Fréttablaðið - 29.01.2011, Blaðsíða 18
18 29. janúar 2011 LAUGARDAGUR
Álitamál tengd staðgöngumæðrun
Á Alþingi liggur nú fyrir þingsályktunartillaga
þess efnis hvort leyfa eigi
staðgöngumæðrun á Íslandi.
Í umfjöllun hefur verið látið
að því liggja að nú sé búið að
vinna úr þeim siðferðilegu
álitaefnum sem þetta mál snert-
ir og við Íslendingar höfum
þegar mótað okkur skoðun um
þau. Ég tel svo ekki vera. Mér
þykir því mikilvægt fyrir þá
umræðu sem nauðsynleg er að
reifa nokkur atriði. Staðgöngu-
mæðrun varðar ekki einvörð-
ungu mögulega staðgöngu-
móður og þau sem óska eftir
að eignast barn með þessum
hætti heldur tengist sú leið með
beinum og óbeinum hætti fleiri
einstaklingum og persónulegu
lífi þeirra. Einnig hefur stað-
göngumæðrun áhrif á almenn-
an skilning okkar á fjölskyldu-
tengslum og mótar menningu
okkar til framtíðar. Hér að
neðan er gerð tilraun til að
greina upp helstu flokka álita-
mála sem snerta í raun báðar
spurningarnar: hvort leyfa
ætti staðgöngumæðrun og ef
það væri gert hvernig ætti að
standa að framkvæmdinni?
1. Staðgöngumæðrun hefur
tilhneigingu til að markaðs-
væðast – taka að lúta lögmálum
framboðs og eftirspurnar. Þá
myndast verð fyrir barnið og
konan sem gengur með barn-
ið gerir það að einhverju leyti
fyrir greiðslu jafnvel þó um
velgjörð sé að ræða (greiðsla
er þá hugsuð sem uppbót fyrir
miska eða vinnutap). Nú þegar
eru til stór fyrirtæki erlendis
sem annast milligöngu um
slíka þjónustu og á undanförn-
um árum hefur orðið til iðn-
aður á þessu sviði sem veltir
stórum fjárhæðum. Það sem
þetta þýðir í raun er að barnið
og líkami konunnar verður að
söluvöru.
2. Sé staðgöngumæðrun leyfð
á annað borð er mikilvægt að
það leiði ekki til kúgunar stað-
göngumóðurinnar. Það að taka
að sér að ganga með barn sem
maður hyggst gefa frá sér til
annarra einstaklinga að með-
göngu lokinni getur skapað
viðkvæma árekstra. Þeir sem
munu taka við barninu hafa til-
hneigingu til að vilja stjórna
lífi konunnar á meðgöngunni
þar sem konan gengur með
„þeirra barn“. Mikilvægt er
að viðurkenna að þungi konu
á meðgöngu er ávallt hluti af
líkama hennar og hver kona
ræður sjálf líkama sínum. Ef
vikið er frá þessu er stutt í þá
túlkun að meðgöngumóðir-
in sé ekki persóna sjálf heldur
sé hún fremur hluti af líkama
barnsins sem hún gengur með.
Staðgöngumóðir verður því að
ráða sjálf yfir líkama sínum
á meðgöngu. Enginn annar en
hún ákveður hvort hún lýkur
við meðgönguna eða ekki ef
álitamál koma upp. Það eru því
engar forsendur fyrir að gera
við hana bindandi samning sem
kvæði á um að hægt væri að
stefna henni ef henni snerist
hugur í ferlinu. Slíkur samn-
ingur væri brot á mannrétt-
indum hennar. Slíkir samning-
ar eiga heima í viðskiptum en
ekki á sviðum sem varða mann-
helgi einstaklinga og málefni
fjölskyldna.
3. Það er vandmeðfarið
hvernig á að afmarka þann
ramma sem ákvarðar hverjir
eigi að hafa aðgang að þjónustu
staðgöngumæðra. Spurning-
ar um mismunun einstaklinga
og hópa vakna mjög auðveld-
lega. Ef einungis er miðað við
gagnkynhneigð pör og tilvik
þar sem konan hefur ekki leg
má gera ráð fyrir að mörgum
þætti það óréttlát niðurstaða.
Til eru aðrir sjúkdómar hjá
konum sem gera það að verkum
að þær geta ekki gengið með
barn en eiga engu að síður enga
ósk heitari en að fá barn. Einn-
ig er það í algeru ósamræmi við
lög okkar að binda þessa þjón-
ustu einvörðungu við gagnkyn-
hneigða einstaklinga og pör.
Jafnframt er líklegt að erlend
pör hefðu hug á að nýta þá þjón-
ustu sem hér væri boðið upp á.
Við erum aðilar að samningi
um opinn aðgang að heilbrigð-
isþjónustu á Evrópska efna-
hagssvæðinu það er því ekki
ljóst hvernig við getum meinað
einstaklingum þaðan aðgang
að þjónustunni. Með víðan og
opinn aðgengisramma er erfið-
ara að koma í veg fyrir algera
markaðsvæðingu á ferlinu.
4. Umfjöllun um staðgöngu-
mæðrun hér á landi hefur ein-
skorðast nokkuð við parið sem
óskar eftir að fá barn og kon-
una sem gengur með barnið.
Myndin er þó stærri. Stað-
göngumóðirin á yfirleitt líka
fjölskyldu. Hún á börn vegna
þess að einungis þær konur
sem hafa fætt börn áður geta
orðið staðgöngumæður. Þessir
aðstandendur staðgöngumóður-
innar eru hluti af þeirri mynd
sem huga þarf að. Börn stað-
göngumóður gætu upplifað sorg
eða missi þegar móðir þeirra
gefur frá sér það barn sem hún
fæðir því þau gætu upplifað
það sem systkini sitt. Einnig er
rétt að taka tilllit til sjónarmiða
þeirra einstaklinga sem nú
þegar eru orðnir unglingar og
jafnvel fullorðnir einstaklingar
og eru fæddir af staðgöngu-
móður. Sumir þessara einstakl-
inga lýsa sálrænum erfiðleikum
og reiði sem þeir þurfa að glíma
við vegna leyndar eða lygi tengt
uppruna sínum sem þeir hafa
þurft að horfast í augu við frá
hendi uppeldisforeldra sinna.
Aðrir eru einfaldlega ósáttir
við að hafa verið „keyptir“ eða
„seldir“ eins og þeir orða það.
Ekki eru til miklar rannsóknir
um líðan þeirra einstaklinga
á fullorðinsárum sem fæddir
eru af staðgöngumóður en það
er full ástæða til að hvetja til
slíkra rannsókna. Margt bendir
til þess að farsælast sé að þeir
einstaklingar sem eru getnir og
fæðast með þessum hætti hafi
fullan aðgang að öllum upplýs-
ingum um tilurð sína og jafn-
vel að regluleg umgengni sé
á milli foreldra og staðgöngu-
móður. Hún og hennar fjöl-
skylda þyrfti því hugsanlega að
vera viðurkenndur hluti af fjöl-
skyldu barnsins eftir fæðingu.
5. Sú mikla tæknivæðing á
því ferli að geta barn og eiga
barn sem hófst upp úr 1980 og
hefur nú eftir árið 2000 orðið
að eins konar tískusprengingu
er að breyta hugmyndum okkar
um fjölskyldutengsl. Áður var
eðlilegt að líta á móðurhlut-
verkið sem órofa tengt þeirri
konu sem fæddi barnið og að
faðirinn væri sá sem lagði til
erfðaefnið. Með breytingum á
þessari mynd hefur ábyrgðin
sem fylgir því að koma barni
í heiminn og ala það upp orðið
óljósari. Fjölmörg málaferli
hafa sprottið upp þar sem barn
er í þeirri stöðu að óljóst er
hver sé móðir þess, hvort það
eigi eina tvær eða þrjár mæður
og einn eða tvo feður, eða jafn-
vel hvort það eigi enga móður
og engan föður. Slíkt ástand er
óásættanlegt. Ef halda á áfram
á þessari braut tæknivæðingar
verður að vera hægt að girða
fyrir slys af þessum toga. Það
hefur okkur enn ekki tekist.
Það er mikilvægt að þeir sem
taka að sér að setja lög og regl-
ur um þetta mál í samfélaginu
hafi kynnt sér vel reynslu ann-
arra þjóða um efnið. Þau lönd
sem við teljum standa næst
okkur menningarlega hafa flest
sett í lög bann við staðgöngu-
mæðrun, það eru því engin
skýr fordæmi sem okkar lög-
gjöf gæti byggt á. Mikilvægt
er að lagagerð sé vönduð. Á það
sérstaklega við þegar gripið er
inn í svo viðkvæmt og dýrmætt
ferli eins og tengsl foreldra og
barna. Í þeirri þingsályktun-
artillögu sem nú liggur fyrir
Alþingi er farið fram á að laga-
frumvarp um staðgöngumæðr-
un liggi fyrir eigi síðar 31.mars
2011. Slíkt vinnulag getur
aldrei skilað góðu verki.
Staðgöngu-
mæðrun
Ástríður
Stefánsdóttir
læknir og
heimspekingur, dósent
í hagnýtri siðfræði
Þau lönd sem við teljum standa næst
okkur menningarlega hafa flest sett í lög
bann við staðgöngumæðrun.