Fréttablaðið - 29.01.2011, Qupperneq 64
40 29. janúar 2011 LAUGARDAGUR40
menning@frettabladid.is
Höfundar Án áfangastaðar eru
tveir, þau Markús Þór Andrés-
son sýningarstjóri og Gunnþóra
Ólafsdóttir landfræðingur. Þáttur
Gunnþóru Ólafsdóttur landfræð-
ings vekur athygli á mikilvægi og
frjósemi þverfaglegs samstarfs.
Sýningin er víðfeðm. Í raun er
um þrjár sýningar að ræða. Lista-
verk eftir íslenska og erlenda
listamenn má sjá á báðum hæðum
safnsins, en inni á milli þeirra, á
gangi og í opnum rýmum er sýn-
ing í sýningunni, plakatverk eftir
hóp sem nefnir sig því innilega
þýska nafni Institut für Raum-
experimente. Þriðja sýningin er
kvikmynda- og myndbandssýning
í sal á efri hæð, þar sem sýndar
eru bæði stuttmyndir og mynd-
ir í fullri lengd, meðal annars er
Hringurinn eftir Friðrik Þór sýnd
alla daga klukkan tíu. Fjórði hluti
verkefnisins er ráðstefna um nátt-
úrutengda ferðaþjónustu fyrstu
helgina í febrúar. Það er frétt-
næmt að þar verður Lucy R. Lipp-
ard meðal frummælenda en hún
er heimsþekkt fyrir skrif sín um
myndlist.
Sýning Markúsar og Gunnþóru
er vandlega hugsuð frá upphafi til
enda, listaverk út af fyrir sig. Við-
fangið er vítt og breitt og það end-
urspeglast í verkunum. Ferðalög,
ferðalöngun, saga ferðalaga, túr-
ismi og landslag, auk ótal spurn-
inga um stað, staðsetningu, ein-
kenni lands, náttúruupplifun og
fleira. Verk listamanna eru valin
með tilliti til umfjöllunarefn-
is og eru blanda af þegar tilbún-
um verkum og listaverkum unnin
fyrir stað og stund. Vinnubrögð
af þessum toga hafa löngum legið
undir ámæli, sýningarstjórar verið
sakaðir um að setja list í nýtt sam-
hengi eftir eigin hentugleikum og
virða að vettugi markmið lista-
manna. Slík gagnrýni tilheyr-
ir þó mestmegnis liðinni tíð sem
betur fer og sýningarstjórastarfið
er loks að vinna sér sess hérlend-
is, áratugum á eftir sambærilegri
þróun á alþjóðavettvangi. Ekki
má gleyma því að sýningarstjórar
hafa í starfi sínu á stundum vald-
ið straumhvörfum í myndlist og í
víðara samhengi.
Án áfanga er margsaga, birtir
enga endanlega mynd, gerir ekki
tæmandi úttekt, hefur enga eina
skoðun. Hér fá listaverkin að eiga
síðasta orðið, milli þeirra, áhorf-
enda og sýningarstjóra skapast
frjótt og lifandi samtal án orða,
eins og myndlistinni einni er
lagið.
Ekki er hægt að segja að eitt-
hvað eitt standi upp úr, hér eru
mörg flott verk. Þó má nefna Les-
bókarröð Roni Horn og ótrúlega
heillandi og margræðar ljós-
myndir af Jökulsárlóni eftir Walt-
er Niedermayr. Verk Kristins E.
Hrafnssonar er sláandi og eftir-
minnilegt, hittir einhvern veginn
beint inn í samtímann. Sömuleið-
is rýmisskúlptúr Ingu Þóreyjar
Jóhannsdóttur og veggverk Har-
aldar Jónssonar, Göng. Og þannig
mætti áfram telja.
Auðvitað hefði mátt velja önnur
verk, aðra listamenn. Sú spurn-
ing vaknar t.d. hvort eðlilegt hefði
verið að sýna fleiri listaverk sem
fela í sér ádeilu á stóriðju og eða
baráttu fyrir ósnortinni náttúru,
vegna þess hversu áberandi þemað
er í samtímanum. Óbein ádeila
getur þó allt eins verið áleitnari
og lifað lengur. Kynjahlutfallið
er konum óþarflega óhagstætt og
vekur upp spurningar, lauslega talið
átta konur og sextán karlmenn, að
tilraunahópnum slepptum.
Það telst kostur sýningarinnar
að sýna hófsemi og stillingu í vali
listaverka, finna þeim öllum góðan
samastað í safninu og skapa jafn-
framt frjótt andrúmsloft sem leið-
ir áhorfandann inn á við sem út í
heim. Ragna Sigurðardóttir
Niðurstaða: Markús Þór Andrésson
og Gunnþóra Ólafsdóttir, auk fjölda
annarra listamanna, eiga heiður skil-
inn fyrir úthugsaða og frjóa sýningu.
Áhorfendur halda í sitt eigið ferðalag
þar sem þeir kynnast úrvalsverkum
fjölmargra listamanna og sjá landið
okkar og hugmyndir um ferðalög í
nýju ljósi.
Margbrotið og heillandi ferðalag
Myndlist ★★★★★
Án áfangastaðar
Samsýning í Listasafni Reykjavíkur
– Hafnarhúsi. Höfundar: Markús
Þór Andrésson og Gunnþóra
Ólafsdóttir
Opnunartónleikar Myrkra músík-
daga byrjuðu ekki vel. Steinunn
Birna Ragnarsdóttir, tónlistar-
stjóri Hörpu, og Árni Heimir
Ingólfsson, tónlistarstjóri Sin-
fóníunnar, tilkynntu sigurvegar-
ann í keppni um nýtt tónverk á
opnunartónleikunum í vor. Hljóð-
kerfið var svo lágt stillt að erf-
itt var að heyra hvað þau sögðu.
Fjölmargir tónleikagestir æptu
„hærra!“ en það skilaði litlu. Sem
betur fer heyrðist nafn sigurveg-
arans, en það var Haukur Tómas-
son. Ég óska honum til hamingju
með sigurinn.
Ekki aðeins var hljóðkerfið lágt
stillt, heldur var líka óvanalega
dimmt í salnum. Það var ógern-
ingur að sjá hvað stóð í tónleika-
skránni. Að öðru leyti var myrkrið
þægilegt, og hæfði fremur þung-
búinni tónlistinni ágætlega.
Tónleikarnir hófust á öldungis
frábærri tónsmíð eftir Ligeti. Hún
einkenndist af kyrrstöðu. Langir
hljómaklasar voru búnir til úr
iðandi tónahendingum sem voru
svo þéttofnar að klasarnir virk-
uðu grafkyrrir. Tónlistin var þó
ekki einhver ládeyða, þvert á móti
reis hún upp í magnaða hápunkta
sem voru staðsettir á hárréttum
augnablikum.
Daníel Bjarnason stjórnaði
hljómsveitinni og gerði það með
glæsibrag. Ligeti var svo vel mót-
aður að maður gersamlega gleymdi
sér. Fíngerður hljómavefurinn var
áferðarfagur og seiðandi fram-
vindan snilldarlega útfærð.
Hin verkin á dagskránni lofuðu
góðu. Fyrstur var klarinettukons-
ert eftir Steingrím Rohloff. Rúnar
Óskarsson lék einkar vel á klarin-
ettuna, kryddaði leik sinn fallegum
blæbrigðum sem drógu fram dýpri
merkingu tónlistarinnar. Konsert-
inn var þó ekki sérlega auðveldur
áheyrnar, hann var býsna langur
og tónmálið óaðgengilegt. Engu
að síður var byggingin á verkinu
glæsileg, atburðarásin flott og
hljómaáferðin prýðilega ígrunduð.
Greinilegt er að Steingrímur kann
að skrifa fyrir hljómsveit.
Konsert 04 eftir Finn Torfa
Stefánsson var næstur á dagskrá.
Konsertinn er í tveimur köflum
en hér var aðeins fluttur annar
þeirra. Það verður að teljast und-
arlegt. Sigrún Eðvaldsdóttir fiðlu-
leikari var sólisti og spilaði af
innlifun. Tónlistin var róleg og
einmanalegur fiðlueinleikurinn
myndaði sannfærandi mótvægi við
fremur þétta hljómsveitarröddina.
Útkoman var ekki sérlega rismik-
il, en hún var samt áheyrileg og
rann ljúflega niður. Gaman væri
að heyra báða kafla konsertsins!
Síðasta tónsmíðin á tónleikun-
um, Birting, var eftir stjórnand-
ann, Daníel. Það var áhrifamikil
tónlist. Hægferðug framvindan
kom stöðugt á óvart, alls konar
spennandi hljóðfærasamsetn-
ingar og áleitnar tónahendingar
sköpuðu dáleiðandi andrúmsloft
sem var ótrúlega mergjað. Hljóm-
sveitarhljómurinn var vel mótað-
ur og greinilega nostrað við hvert
smáatriði. Til dæmis var gaman að
heyra spilað bæði á flygil og píanó,
en hljómurinn úr þessum tveimur
hljóðfærum gefur mismunandi
áferð. Margt fleira væri hægt að
tíunda sem hér er ekki pláss fyrir.
En í það heila var tignarleiki yfir
tónlistinni, hugsun og innsæi sem
maður verður ekki oft var við.
Óhætt er að fullyrða að Daníel
er eitt af okkar frambærilegustu
tónskáldum.
Jónas Sen
Niðurstaða: Glæsilegir tónleikar;
góður flutningur og flott tónverk.
Ljós í myrkri
DANÍEL BJARNASON
Tónlist ★★★★
Opnunartónleikar Myrkra
músíkdaga
Verk eftir Ligeti, Steingrím Rohloff,
Finn Torfa Stefánsson og Daníel
Bjarnason
Norskir fjölmiðlar hafa birt opið
bréf undirritað af 61 íslenskum
rithöfundi til stuðnings starfs-
systur þeirra Mariu Amelie.
Amelie, sem heitir réttu nafni
Madina Salamova, er flóttamaður
frá Rússlandi og var á dögunum
vísað úr landi í Noregi.
Í bréfinu fordæma rithöfund-
arnir aðgerðir norsku Útlend-
ingastofnunarinnar og norsku
ríkisstjórnarinnar og krefj-
ast þess að Amelie verði veitt
dvalarleyfi í Noregi.
„Ef yfirvöld og málsvarar
þeirra bera fyrir sig að hér sé
farið að lögum segjum við: Ef
lagabálkurinn sem farið er eftir
er jafn ómannúðlegur og raun
ber vitni á að breyta honum en
ekki fylgja.“
Segir í bréfinu að ef Amelie
hefði ekki tjáð sig opinberlega
um afleiðingar kerfisins hefði
hún verið látin í friði. „Skömm
sé þeim sem hafa það í valdi sínu
að hindra þessa siðlausu fram-
kvæmd en hafast ekki að.“
Í hópi þeirra sem skrifa undir
bréfið eru Andri Snær Magnason,
Auður Jónsdóttir, Ármann Jak-
obsson, Eiríkur Örn Norðdahl,
Eiríkur Guðmundsson, Guðrún
Eva Mínervudóttir, Hallgrímur
Helgason, Haukur Már Helgason,
Hugrún Hrönn Kristjánsdóttir,
Kristín Eiríksdóttir, Kristín
Steinsdóttir. Kristín Svava Tóm-
asdóttir, Pétur Gunnarsson, Sig-
urður Pálsson, Steinar Bragi,
Þórarinn Eldjárn, Þórdís Gísla-
dóttir, Þórunn Erlu- Valdimars-
dóttir og Ævar Örn Jósepsson.
Íslenskir rithöfundar
styðja Mariu Amelie
Leikfélag Reykjavíkur efnir til
málþings um Guðmund Kamban
leikskáld (1880-1945) í Borgar-
leikhúsinu í dag. Dagskráin hefst
á Nýja sviðinu klukkan 11 með
leiklestri á atriðum úr Öræfa-
stjörnum. Að því loknu verða
sýnd brot úr kvikmyndunum
Hadda Padda og Hús í svefni og
einnig upptökum Sjónvarpsins á
Skálholti og Vér morðingjar.
Að loknum leiklestri og mynda-
sýningum hefst málþing um leik-
skáldið og erindi hans við nútím-
ann. Þar flytja erindi Sveinn
Einarsson, fyrrverandi þjóðleik-
hússtjóri, Hlín Agnarsdóttir, rit-
höfundur og leikstjóri, og Frið-
geir Einarsson leikhúsmaður.
Að lokum verða pallborðsum-
ræður þar sem Þórunn Sigurðar-
dóttir og Magnús Þór Þorbergs-
son leggja orð í belg. Stjórnandi
pallborðsins er Karl Blöndal.
Málþing um
Kamban
VÍSAÐ BURT Maria Amelie vísað um
borð í farþegaflugvél sem flutti hana til
Rússlands á dögunum.
GUÐBERGUR SEGIR FRÁ Guðbergur Bergsson lóðsar gesti um sýninguna Ásýnd landsins: Vatnið, jörðin, hafið og himinninn
á Gerðarsafni í Kópavogi klukkan 15 á sunnudag. Á sýningunni eru málverk, vatnslitamyndir, teikningar og ljósmyndaverk eftir Daða
Guðbjörnsson, Gunnlaug Scheving, Jóhannes S. Kjarval, Rúrí og Vilhjálm Þorberg Bergsson.
Súldarsker
AUKASÝNING 29. JAN!
Nýtt leikverk eftir Sölku Guðmundsdóttur
Uppistand í Tjörninni
NÆSTA VIKA:
Miðasalan er opin
virka daga frá kl. 13-15
Sími: 527 2100
www.tjarnarbio.is Tjarnargötu 12 - 101 Reykjavík
Út í kött Barnaleikhús
Sveinn Skotti
LJÓÐLEIKUR OG SÖNGDANS
30
28
3. FEB
KAFFIHÚSIÐ MAJÓNES OPIÐ ALLA DAGA VIKUNNAR
29 30
Örfá sæti laus