Fréttablaðið - 29.01.2011, Page 44
29. janúar 2011 LAUGARDAGUR8
LEITUM AÐ ÆVINTÝRAMÖNNUM OG KONUM
Fréttastofa RÚV leitar að öflugu sumarafleysingafólki til að afla og miðla
áhugaverðum fréttum – á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni
– í útvarpi, sjónvarpi og á www.ruv.is .
Í boði eru nokkrar stöður í afleysingum. Möguleikar geta skapast á störfum til framtíðar.
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingum sem vilja grafa djúpt í málefni líðandi stundar og
miðla fréttum og fréttaskýringum í gegnum miðlana okkar. Við gerum kröfu um hæfni til að
vinna í hópi, samskiptahæfileika, góða framsögn og ritfærni og frumkvæði og sjálfstæði í
vinnubrögðum. Við bjóðum upp á kraftmikið, skapandi og metnaðarfullt umhverfi þar sem
fjölbreyttur hópur fréttafólks með mikla reynslu og þekkingu starfar.
Við leggjum áherslu á að endurspegla samfélagið sem við búum í og þess vegna hvetjum við
konur jafnt sem karla til að sækja um.
Nánari upplýsingar veita Óðinn Jónsson fréttastjóri í síma 515-3000 eða tölvupósti odinnj@ruv.is
og Berglind G. Bergþórsdóttir mannauðsstjóri í síma 515-3000 eða tölvupósti berglindb@ruv.is.
Umsóknir berist í síðasta lagi 14. febrúar nk. á netfangið starfsumsoknir@ruv.is, merktar
„Umsókn um sumarafleysingastarf á fréttastofu“.
„Ég vissi ekki að Roger Moore
væri hræddur við byssur
fyrr en ég talaði við hann“
Linda Blöndal - Fréttamaður RÚV tók viðtal
við Roger Moore þegar hann var staddur hér á landi
á vegum Unicef.
Hjúkrunarfræðingar óskast
Skógarbær er hjúkrunarheimili fyrir eldri og
yngri einstaklinga sem þarfnast hjúkrunar allan
sólarhringinn.
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa frá og með
1. mars næstkomandi.
Um er að ræða 40 – 80% starfshlutfall eða eftir
samkomulagi. Einnig óskum við eftir hjúkrun-
arnemum til sumarafleysinga.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri
Jónbjörg Sigurjónsdóttir í síma 510-2101 /
898-5207. jonbjorg@skogar.is
Árskógum 2, Breiðholti / Mjódd
Iðjuþjálfi óskast
Grund óskar eftir að ráða iðjuþjálfa í 60% starf
sem er hugmyndaríkur og jákvæður í samskiptum.
Allar nánari upplýsingar veitir Katla Kristvinsdóttir
yfiriðjuþjálfi Grundar í síma 5306194 eða 5306100.
Einnig er hægt að nálgast frekari upplýsingar með
því að senda tölvupóst á katla@grund.is. Hægt er að
sækja um starfið á www.grund.is
Á Grund búa 200 heimilismenn þar sem trúnaður, traust og umhyggja
eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð áhersla á góðan vinnuanda,
sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.