Fréttablaðið - 29.01.2011, Qupperneq 8
8 29. janúar 2011 LAUGARDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Ein af aðalástæð-
um fyrir eyðingu glerungs í tönn-
um Íslendinga er neysla súrra
drykkja. Það eru drykkir með
sýrustigi undir pH 5,5. Hólmfríð-
ur Guðmundsdóttir, tannlæknir hjá
Lýðheilsustöð, og Alís G. Heiðar,
nemi við Tannlæknadeild Háskóla
Íslands, hafa rannsakað innihald
ýmissa drykkja sem eru á mark-
aðnum hér á landi og þá sérstak-
lega bragðbættra vatnsdrykkja
sem innihalda sítrónusýru, sem og
kóladrykkja.
„Neyslumynstrið hefur einnig
mikil áhrif. Sá sem er að fá sér
einn og einn sopa af drykknum
yfir tiltölulega langan tíma er frek-
ar útsettur fyrir glerungseyðingu
en sá sem klárar drykkinn fljótt,“
segir Hólmfríður.
Glerungseyðing er sívaxandi
vandamál hér á landi sem herjar
sérstaklega á tennur ungs fólks.
Rúmlega 37 prósent 15 ára drengja
á Íslandi hafa mælanlega glerungs-
eyðingu og 26 prósent stúlkna.
Eru þetta niðurstöður úr Munnís,
landsrannsókn á munnheilsu barna
á Íslandi frá árinu 2005.
Lýðheilsustöð hefur nú gefið út
veggspjaldið „Þitt er valið“ með
upplýsingum um sýrustig og syk-
urmagn í helstu tegundum drykkja
á markaðnum. Hólmfríður segir
mikla undirbúningsvinnu liggja að
baki veggspjaldinu, en Rannsókna-
stofa tannlæknadeildar Háskóla
Íslands og Lýðheilsustöð rannsök-
uðu áhrif helstu tegunda drykkja
á glerung tanna. Drykkirnir voru
sýrustigsmældir og flokkaðir í
fjóra hópa eftir því hversu mikil
hætta á glerungseyðingu stafar af
þeim. Rannsóknin sýndi að vatn
er besti kosturinn og óbragðbætt
sódavatn og sódavatn með bragð-
efnum (án sítrónusýru) eyða lítið
sem ekkert glerungi tanna.
„Mest kom á óvart að í þessum
áhættuhópi eru íþróttadrykkir og
aðrir vatnsdrykkir en ofangreind-
ir, sem hafa verið markaðssettir
á undanförnum árum sem heilsu-
samlegur kostur,“ segir Hólmfríð-
ur. „Drykkirnir eru margir hverjir
úr íslensku bergvatni, hitaeininga-
snauðir, innihalda hreinan ávaxta-
safa og jafnvel bætiefni og vítamín.
En ef drykkirnir stuðla að gler-
ungseyðingu eru þeir ekki heilsu-
bætandi.” sunna@frettabladid.is
Heilsudrykkir valda
eyðingu glerungs
Ein aðalástæðan fyrir glerungseyðingu er neysla súrra drykkja. Rannsakað
hefur verið innihald íslenskra vatnsdrykkja og áhrif þeirra á tannheilsu. Margir
drykkir sem eru markaðssettir sem heilsusamlegir hafa skaðleg áhrif á tennur.
ÞITT ER VALIÐ Veggspjald Lýðheilsu-
stöðvar um skaðleg áhrif ýmissa drykkja
á tannheilsu. MYND/LÝÐHEILSUSTÖÐ
HÓLMFRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR Lýðheilsustöð og Heilsugæsla höfuðborgarsvæð-
isins hafa unnið myndband sem leiðbeinir foreldrum að bursta tennur barna sinna.
Myndbandið er á fjórum tungumálum og er aðgengilegt á www.lydheilsustod.is
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
VIÐSKIPTI SP-Fjármögnun hefur
eftir endurútreikning lána endur-
greitt viðskiptavinum sínum um
1,3 milljarða króna. Fyrirtæk-
ið hefur lokið endurútreikningi á
um 20 þúsund lánasamningum, en
á enn eftir að endurútreikna tæp-
lega 10 þúsund samninga, að því er
fram kemur í tilkynningu.
Fyrirtækið bendir á að sam-
kvæmt lögunum verði leiðrétting
lána tvíþætt. Annars vegar sé um
að ræða greiðsluuppgjör út frá
breyttum vaxtaforsendum og hins
vegar höfuðstólsleiðréttingu vegna
gengisbreytinga. „Þessi reikni-
aðferð gerir það að verkum að
samningar geta í einstaka tilvikum
hækkað,“ segir í tilkynninguni. Af
þeim samningum þar sem endur-
útreikningi er lokið eru eftirstöðv-
ar samninganna hins vegar sagð-
ar hafa lækkað að meðaltali um 49
prósent. 53 prósent viðskiptavina
sem áttu inneign óskuðu eftir að fá
hana greidda út en 47 prósent vildu
skuldajafna inneignina.
Fram kemur í tilkynningu SP-
Fjármögnunar að fyrirtækið stefni
að því að ljúka endurútreikningi
innan tímarammans sem til þess er
gefinn í lögum, en það eru 60 dagar
frá desemberlokum. Uppgjöri skal
svo lokið innan 90 daga. - óká
SP-Fjármögnun hefur lokið endurútreikningi á um tveimur þriðju hlutum lána:
Hafa endurgreitt 1,3 milljarða
BÍLAR SP-Fjármögnun hefur lokið endur-
útreikningi um 20 þúsund lánasamn-
inga. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DÓMSMÁL Átján ára piltur hefur
verið dæmdur í sex mánaða skil-
orðsbundið fangelsi fyrir að
ógna starfsmanni í Sunnubúð
í Reykjavík með hnífi og ræna
33 þúsund krónum úr peninga-
kassa.
Ránið átti sér stað í byrjun
síðasta árs. Pilturinn var vopn-
aður hnífi og skipaði starfs-
manninum að afhenda sér pen-
ingana.
Pilturinn játaði sök fyrir
dómi. Hann var dæmdur til að
endurgreiða upphæðina. - jss
Átján ára piltur dæmdur:
Ógnaði með
hnífi og rændi
BANDARÍKIN, AP Bandarísk stjórn-
völd og leiðtogar í bandarísku
viðskiptalífi hefðu getað komið
í veg fyrir fjármálahrunið árið
2008 ef þeir hefðu tekið mark á
hættumerkjum og haft stjórn á
áhættuþáttum.
Þetta er niðurstaða banda-
rískrar þingnefndar sem fékk
það hlutverk árið 2009 að grafast
fyrir um orsakir hrunsins.
Forsetarnir George Bush og
Bill Clinton bera hluta ábyrgðar-
innar ásamt bæði núverandi og
fyrrverandi seðlabankastjóra.
Timothy Geithner fjármálaráð-
herra ber einnig sök, og síðan
eru stjórnendur fjármálafyrir-
tækja harðlega gagnrýndir fyrir
flóknar og illskiljanlegar áhættu-
fjárfestingar. - gb
Bandarísk þingnefnd:
Hrun var ekki
óhjákvæmilegt
SUÐUR-AFRÍKA Nelson Mandela
hefur verið útskrifaður af sjúkra-
húsi í Jóhannesarborg í Suður-
Afríku.
Vejaynard Ramlakan land-
læknir sagði í gær að Mandela
væri hress en þjáðist af kvillum
sem væru algengir hjá fólki á
hans aldri. Mandela er 92 ára
gamall.
Vel er fylgst með heilsu Mand-
ela og fer hann reglulega í lækn-
isskoðanir. Hann er með sýkingu
í öndunarfærum sem verður nú
meðhöndluð heima hjá honum.
Stjórnvöld í Suður-Afríku segja
að engin ástæða sé til að hafa of
miklar áhyggjur af heilsufari
hans. - þeb
Með öndunarfærasýkingu:
Mandela útskrif-
aður af spítala
KJARTAN MAGNÚSSON Telur að stjórn
OR eigi sjálf að annast ráðningu for-
stjóra.
SVEITARSTJÓRNIR Kjartan Magnús-
son, borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokks og stjórnarmaður í Orku-
veitunni, segir að ófaglega sé
staðið að ráðningu nýs forstjóra
að fyrirtækinu. Stjórn OR hafn-
aði fyrr í vikunni tillögu Kjart-
ans um að óháð ráðningarfyrir-
tæki verði fengið til að leggja mat
á hæfni umsækjenda um starfið
og að unnið verði úr umsóknum í
nánu samstarfi við stjórn fyrir-
tækisins.
„Ekki verður séð að við svo viða-
mikla ákvörðun sé stjórnarmönn-
um heimilt að framselja vald sitt
til valnefndar í jafn ríkum mæli
og hér virðist vera að stefnt,“ segir
í bókun sem Kjartan lagði fram.
Lýsti hann efasemdum um að ráðn-
ingarferli væri löglegt. - gar
Stjórnarmaður í OR ósáttur:
Segir ráðningu
vera ófaglega
Mál hlaupara í hérað
Hæstiréttur hefur vísað dómi tveggja
flugvallahlaupara aftur heim í hérað
til löglegrar meðferðar á ný. Þeir
höfðu verið dæmdir í 60 daga og 45
daga fangelsi fyrir að hafa farið inn
á flugvallarsvæðið við Leifsstöð og
hlaupið mörg hundruð metra innan
svæðisins.
DÓMSMÁL
1. Jussanam da Silva hefur sótt um
atvinnu- og dvalarleyfi hér á landi.
Hvaðan er hún?
2. Hvaða þjóð hafnaði í 11. sæti á
heimsmeistaramótinu í handbolta?
3. Hvað heitir íslenska fyrirtækið
sem ætlar að beisla hugarorku fyrir
iPhone?
SVÖR
1. Frá Brasilíu 2. Þýskaland
3. MindGames
VEISTU SVARIÐ?