Fréttablaðið - 29.01.2011, Page 6
6 29. janúar 2011 LAUGARDAGUR
ALÞINGI „Þetta er mjög óvenjulegt,“ segir
Róbert Marshall, formaður allsherjarnefndar
Alþingis, um frumvarp sem sjálfstæðismaður-
inn Árni Johnsen og Samfylkingar maðurinn
Sigmundur Ernir Rúnarsson hafa lagt fram
um að veita rússneska rithöfundinum Madinu
Salamovu íslenskan ríkisborgararétt.
Salamova, sem þekkt er undir nafninu
Marie Amelie, hefur búið í Noregi frá unga
aldri en var fyrr í vikunni gert að yfirgefa
landið og er nú komin til Rússlands.
Árni sagði í samtali við Fréttablaðið í gær
að frumvarpið væri lagt fram að Marie for-
spurðri. Haft var eftir lögmanni hennar
í gær að hún kærði sig ekki um að verða
íslenskur ríkisborgari.
Spurður hvort frumvarp um veitingu
ríkis borgararéttar til handa manneskju
sem ekki hefur sóst eftir honum sé yfir
höfuð þingtækt segist Róbert ekki vita það.
„Ég verð bara að segja það alveg eins og
er,“ bætir hann við. „Þetta kom mjög flatt
upp á mig. Ég hef ekki rætt við þá um þetta
og vil sem minnst um málið segja.“
Róbert segir venjuna að allsherjarnefnd
leggi fram frumvarp um veitingu ríkis-
borgararéttar, og þá að undangengnum
umsóknum um það til þingsins. Hann veit
ekki til þess að þingmannafrumvarp um
ríkisborgararétt hafi verið lagt fram áður.
Róbert tekur hins vegar fram að þingfer-
ill hans sé stuttur og hann sé því ekki sér-
fróður um málefnið. „Þú ættir kannski að
spyrja helsta sérfræðing landsins í veitingu
ríkisborgararéttar, Vigdísi Hauksdóttur.“
- sh
Formaður allsherjarnefndar veit ekki hvort frumvarp um ríkisborgararétt Marie Amelie er þingtækt:
Frumvarp Árna og Sigmundar mjög óvenjulegt
RÓBERT
MARSHALL
ÁRNI JOHNSENSIGMUNDUR E.
RÚNARSSON
FJÖLMIÐLAR Meira en eitt þúsund
tólf ára börn hafa heimsótt 365
miðla með bekknum sínum síðan í
október.
Í gegnum tíðina hefur fjöldi
beiðna borist einstökum fjölmiðl-
um innan 365 miðla um heimsóknir
skólabarna. Á síðasta ári var ákveð-
ið að koma þessum heimsóknum í
fastan farveg. Í lok ágúst var sent
bréf til allra grunnskóla í landinu og
nemendum 7. bekkjar boðið sérstak-
lega í heimsókn í vetur. Skemmst er
frá því að segja að viðbrögðin voru
framar vonum og í haust var nánast
fullbókað í heimsóknir alla daga.
Krakkarnir sem heimsækja 365
miðla fræðast almennt um sögu
útvarps og sjónvarps á Íslandi og
um alla fjölmiðla 365 miðla.
Að sögn Einars Skúlasonar sem
hefur umsjón með skólaheimsókn-
unum spyrja krakkarnir mikið og
oft fara af stað fjörugar umræður
um einstaka fjölmiðla.
Eftir umræður er yfirleitt farið í
vettvangsskoðun í myndver frétta-
stofu Stöðvar 2. Þar fá flestir hópar
að prófa að setja sig í spor frétta-
þular og lesa fréttir af textaskjá.
Yfirleitt gefst krökkunum einnig
kostur á að vera í hlutverki veður-
fréttamanns.
Enn er hægt að bóka skóla-
heimsóknir hjá 365 miðlum á
vormisseri.
Grunnskólanemendur áhugasamir um íslenska fjölmiðla:
Þúsund börn heimsótt 365 miðla
SPREYTA SIG Í FRÉTTASETTINU Nem-
endur sem koma í skólaheimsókn til
365 miðla fá oftast að bregða sér bæði
í gervi fréttaþula og veðurfréttamanna
og -kvenna.
ATVINNUMÁL Framkvæmdastjóra
og skrifstofustjóra Sjálfs-
bjargar hefur verið sagt upp
störfum. Ekki var farið fram á
vinnuskyldu út uppsagnarfrest-
inn.
Kolbrún Stefánsdóttir, fráfar-
andi framkvæmdastjóri Sjálfs-
bjargar, hefur unnið hjá stofn-
uninni í fimm ár.
Hvorki hún né fráfarandi
skrifstofustjóri til fjögurra ára,
Guðfinna Ásgeirsdóttir, fengu
nokkurn fyrirvara á
upp sögninni.
Grétar Pétur Geirsson, for-
maður stjórnar Sjálfsbjargar,
segir uppsagnirnar vera hluta
af skipulagsbreytingum á starf-
semi. Hann segir að ekki verði
ráðið í stöður kvennanna til að
byrja með. - sv
Yfirmenn reknir frá Sjálfsbjörg:
Var sagt upp
fyrirvaralaust
Námskeið
við svefnleysi
• Átt þú erfi tt með að sofna á kvöldin?
• Vaknar þú um miðjar nætur eða snemma á morgnana og nærð
ekki að sofna aftur?
• Finnst þér oft að þú fáir ekki nægilega góðan nætursvefn?
• Ert þú oft þreyttur eða syfjaður á daginn?
• Hefur þú miklar áhyggjur af svefnleysi og afl eiðingum þess?
Fimm vikna námskeið við svefnleysi (insomnia) er að hefjast á
vegum Helenu Jónsdóttur og Sóleyjar D. Davíðsdóttur sálfræðinga
Kvíðameðferðarstöðvarinnar. Námskeiðið er byggt á aðferðum
hugrænnar atferlismeðferðar þar sem veitt er fræðsla um svefn, og
þátttakendur aðstoðaðir við að breyta svefnhegðun og hugarfari
sem grefur undan svefni. Streitustjórnun og slökun jafnframt kennd.
Námskeiðið hefst miðvikudaginn 9. febrúar klukkan 16.00 og fer
skráning fram fyrir 7. febrúar hjá Kvíðameðferðarstöðinni í síma
534-0110/822-0043 eða með tölvupósti á kms@kms.is.
Stökktu til Kanarí
8. eða 15. febrúar
Allra síðustu sætin!
Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina á Kanaríeyjum 8. eða 15.
febrúar í viku eða í tvær viku á frábæru tilboði. Þú bókar flugsæti
og fjórum dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Þú getur
valið hvort þú kýst að kaupa gistingu án fæðis eða gistingu með allt
innifalið. Gríptu tækifærið og njóttu lífsins á þessum vinsæla áfanga-
stað á ótrúlegum kjörum. Flogið er til London á leið til Kanaríeyja.
Beint flug heim frá Kanaríeyjum
Verð kr. 99.900
Netverð á mann, m.v. 2 í stúdíó / íbúð í viku.
Aukavika kr. 29.580.- á mann.
Verð kr. 119.900 - með allt innifalið
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi í viku með allt innifalið.
Aukavika kr. 40.000.- á mann.
FANGELSISMÁL Ekki stendur til að
færa skúra frá Reyðarfirði til
þess að leysa plássleysisvandann
á Litla-Hrauni. Hugmynd kom
upp á fundi um málið í vikunni að
fjölga plássum í Litla-Hrauni um
45 með því að flytja þangað hús
fyrir fangana. Húsin höfðu áður
verið íbúðarhúsnæði þeirra sem
byggðu álverið á Reyðarfirði.
Páll Winkel fangelsismálastjóri
segir ekkert slíkt standa til og
afar ólíklegt sé að húsin uppfylli
öll skilyrði.
„Það liggur fyrir skipulag um
uppbyggingu og það skipulag
felst í því að byggja uppbyggi-
legt fangelsi í Reykjavík,“ segir
Páll. „Lausnin liggur ekki í því
að finna enn eina bráðabirgða-
lausn. Við gerðum það þegar við
opnuðum Bitru.“ - sv
Engir fangaskúrar í bígerð:
Uppbyggilegt
skipulag er til
Er álitshnekkir að stjórnlaga-
þingsmálinu fyrir þjóðina??
Já 75%
Nei 25%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Fylgdist þú með leik Íslendinga
um 5. sæti á heimsmeistara-
mótinu í handknattleik?
Segðu þína skoðun á visir.is
HREKJAST UNDAN KYLFUM OG GASI Tugir þúsunda mótmælenda héldu út á götur Kaíró í gær til að krefjast afsagnar Mubaraks
forseta. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
EGYPTALAND, AP Að loknum föstu-
dagsbænum múslima héldu tugir
þúsunda manna út á götur stærstu
borga Egyptalands, þrátt fyrir
útgöngubann og algert bann við
mótmælasamkomum.
Mikil harka var í átökunum.
Nokkrir létu lífið og yfir þúsund
manns særðust. Mótmælendur hafa
kveikt í nokkrum stjórnarbygging-
um, þar á meðal höfuðstöðvum
ríkisstjórnarflokksins NDP. Mann-
fjöldinn réðst einnig á byggingu
egypska ríkissjónvarpsins.
Fólkið krefst lýðræðisumbóta og
heimtar að Hosni Mubarak, sem
haldið hefur fast um stjórnartaum-
ana í næstum þrjátíu ár, segi af sér
sem forseti.
Mohammed ElBaradei, einn helsti
talsmaður lýðræðisumbóta í Egypta-
landi, kom til landsins á fimmtudag
og tók þátt í mótmælunum í Kaíró í
gær að loknum föstudagsbænum.
Hann leitaði skjóls í mosku
þegar lögreglan beitti vatnsþrýsti-
byssum á hópinn. Hann sagði þar
að líklega væri tækifærið til að
knýja fram breytingar með frið-
sömum hætti farið forgörðum.
„Nú er það fólkið á móti hrottun-
um.“ Fréttir bárust af því að hann
hafi verið settur í stofufangelsi.
Bræðralag múslima, stærstu
stjórnarandstöðusamtök landsins,
styður mótmælin og gæti komist
til meiri áhrifa hrekist Mubarak úr
embætti. Þetta eru meira en áttatíu
ára gömul samtök sem berjast fyrir
því að lög íslamstrúar verði lands-
lög. Leiðtogar samtakanna afneita
jafnan ofbeldi, en stefna þeirra
hefur engu að síður víða verið
herskáum múslimum fyrirmynd.
gudsteinn@frettabladid.is
Mótmælendurnir
mæta fullri hörku
Miklar óeirðir brutust út í Egyptalandi í gær. Stjórnin sendi skriðdreka á mann-
fjöldann, lokaði flugsamgöngum og netsambandi og lagði á útgöngubann um
landið allt. Mótmælendur hafa kveikt í nokkrum stjórnarbyggingum.
KJÖRKASSINN