Fréttablaðið - 29.01.2011, Síða 56

Fréttablaðið - 29.01.2011, Síða 56
 29. janúar 2011 LAUGARDAGUR32 timamot@frettabladid.is Leikmenn úr liðum efstu deildar íslenska körfuboltans sýna listir í Vetrargarðinum í Smáralind í dag á fjölskylduskemmtun sem haldin er á fimmtíu ára afmæli Körfuknattleiks- sambands Íslands. Samkoman hefst klukkan 14 og þar er afmæliskaka í boði fyrir alla gesti. Þar verða líka körfu- boltastöðvar fyrir víti, drippl, skotleiki, þrautir, sendingar og fleira skemmti- legt og klukkan 15.15 kemur Latabæj- ardrottningin Solla stirða og skemmtir um stund. Áður setur samt Hannes S. Jónsson, formaður Körfuknattleikssam- bandsins, afmælisárið og kynnir helstu viðburði þess. Hannes var plataður í smá spjall á tímamótasíðuna í tilefni afmælis- ins. Hann var einmitt að ná í son sinn á körfuboltaæfingu í Grafarvoginum og leiddist greinilega ekki innan um krakkana. Tók samt ekki í mál að troða á staðnum. „Það sem er svo frábært við körfu- bolta er að alls staðar er hægt að spila hann,“ segir Hannes glaðlega. „Enda eru víða körfur við skóla og heimahús. Maður getur meira að segja æft sig einn,“ bendir hann á. Hannes segir körfuboltann tiltölu- lega unga íþrótt á heimsvísu, eða um hundrað og tuttugu ára. „Körfuboltinn var fyrst spilaður 1891 í Bandaríkjun- um og barst hingað til lands á stríðsár- unum en áhuginn fór ekki verulega að vaxa fyrr en milli 1970 og ‘80,“ segir hann og upplýsir að stofnfélög sam- bandsins árið 1961 hafi verið sex. „Svo varð sprengja upp úr 1990 þegar Stöð 2 byrjaði að sýna NBA-leiki. Þá sner- ist allt um körfubolta hjá krökkunum,“ rifjar Hannes upp en kemur með kröft- uga varnarræðu þegar hann er spurður hvort KKÍ hafi ekki glutrað niður tæki- færi til að hamra það járn enn frekar. „Körfuboltinn hefur vaxið mikið á Íslandi á síðustu tuttugu árum eins og í Evrópu allri og er næstútbreiddasta íþróttagrein í landinu með um 7.000 iðkendur, samkvæmt tölum frá ÍSÍ,“ segir hann og bætir við að KKÍ haldi úti 12-15 fjölliðamótum fyrir ellefu ára og eldri um hverja helgi frá október fram í apríl. „Svo áttum við Íslendingar fyrsta Evrópubúann sem lék í NBA og eigum fólk sem spilar í sterkustu deildum heims, auk þess sem forseti Evrópska körfuboltasambandsins er íslenskur.“ Margir leggja fram mikla sjálfboða- vinnu í þágu körfuboltans á Íslandi, að sögn Hannesar. Hann hrósar þeim eldhugum í hástert sem vinna af heilindum fyrir sitt bæjarfélag og sína íþrótt, halda úti æfingum, sjá um að félagsstarfið virki og koma krökkum á leiki og mót. Hann segir líka mikinn stuðning fyrir sig og aðra sem nú eru í stjórn sambandsins að geta enn leitað til þeirra manna sem komu að stofnun þess fyrir 50 árum. „Þeir eru alltaf boðnir og búnir að liðsinna okkur,“ segir hann. „Kolbeinn Pálsson, sem var íþrótta- maður ársins 1966 og síðar formaður sambandsins, er til dæmis formaður afmælisnefndar núna.“ gun@frettabladid.is KÖRFUKNATTLEIKSSAMBANDIÐ: FAGNAR 50 ÁRUM MEÐ FJÖLSKYLDUSKEMMTUN Alls staðar hægt að spila körfu FORMAÐURINN „Körfuboltinn hefur vaxið mikið á Íslandi á síðustu 20 árum eins í Evrópu allri og er næstútbreiddasta íþróttagreinin í landinu með um 7.000 iðkendur, samkvæmt tölum frá ÍSÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 31 INGIMUNDUR INGIMUNDARSON, landsliðsmaður í handbolta, er 31 í dag. „Þegar gengur vel í vörninni þá fyllumst við líka sjálfs- trausti í sókninni og allt verður miklu auðveldara.“ Elsku eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, bróðir og tengdasonur Matthías Bjarki Guðmundsson lést á heimili sínu miðvikudaginn 26. janúar. Jarðarför verður auglýst síðar. Björg Ragna Erlingsdóttir Lúðvík Már Matthíasson Máni Matthíasson Markús Ingi Matthíasson Guðmundur G. Magnússon Anna Björk Matthíasdóttir Magnús Víðir Guðmundsson Kristín K. Ólafsdóttir Ágúst Hlynur Guðmundsson Kristín Valdemarsdóttir Erlingur Lúðvíksson Jakobína Ingadóttir Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi, Þorbergur Guðmundsson frá Raufarhöfn, er lést 10. janúar, var jarðsunginn frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 20. janúar í kyrrþey að ósk hins látna. Okkar innilegustu þakkir til allra er auðsýndu okkur aðstandendum samúð og hlýhug við andlát hans og útför. Alúðar þakkir til starfsfólks á Hjúkrunarheimil- inu Nausti á Þórshöfn fyrir sérlega góða umönnun. Málfríður Anna Guðmundsdóttir Eiríkur Guðmundsson Björg Eiríksdóttir Hrefna Friðriksdóttir og frændsystkin. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem að heiðruðu minningu og sýndu okkur samúð og stuðning, við andlát og útför okkar ástkæru móður, tengda- móður, ömmu, langömmu og sambýliskonu Gyðu Steingrímsdóttur Fróðengi 5, 112 Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Karítasar, 11.E LSH við Hringbraut og Líknardeild LSH í Kópavogi fyrir ein- staka umönnun og umhyggju. Guð blessi ykkur öll. Kristjana Óladóttir Þráinn Garðar Þorbjörnsson Þórarinn Ólason Eydís Unnur Tórshamar Bjarni Elíasson barnabörn og barnabarnabörn. Minning Árni Helgason fæddist í Kollsvík í Rauðasandshreppi 15. febrúar 1922. Hann varð bráðkvaddur aðfaranótt 23. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ásbjörn Helgi Árnason f. 13. apríl 1889 d. 1965 og Sigrún Össurardóttir f. 6. maí 1898 d. 1977. Árni var næst elstur af 6 systkinum sem eru Guðrún f. 1919, Anna Marta f. 1924, Ólafur Helgi f. 1925 d. 1986, Halldóra f. 1930 og Kristrún Björt f. 1939. Árni giftist 25. júlí 1948 Önnu Hafliðadóttur f. 29. júní 1927 frá Miðbæ á Hvallátrum. Foreldrar Önnu voru Hafliði Halldórsson f. 6. október 1899 d. 1987 og Sigríður Filippía Erlendsdóttir f. 13. apríl 1901 d. 1982. Börn þeirra eru Helgi f. 1949 maki Ásdís Ásgeirsdóttir, Hafliði f. 1950 maki Lilja Kolbrún Kristjánsdóttir, Erna f. 1952 maki Gísli Geir Jónsson, Halldór f. 1956 maki Lára Björk Kristinsdóttir, Ólafur f. 1957 maki Sigríður Ragna Þorvaldsdóttir, Rúnar f. 1959 maki Sigurbjörg Ásgeirsdóttir, Ásbjörn Helgi f. 1965 maki Helga Snorradóttir, Jón f. 1970 maki Fanney Sigurgeirsdóttir og Dómhildur f. 1972 maki Gísli Hólmar Jóhannesson. Barnabörnin eru 35 og barnabarnabörnin 22. Árni og Anna hófu búskap á Miðbæ í félagi við for- eldra Önnu en fluttu sumarið 1950 að Neðri-Tungu í Örlygshöfn þar sem þau stunduðu hefðbundinn búskap áfram í félagi við foreldra Önnu til ársins 1962 en þá fluttu þau Hafliði og Sigríður til Patreksfjarðar. Eftir það héldu Árni og Anna áfram búskap í Neðri- Tungu til ársins 1980 en Árni stundaði áfram grá- sleppuútgerð ásamt annarri vinnu þar til hann hætti störfum 75 ára. Frá árinu 1982 hafa þau búið á Patreksfirði. Árni vann einnig ýmis störf með búskapn- um, meðal annars við vegagerð á þungavinnuvélum og fleira. Árni tók virkan þátt í hinum ýmsu félags- og sveitarstjórnarmálum. Árni verður jarðsunginn frá Patreksfjarðarkirkju laugardaginn 29. janúar 2011 kl. 14.00. Árni Helgason fæddist í Kollsvík í Rauðasandshreppi 15. febrúar 1922. Ég þakka öllum þeim er sýnt hafa mér hlýhug og vináttu vegna andláts móður minnar, Eddu Sigurðardóttur. Guðný Einarsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og langafi Þorvarður Guðjónsson fv. frkvstj. frá Hesti í Önundarfirði, Fannborg 8, Kópavogi, andaðist þann 24. janúar 2011. Jarðarförin fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 31. janúar kl. 15.00 Marta Bíbí Guðmundsdóttir Ásgeir H. Þorvarðarson Sólveig Hrafnsdóttir Sveinfríður G. Þorvarðardóttir Herluf M. Melsen R. Svanhvít Þorvarðardóttir Arnar Ingólfsson Hjördís Erlingsdóttir Jóhanna Erlingsdóttir Sigurður Hjálmarsson Geirný Ósk Geirsdóttir Erik Stöhle barnabörn og langafabörn. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát okkar yndislegu móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, Kristrúnar Sigurrósar Á. Lund sem lést 29. desember 2010. Stefán Lund Gunnar Lund Marianne Hamlin Lucia Lund Ragnar Helgi Róbertsson Thorben Lund Marion Herrera barnabörn og barnabarnabarn.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.