Fréttablaðið - 29.01.2011, Side 28
28 29. janúar 2011 LAUGARDAGUR
Góðir í fótbolta en …
Knattspyrna er vinsælasta íþrótt í heimi og kastljós fjölmiðlanna beinist því eðlilega að stjörnunum. Oftast beinist at-
hyglin að hæfni þeirra inni á vellinum en því miður ekki alltaf. Í gegnum tíðina hefur ákveðnum mönnum tekist að
klúðra sínum málum utan vallar oftar en öðrum. Trausti Hafliðason stillti upp liði sem sumir myndu kalla martröð
þjálfarans og naut við það aðstoðar nokkurra sérfræðinga. Leikkerfið er 4-4-2.
Hrikalega hæfileika-
ríkur en óþol-
andi framherji
með einstakt
lag á að fá alla
upp á móti sér.
Helstu erfið-
leikana, eins og
að baktala og
berja liðsfélaga, ráðast á unnustu
sína og gegndarlausa fíkn í kynlíf
með ókunnugum á bílastæðum í
úthverfum, segir Collymore mega
rekja til geðraskana.
Kjartan Guðmundsson: Framherja parið
Collymore og Fowler hjá Liver pool er
eitt það flottasta sem sést hefur, en þeir
þoldu ekki hvor annan. Entist sjaldnast
lengi hjá sama liðinu, skiljanlega.
STAN COLLYMORE ENGLAND
Prinsipp-maður sem
var rekinn úr
argentínska
landsliðinu
fyrir að neita
að klippa á sér
hárið. Skap-
mikill kókaín-
fíkill sem
afrekaði það meðal annars að fá
rautt spjald fyrir rifrildi á vara-
mannabekknum. Hljóp 100 metr-
ana á 10,7 sekúndum.
Magnús Halldórsson: Caniggia lét
það ekki nægja að taka við sending-
um Maradona og skora. Hann þurfti
líka að detta í það með honum. Það
endaði með kókaínpartíum, leik-
bönnum og veseni. Klassaframherji.
CLAUDIO CANIGGIA ARGENTÍNA
Það er allt-af stutt í
geðveikina
hjá Barton.
Hann er einn
af þessum
mönnum sem
geta „snappað“
hvenær sem er.
Maður sér það
í augunum á honum. Hann getur
ekki bragðað vín öðruvísi en að
lemja mann og annan og oft þarf
ekki einu sinni vín til. Hann hefur
lamið menn á æfingum og inni á
vellinum en er rólegur í dag.
Svavar Hávarðsson: Á við alvarleg
geðheilbrigðisvandamál að stríða og
er með tvo dóma á bakinu. Æfir með
Ricky Hatton – þarf að segja meira?
JOEY BARTON ENGLAND
Hvar á maður að
byrja? Gazza
er einstakur.
Einhver besti
enski leikmað-
ur sögunnar
en jafnframt
einhver
mesti sauður
sem sögur fara af. Getur ekki
umgengist konur, áfengi eða mat.
Maður hreinlega tárast þegar
maður sér honum bregða fyrir.
Hvernig er hægt að klúðra öllu?
Svavar Hávarðsson: Hefur leitað sér
hjálpar vegna lotugræðgi, þráhyggju,
geðhvarfasýki og alkóhólisma. Er og
verður einn dáðasti sonur Newcastle.
PAUL GASCOIGNE ENGLAND
Sumir halda því fram að
Garrincha hafi
verið betri en
Pelé. Ótrúlegur
kantmaður
sem varð
heimsmeistari
1958 og 1962.
Hann drakk
ótæpilega allan sinn feril. Eign-
aðist fjórtán börn og var í and-
legu ójafnvægi nánast allt sitt líf.
Árið 1983 gaf lifrin sig og hann
lést. Völlurinn í höfuðborginni
Brasilíu er nefndur í höfuðið á
honum.
Magnús Teitsson: Greindarskertur
og kynóður alkóhólisti með hrygg-
skekkju. Besti kantmaður allra tíma.
GARRINCHA BRASILÍA
Af mörgum talinn besti
knattspyrnu-
maður sögunn-
ar og guð í Arg-
entínu. Hann
hefur glímt við
Bakkus og lék í
mörg ár undir
áhrifum kóka-
íns. Skaut með loftriffli á blaða-
menn eftir að hafa gengist undir
magaminnkun.
Magnús Halldórsson: Maradona
var bestur allra með alla heimsins
breyskleika í eftirdragi. Hann var fíkill,
skapofsamaður og eigingjarn. En
samt breytti hann smáliði Napoli í
besta lið í heimi og varð heimsmeist-
ari, nánast upp á sitt eindæmi.
DIEGO MARADONA ARGENTÍNA
Lék með þrettán
liðum á árun-
um 1980 til
1998. Bestur
var hann með
Everton en
lélegastur með
Val. Hann var
brögðóttur inni
á vellinum en utan vallar var
hann í ruglinu. Ward endaði loks
í dópinu og var dæmdur í fang-
elsi fyrir fíkniefnabrot.
Þórður Snær Júlíusson: Fæddur
í Liverpool, spilaði með Everton,
endaði í Val og átti ekki krónu eftir
ferilinn. Einbeitti sér að því að hýsa
fíkniefnaverksmiðju og var dæmdur í
átta ára fangelsi.
MARK WARD ENGLAND
J ones kemst í þetta lið ein-
faldlega af því
hann er mesti
fantur sem
leikið hefur í
ensku deild-
inni. Þrátt
fyrir fanta-
skapinn er
Jones líklega sá eðlilegasti í
hópnum – það segir ýmislegt um
hina. Tveggja fóta tæklingar,
olnbogaskot og pungklip voru
hans sérgrein.
Henry Birgir Gunnarsson: Fyrirmynd
allra sem hafa gaman af því að
meiða. Vinnie gerði það að listgrein-
og kunni að ganga lengra en eðlilegt
getur talist án þess að dómarinn sæi.
VINNIE JONES WALES
Herra Ars-enal var
drykkju maður
af guðs náð.
Hann fór á fyll-
erí eftir hvern
leik og þegar
hann lá dauður
á gólfinu inni
á pöbb sungu
félagar hans í Arsenal „Tony is
the leader“. Sat í fangelsi í tvo
mánuði eftir að hafa klessukeyrt
bíl blindfullur. Hann mældist
með 27 sinnum meira áfengis-
magn í blóðinu en leyfilegt er.
Freyr Bjarnason: Datt í það eftir
hvern leik og rúmlega það en tók sér
tak eftir að hafa verið fangelsaður
fyrir ölvunarakstur.
TONY ADAMS ENGLAND
Var einn besti
varnar maður
heims á sínum
tíma en glímdi
við áfengis-
sýki og þung-
lyndi alla tíð.
McGrath ólst
upp á munaðar-
leysingjahælum og var lagður
inn á geðsjúkrahús í eitt ár þegar
hann var um tvítugt. Fékk sér
bjór fyrir æfingar og lék oft
undir áhrifum áfengis.
Eiríkur Stefán Ásgeirsson: Einn allra
hæfileikaríkasti varnarmaður seinni
ára. Það er í raun ótrúlegt hversu
langt hann náði þrátt fyrir áfengis-
bölið. Í dýrlingatölu í heimalandinu.
PAUL MCGRATH ÍRLAND
Sérfræðingarnir Eiríkur Stefán Ásgeirsson íþróttafréttamaður / Freyr Bjarnason blaðamaður / Henry Birgir Gunnarsson íþróttafréttamaður / Hjörvar Hafliðason knattspyrnusérfræðingur /
Kjartan Guðmundsson blaðamaður / Magnús Halldórsson blaðamaður / Magnús Teitsson þýðandi / Svavar Hávarðsson blaðamaður / Þórður Snær Júlíusson blaðamaður
Litríkasti markmaður
knattspyrnu-
sögunnar,
þekktur fyrir
að vaða út úr
teignum með
boltann, skora
úr vítum og
sporðdreka-
markvörsluna frægu í landsleik
gegn Englendingum. Enn frem-
ur leiddist honum ekki að fá sér
kók í nebbann og var dæmdur í
fangelsi fyrir aðild sína að mann-
ránsmáli.
Kjartan Guðmundsson: Margir
fótboltamenn hafa verið uppnefndir
El Loco, eða sá brjálaði, en Higuita á
titilinn líklega fremur skilið en aðrir.
RENE HIGUITA KÓLUMBÍA
Daum var rekinn frá
Leverkusen
árið 2000 eftir
að upp komst
um kókaín-
neyslu hans. Á
þessum tíma
var hann sterk-
lega orðaður
við þýska landsliðið. Þýska
pressan greindi enn fremur frá
því að hann hefði verið veikur
fyrir vændiskonum og átt það til
að kíkja í eitt og eitt kynsvalls-
partí.
Hjörvar Hafliðason: Var grátlega
nálægt þýska landsliðsþjálfarastarf-
inu en sniffaði því frá sér. Hárréttur
maður til að stjórna þessu liði.
CHRISTOPH DAUM ÞÝSKALAND
Jermain
Pennant
Eini
knattspyrnu-
maðurinn
sem hefur leikið með
staðsetningartæki frá
lögreglunni.
Paul
Merson
Var spila-
fíkill sem
misnotaði
kókaín og áfengi. Átti samt
frábæran knattspyrnuferil.
Norman
Whiteside
Yngsti
fótbolta-
maðurinn
sem leikið hefur á HM.
Spilaði með Manchester
United og drakk með Paul
McGrath.
Stig
Töfting
Danskur
slagsmála-
hundur
sem lék meðal annars
með HSV og Bolton.
Tvisvar dæmdur fyrir
líkamsárás.
George
Best
Kemst á
bekkinn
fyrir að
vera George Best.
Adrian
Mutu Féll
á lyfjaprófi
árið 2005
vegna
kókaín neyslu og var dæmd-
ur í sjö mánaða keppnis-
bann. Er enn í málaferlum
við Chelsea, sem krefst 2,7
milljarða króna í bætur.
Mark
Bosnich
Rekinn frá
Chelsea
vegna
kókaín neyslu árið 2002
og fékk níu mánaða
keppnisbann. Einnig var
hann sektaður fyrir að
heilsa stuðningsmönnum
Tottenham að nasistasið.
VARAMANNABEKKURINN