Fréttablaðið - 29.01.2011, Page 25

Fréttablaðið - 29.01.2011, Page 25
LAUGARDAGUR 29. janúar 2011 Sólmundur segist í langflestum til-fella fá frábærar viðtökur þegar hann skemmtir á samkomum, en minn- ist þó einnar slíkrar sem ekki gekk sem skyldi. „Árið 2005 átti ég að rífa upp stemninguna í hléi á hestasýningu í Reiðhöllinni í Víðidal og klæddist kúrekahatti og -stígvélum í tilefni dags- ins. Ég söng tvö lög sem vöktu nákvæm- lega enga hrifningu, og þegar ég var að labba af sviðinu sagði einn umsjónar- manna sýningarinnar mér að ég þyrfti að halda áfram því skeiðklukkan í höllinni væri biluð. Ég tók því tvö lög í viðbót en það mátti heyra saumnál detta í áhorfendahópnum, og ekki bætti úr skák að vera í þessum fáránlegu fötum. Ég var niður- brotinn og síðan hefur orðið „Reiðhöllin“ orðið að samheiti fyrir lélega frammistöðu hjá okkur vinunum.“ Hann segist einnig hafa orðið fyrir undarlegustu reynslu ævi sinn- ar þegar hann skemmti á árshátíð fyrirtækis nokkurs fyrir nokkrum mánuðum. „Ég hef verið veislustjóri oft en aðeins fengið eina kvört- un, og það var frá meðlimi starfsmannafélags sem missti sig yfir því að röðin í ístertuna gengi ekki nógu hratt fyrir sig. Ég ætlaði að taka á málinu sem stóískri ró, spurði hvort ekki væri málið að vera bara jákvæður á þessari skemmtilegu stundu, en þá sagði hann þessa gullnu setningu sem ég gleymi aldrei: „Ekki reyna þetta! Ég er svo vondur að ég get ekki einu sinni talað við þig!“ Hann var alveg brjálaður. Það hefur því enginn enn kvartað yfir því að ég sé ekki nógu fyndinn, en ég þarf greinilega að bæta mig varðandi ísterturnar.“ ■ NIÐURBROTINN Í KÚREKASTÍGVÉLUM MYND/TINNA STEFÁNSDÓTTIR segir Sólmundur og bætir við að landsbyggðin hafi alltaf skipað stór- an sess í lífi sínu. „Þegar Skítamór- all og hnakkamenningin sem fólk tengdi við þennan landshluta var í hámæli var ég ekkert mikið að bás- úna tengslin, en núna er ég stoltur af þeim og gæti alveg hugsað mér að eiga sumarbústað í Hveragerði.“ Spurður hvort ekki sé rígur milli íbúa Selfoss og Hveragerðis segist Sólmundur ekki hafa orðið var við sérstaka óvild þar á milli. „Það ríkir víst meira stríð á milli Selfoss ann- ars vegar og Hvolsvallar og Hellu hins vegar. Selfoss er höfuðstaður- inn og það ráðast allir á risann.“ Hann fussar og sveiar þegar blaðamaður líkir þessu við samband KR og annarra íslenskra íþrótta- liða, enda er Sólmundur heittrúaður Þróttari frá blautu barnsbeini og býr sig þessa dagana undir að taka sæti í stjórn félagsins. „Björn Hlynur Haraldsson, leik- ari og félagi minn, líkti Þrótti eitt sinn við hressa frændann sem glímir við áfengissýki, fólki þykir hann skemmtilegur en verður stundum þreytt á honum. Við erum nokkrir sem viljum breyta þessu því okkur þykir vænt um klúbbinn, en það þykir svo mörgum vænt um félagið en nenna samt lítið að gera nokkuð í því að rífa það upp. Mér og mörgum fleirum hætt- ir til að rífa kjaft uppi í stúku yfir ládeyðunni yfir klúbbnum en gera svo ekki rassgat í því,“ segir Sólmundur, sem æfði fótbolta með liðinu ásamt vinum sínum úr Langholtsskóla á æsku- árum en segist hafa verið slakastur þeirra í íþrótt- inni. „Ég var samt bestur í búningsklefanum, því þar gat ég fíflast.“ Gagnrýninn á sjálfan mig Eftirhermurnar, sem Sólmundur lýsir sem sterkbyggðri beinagrind í sinni skemmtidagskrá, hófust þegar hann var gutti í Langholtsskóla. Þar líkti hann meðal annars eftir fram- komu og talsmáta skólastjórans og gangavarðarins, sem báðar voru konur, við mikinn fögnuð skólasyst- kina, en fyrsti nafntogaði einstakl- ingurinn sem Sólmundur náði á sitt vald var sjálfur Pálmi Gunnarsson, söngvarinn góðkunni. Sú eftirherma tryggði honum meðal annars sigur í eftirhermukeppni þáttarins Logi í beinni fyrir nokkrum árum. „Ég frumsýndi Pálma í leiklistar- ferð með Menntaskólanum við Sund og fékk svona hrikalega góðar við- tökur. Svo fóru þeir að mjatlast inn hægt og rólega, en fyrst var ég aðal- lega í söngeftirhermunum. Jam- aíkumaðurinn geðþekki Shaggy og Olsen-bræðurnir dönsku hafa til dæmis fylgt mér lengi en núna er ég farinn að færa mig meira yfir í taleftirhermurnar og tek meðal ann- arra Pál Óskar, Gunnar í Krossinum, Bjarna Fel og Sigmund Davíð. Svo hef ég auðvitað hermt grimmt eftir vinnufélögum og yfirmönnum í gegnum tíðina,“ segir Sólmundur, en hann hefur meðal annars starfað sem blaðamaður á DV, Fréttablaðinu og Vísi.is og á auglýsingastofunni Hvíta húsinu meðfram gríninu. Þá liggur beint við að spyrja hvort sá sem stundar að herma eftir vinnu- félögum sínum sé aldrei laminn fyrir vikið? „Nei, enda kenndi pabbi mér fyrir löngu að gera aldrei grín að gestum fyrr en þeir eru farnir. Fólk þykist alltaf hafa voðalega gaman af því þegar hermt er eftir því, en ég sé í gegnum það og veit að því þykir það óþægilegt,“ svarar Sólmundur og bætir við að hann sé mjög gagn- rýninn á sjálfan sig þegar kemur að eftirhermunum. Athyglissjúkur og fælinn Hróður skemmtikraftsins hefur bor- ist víða og nú er svo komið að hann hefur nóg að gera við að skemmta á samkomum, allt frá brúð- kaupsveislum til þúsund manna árshátíða. „Ég hef alveg gríðarlega gaman að þessu, en eini ókost- urinn er tímasetningarn- ar. Þess vegna tek ég frá helgi og helgi til að geta verið með fjölskyldunni,“ segir Sólmundur, en hann er kvæntur Elínu Önnu Steinarsdóttur og eiga þau soninn Matthías sem er þriggja ára. Sólmundur gengst við því að vera haldinn snert af athyglissýki, sem lýsir sér meðal annars í því hversu mjög hann nýtur sín einn á sviði fyrir framan fjölda fólks. „En samt er ég líka dálítið fælinn, sem ég held að eigi við um marga í þess- um bransa. Mér líður líka rosalega vel þegar ég er einn, get hæglega setið og hugsað eða horft út um gluggann í klukkutíma. Og ég fer oft einn í bíó. Reyndar fór ég einn á þrívíddarmynd í gær. Það voru mjög fáir í salnum, mjög áberandi að ég var einn á ferð og ég með þrívídd- argleraugun á mér í þokkabót. Ég hugsa að ég geri það ekki aftur,“ segir Sólmundur og glottir. Ævisaga fyrir næstu jól Ævisaga Gylfa Ægissonar sem Sól- mundur skrifaði árið 2009 fékk mjög góðar viðtökur lesenda og gagnrýn- enda. Aðspurður segist Sólmundur öruggt að út komi önnur bók eftir hann fyrir næstu jól, þótt ekki sé búið að negla viðfangsefnið niður. „Það verður líklega ævisaga og ætti að skýrast á næstunni um hvern hún verður. Svo langar mig líka til að skrifa skáldsögu og mun pott- þétt gera það. Þú getur sett hana á óskalistann fyrir jólin 2013 í síð- asta lagi,“ segir hann og bætir við að hann gangi einnig með leikara í maganum, sem þarf ekki að koma svo mjög á óvart. „Ég er með alls kyns hugmyndir, meðal annars að sjónvarpsþáttum, sem ég þarf að forma betur og vinna í.“ Fólk þykist alltaf hafa voðalega gaman af því þegar hermt er eft- ir því, en ég sé í gegnum það … Í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla boða velferðarráðherra og Jafnréttisráð til jafnréttisþings 4. febrúar næst- komandi að Nordica Hilton Reykjavík klukkan 9 til 16. Hlutverk þingsins er að efna til samræðu milli stjórnvalda og þjóðar um málefni kynjajafnréttis og gefa öllum áhugasömum kost á að hafa áhrif á stefnu stjórnvalda í jafnréttismálum. Á jafnréttisþinginu verður fjallað um fjölmargar hliðar á jafnrétti kynjanna, svo sem kynbundið ofbeldi og mansal, jafnrétti og stjórnarskrá, áhrif Evrópuréttar á jafnrétti kynja, framlag karla til kynjajafnréttis, kynin og fjölmiðlana og áhrif efnahagsumrótsins á starf og fjölskyldulíf. Þá mun velferðarráðherra leggja skýrslu um stöðu og þróun jafnréttismála fyrir þingið. Dagskrá föstudaginn 4. febrúar 2011 á Hilton Reykjavík Nordica Þingstjórar: Björk Jakobsdóttir leikkona og leikritahöfundur og Gunnar Helgason leikari og leikstjóri 09.00 - 09.15 Þórhildur Þorleifsdóttir formaður Jafnréttisráðs: Setning 09.15 - 09.45 Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra: Skýrsla um stöðu og þróun í jafnréttismálum og tillaga að nýrri framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum 09.45 - 10.15 Elísabet Karlsdóttir verkefnisstjóri hjá Rannsóknarstofnun í barna- og fjölskylduvernd og Hildigunnur Ólafsdóttir afbrotafræðingur: Ofbeldi gegn konum – íslenskur veruleiki 10.15 - 10.45 Kaffi 10.45 - 11.15 Louise Shelley prófessor og forstöðumaður Terrorism, Transnational Crime and Corruption Center við George Mason University, Arlington BNA: Human trafficking; Global Patterns and Business Models (Flutt á ensku. Erindið er styrkt af bandaríska sendiráðinu á Íslandi) 11.15 - 11.45 Oddný Mjöll Arnardóttir prófessor við HR og formaður stjórnar Mannréttindaskrifstofu Íslands: Stjórnarskrá, jafnrétti og jaðarhópar 11.45 - 12.00 Ingólfur V. Gíslason dósent í félagsfræði við HÍ: Er kynjajafnrétti og velferð barna ósættanlegar andstæður? 12.00 - 13.00 Hádegisverður 13.00 - 14.45 Málstofur 14.45 - 15:15 Kaffi 15.15 - 15.50 Hvert ber stjórnvöldum að stefna? Panelumræður: Katrín Fjeldsted læknir og fyrrv. borgarfulltrúi, Gunnar Hersveinn rithöfundur, Katrín Anna Guðmundsdóttir verkefnisstjóri við kynjaða fjárlaga- gerð og Jón Kjartan Ágústsson formaður Hinsegin stúdenta við HÍ 15.50 - 16.00 Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra: Ávarp og slit Þingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis. Tekið er á móti skráningum til og með 2. febrúar á vef velferðarráðuneytisins, velferdarraduneyti.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.