Fréttablaðið - 29.01.2011, Side 60

Fréttablaðið - 29.01.2011, Side 60
36 29. Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is Sveppi er besti vinur minn af því að hann bjarg- aði mér þegar var búið að ræna mér. krakkar@frettabladid.is 29. janúar 2011 LAUGARDAGUR Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Lambakjöt og villibráð. Mér finnst gæsir mjög góðar og svo borða ég rjúpur um jólin. Hver er besti vinur þinn og af hverju? Sveppi er besti vinur minn af því að hann bjargaði mér þegar var búið að ræna mér og ég var bundinn við stól. Það gera bara góðir vinir. Af hverju er hárið þitt svona úfið? Ég hugsa svo rosalega mikið og rafboðin í taugaend- unum í heilanum valda því að hárið stendur upp í loftið. Svo hef ég engan tíma til að vera að greiða mér. Ég bjó einu sinni til plút- óníum-greiðu með sam- eindar-klofnum greiðu- tönnum. Það fór allt í rugl og varð svaka- legt vesen út af því. Sprengjusveit Landhelg- isgæslunnar þurfti að sigla með hana lengst út á sjó og eyða henni með djúpsprengju. Af hverju veistu svona mikið? Af því ég hef svo rosaleg- an áhuga á því að skilja hvers vegna hlutir eru eins og þeir eru. Spyr alltaf af hverju og hvers vegna og þá segir fólk manni svo margt sem maður vissi ekki. Geta allir orðið uppfinninga- menn? Já. ekki spurning. Allir sem eru með góðar hugmynd- ir og frjótt ímyndunarafl geta það. Horfið bara í kringum ykkur og sjáið hvað vantar, hvað gæti verið betra eða hvað gæti verið auðveldara, og búið það svo til. Hver er besta uppfinningin þín? Alveg klárlega jólaskrauts- byssan sem við notuðum einu sinni til að skreyta. Ég var líka mjög feginn að hafa búið til slím-þykkni fyrir síðustu mynd. Hún hefði orðið miklu lengri ef ég hefði ekki tekið það með mér á hótelið. Hver er besta uppfinning í heimi? Hmmmm þessi er mjög erfið. Úfff! ætli skærin séu ekki nálægt því að vera best í heimi. Leonardó DaVinci fann þau upp, það vita ekki allir. Hann var ofurmaður eða eins og Nietzsche sagði: Übermensch. Hvað ætlar þú að verða þegar þú ert orðinn stór Rokk- stjarna. Er gaman að búa til bíómyndir? Já það er mjög gaman, sérstaklega þegar maður gerir það með vinum sínum. Lékst þú sjálfur í áhættuatriðunum? Já, við gerðum allt sjálfir – öll atriði hvort sem þau voru há- dramatísk eða áhættu- atriði. Hver er fræg- asti maður sem þú hefur hitt? Úff, veit ekki alveg hvernig ég á að svara þessu. Hitti einu sinni Einstein í draumi, er það tekið með? Færðu mikið af aðdáendapósti? Já, ég fæ alls konar póst, sem er mjög gaman. Gott að vita af því að maður er að gleðja einhvern. Finnst þér gaman að vera beðinn um eiginhandaáritun? Já, já, þá veit maður að það er einhver sem fílar það sem maður er að gera. Hvor er vinsælli þú eða Sveppi? Sveppi, hann er svo sætur og krúttlegur. ALLIR GETA ORÐIÐ UPPFINNINGAMENN Villi er besti vinur Sveppa. Hann er með úfið hár af því hann hugsar svo mikið og svo hitti hann einu sinni Einstein í draumi. Hvað þarf marga Hafnfirðinga til að skipta um ljósa- peru? Svar: Tvo til að halda stiganum, einn til að halda við ljósaperuna og 1.000 til að snúa við húsinu! Sendandi: Atli Snær Stefánsson 8 ára. Hvað sagði draug- urinn við hinn drauginn? Þú ert alveg ofboðslega gegn- sær! Pabbi! kallar Anna. Já, elskan mín. Verða kálfarnir á mér að nautum þegar ég verð stór? Einu sinni var kona sem setti nærfötin sín á kínverskt þvottahús. Þegar hún fékk fötin til baka voru enn þá blettir í nærbuxunum. Þá sendi hún miða með fötunum: Nota meiri sápu í fötin. Þá fékk hún miða til baka: Nota meiri pappír! VEFSÍÐAN LITABOK.IS er tilvalin fyrir litla og upprennandi listamenn. Þar er gott safn af myndum af alls kyns vinsælum teiknimyndapersónum sem er hægt að prenta út og lita. 1. Hvenær byrjar þorrinn? 2. Á hvaða degi byrjar þessi mánuður? 3. Hvað gefa konur mönnum sínum venjulega þann dag? 4. Hvað þýðir „að þreyja þorr- ann“? 5. Hvernig matur er vinsæll á þorranum? 6. Hvaða skemmda brjóskfisk borðar fólk þá? 7. Úr þeirri skepnu er líka búið til lýsi. Hvað kallast það? 8. Hvað hét Íslendingurinn sem var nýlega útnefndur „Þorri landsmanna“? 9. Hvað er síðasti dagur þorra nefndur? 10. Hvað mánuður kemur á eftir þorranum? Svör: 1. Þorrinn er fjórði mán- uður vetrar og hefst á föstudegi á bilinu 19. til 25. janúar. 2. Bóndadegi. 3. Blómvönd. 4. Að þrauka. Líka að bíða einhvers með eftirvænt- ingu. 5. Þorramatur. 6. Hákarl. 7. Hákarlalýsi. 8. Guðni Þorri Egilsson. 9. Þorraþræll. 10. Þá tekur góan við. Hún hefst á sunnudegi á bilinu 18. til 24. febrúar. Léttar í bragði Fitulítilnýjung!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.