum hverfunum. Þá er ráðgert að stytta afgreiðslutíma mála sem þar koma upp, þannig að rannsókn á glæpum í þessum hverfum skal ljúka innan tveggja mánaða og innan viku ef um gerendur undir 18 ára aldri er að ræða. - þj Lögreglan í Danmörku: Átak í fátækra- hverfunum Stöðvaði kannabisræktun Lögreglan stöðvaði kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði í Háaleitishverfi í fyrradag. Við húsleit fundust 44 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn og játaði sök. Þá stöðvaði lögreglan kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Vesturbæ Reykja- víkur fyrr í vikunni. Við húsleit fundust rúmlega hundrað kanna- bisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Á sama stað var einnig lagt hald á tæplega 250 grömm af kannabisefnum. Karlmaður á fertugsaldri var yfirheyrður vegna málsins. LÖGREGLUMÁL OFBELDI Rúmlega fimmta hver íslensk kona hefur orðið fyrir ofbeldi í nánu sambandi einhvern tímann á lífsleiðinni, að því er fram kemur í niðurstöðum rann- sóknar sem gerð var á umfangi ofbeldis gegn konum á Íslandi. Rannsóknina gerðu þær Elísa- bet Karlsdóttir og Ásdís A. Arnalds hjá Rannsóknarstofn- un Háskóla Íslands í barna- og fjölskylduvernd, að beiðni velferðarráðuneytisins. Niðurstöðurnar sýna að um tuttugu prósent kvennanna segja ofbeldið hafa verið líkamlegt og um sex prósent segja það hafa verið kynferðislegt. Milli eitt og tvö prósent kvenn- anna segjast hafa verið beittar ofbeldi í nánu sambandi undan- farna tólf mánuði, sem samsvarar því að 1.200-2.300 konur á Íslandi búi við ofbeldi á ári hverju. Einnig var gerð rannsókn á afskiptum lögreglu og ákvörðun- um hennar þegar tilkynningar ber- ast um ofbeldi karla gegn konum í nánum samböndum. Þá rannsókn gerði Ingólfur V. Gíslason og komst hann að þeirri niðurstöðu að meðferð mála hefði batnað eftir að ríkislögreglustjóri gaf út sérstakar verklagsreglur. Áður hafa verið gerðar fjórar kannanir í tengslum við aðgerðar- áætlun stjórnvalda vegna ofbeldis karla gegn konum. - gb Ný rannsókn sýnir að meira en fimmta hver kona á Íslandi hefur orðið fyrir ofbeldi af hálfu maka: Á annað þúsund konur búa við ofbeldi Ofbeldi karla gegn konum í nánu sambandi Allt ofbeldi Kynferðislegt ofbeldi Frá sextán Hlutfall 22,4% 6,1% ára aldri Fjöldi 24.633 1.760 Síðustu 12 Hlutfall 1,6% 6.708 mánuði Fjöldi 0,1% 110 Þrjú þúsund konur voru í úrtaki rannsóknarinnar. Svarhlutfall var 73 prósent.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.