Fréttablaðið - 29.01.2011, Page 33
29. janúar 2011 LAUGARDAGUR1
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Sýningin Ljósmyndari Mývetninga – mannlífsljósmyndir
Bárðar Sigurðssonar frá upphafi 20. aldar verður opnuð í
Myndasal Þjóðminjasafns Íslands í dag klukkan 15. Á sama
tíma verður sýningin Stoppað í fat opnuð í Horni á 2. hæð, en
þar má sjá viðgerða hluti úr safneign.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
H
elgarnar, eins og lífið
sjálft, hafa lítið breyst
eftir að frægðin bank-
aði upp á, utan hvað ég
vinn þegar aðrir skemmta sér og
stundum er leitt að geta ekki tekið
þátt í því sem vinirnir gera,“ upp-
lýsir tónlistarmaðurinn Friðrik
Dór.
„Oftast syng ég á föstudags-
og laugardagskvöldum, en er svo
ræstur á lappir snemma því á laug-
ardögum klukkan 9 og sunnudög-
um í hádeginu þjálfa ég 7. flokk
karla í FH í fótbolta. Því fara þessi
tvö störf ekki sérlega vel saman
en mér finnst gaman að vakna
snemma,“ segir Friðrik, sem er
heitari en kraumandi hraun um
þessar mundir.
„Ég hef spilað víða um land og séð
að fólk skemmtir sér mismunandi
eftir landshlutum, en ólík stemn-
ing og fjölbreytileiki fólksins þykja
mér hressandi,“ segir Friðrik, sem
eftir þjálfarastarfið safnar kröft-
um heima við þar til hann stígur á
stokk um kvöldið.
„Ég er heimakær og finnst lang-
best að tsjilla yfir enska boltan-
um, bíómynd, FIFA- eða COD-leik
í PlayStation3, en helgarnar nýti
ég líka til að sinna vinum og ætt-
ingjum,“ segir Friðrik og útskýr-
ir að hann hafi aldrei verið drjúg-
ur í djamminu um helgar. „Mér
hefur aldrei þótt geggjað að fara
á skemmtistaði því ég höndla ekki
mannþröngina,“ segir Friðrik, sem
játar að finna orðið fyrir auknum
þunga frægðarinnar.
„Allt er það samt vinsamlegt og
gaman þegar fólk gefur sig á tal
við mig. Sjaldnast eru það djúpar
eða langar samræður, en meira
frasar úr lögunum mínum, eins
og „Keyrum þetta í gang“ og þá
svara ég með frasa á móti. Aðrir
vilja rifja upp fyrri kynni, eins og
að hafa hitt mig á flugvellinum í
Eyjum, og það er skemmtilegt þótt
ég muni sjaldnast eftir andlitinu,“
segir Friðrik hláturmildur.
„Ég hef húmor fyrir frægðinni
og stelpurnar, jújú, þær eru hress-
ar og sækja að mér, en ég á mína
kærustu og er voða lítið að pæla í
atgangi stelpna.“
En er kærastan ekkert smeyk
um kærastann sinn í sviðsljósinu?
„Ef ég er úti á landi hringir
hún kannski oftar en þegar ég er
í bænum, en annars er hún bara
róleg. Ég held hún viti líka að hún
geti verið róleg því hún á mig ein.“
thordis@frettabladid.is
Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór syngur fyrir land og þjóð ásamt því að þjálfa fótboltalið FH um helgar
Kærastan á mig ein
LAGERSALA
40-80% afsláttur
Sængurfatnaður, púðar
handklæði, löberar
borðdúkar, lök,
rúmteppi, barnavörur
Lagersala Lín Design Malarhöfða 8
Aðeins þessa e
inu helgi!
www.lindes
ign.is
LOKADAGUR ÚTSÖLU
AÐEINS 4 VERÐ