Fréttablaðið - 29.01.2011, Side 66
42 29. janúar 2011 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
HNEFALEIKAKAPPINN Mike Tyson hefur nú eignast átta börn
alls. Lítill drengur bættist í hópinn á þriðjudaginn. Þetta er annað barn
Tyson og konu hans, Lakihu Spicer, en þau giftu sig árið 2009.
Slest hefur upp á vinskap
leikaranna Robert Downey
Jr. og Jude Law en þeir
urðu miklir mátar við tökur
á kvikmyndinni Sherlock
Holmes. Ástæða ósætt-
isins mun vera vin-
átta Downey Jr.
við leikarann Mel
Gibson.
Robert Dow-
ney Jr. hefur
verið náinn vinur
Gibsons í mörg
ár og mun sá síð-
arnefndi hafa
staðið þétt við
bakið á Downey
Jr. þegar hann átti
við áfengisvanda
að stríða. Downey
Jr. hefur launað vini
sínum greiðann með
því að styðja hann í
gegnum skilnað hans
við rússnesku tónlistarkonuna
Oksönu.
„Jude finnst hegðun Mels
vera óviðunandi og honum
finnst ekki að fólk eigi að
styðja við bakið á manni
sem hagar sér eins og
Mel hefur gert. Jude
finnst sem Mel hafi
fengið næg tækifæri
til að bæta sig og
það pirrar hann að
Robert skuli halda
vináttunni við
svona mann,“ var
haft eftir heimild-
armanni. Law og
Downey Jr. vinna
nú saman að Sher-
lock Holmes 2 og er
stirt á milli þeirra á
tökustað. „Þeir voru
mjög góðir vinir en nú
talast þeir varla við á
milli taka.“
ÓSÁTTIR Robert Downey Jr. og Jude
Law eru ekki jafn góðir vinir og þeir
voru. Ástæðan fyrir því er vinátta þess
fyrrnefnda við Mel Gibson.
NORDICPHOTOS/GETTY
Hljómsveitin Culture Club, sem
gerði það gott á níunda áratugn-
um, ætlar að koma saman aftur
á næsta ári í tilefni þrjátíu ára
afmælis síns. Ný plata er fyrir-
huguð og tónleikaferð um heim-
inn. „Við ætlum að koma aftur
saman,“ staðfesti söngvarinn Boy
George, sem heitir réttu nafni
George O´Dowd. Hann gefur á
næstunni út sólóplötu en lítur á
hana sem upphitun fyrir endur-
komu Culture Club. Hljómsveitin
ætlaði í tónleikaferð árið 2006 en
George neitaði að ganga til liðs
við félaga sína og ekkert varð úr
ferðinni. Á meðal vinsælustu laga
Culture Club eru Do You Really
Want to Hurt Me og Karma
Chameleon.
Endurkoma
Culture Club
CULTURE CLUB Hljómsveitin kemur aftur
saman á næsta ári.
Söngkonan Katy Perry er nú í
óðaönn að búa sig undir tónleika-
ferðalag sem hefst 20. febrúar í
Portúgal.
„Ég þarf að fylgja ströngu
mataræði þess dagana, sem er
alveg ömurlegt. Á sunnudögum
má ég þó borða það sem ég vil og
þá fæ ég mér oftast hamborgara,“
sagði söngkonan. Hamborgaraátið
ætti þó ekki að koma að sök því
stúlkan fær ekki frí frá æfingum
á sunnudögum. „Ég þarf að æfa
allar dansrútínurnar og einnig
þjálfa röddina. Þegar ég kem
heim neyðist ég svo til þess að
fara í gegnum vefpóstinn minn.
Mér líður eins og ég sé að und-
irbúa mig fyrir
Ólympíuleik-
ana.“
Dugleg Perry
Leikarinn Ryan Phillippe hefur
átt í sambandi við leikkonuna
ungu Amöndu Seyfried undan-
farna þrjá mánuði. Samkvæmt
heimildarmönnum er parið
afskaplega hamingjusamt og vill
helst eyða öllum sínum stundum
saman heima hjá Phillippe.
„Þau eyða miklum tíma heima
hjá Ryan, elda saman og horfa á
kvikmyndir. Þeim
líður mjög vel
saman og Ryan
hefur heillað hana
upp úr skónum,“
var haft eftir heim-
ildarmanni. Næsta
skref í sam-
bandinu er
að kynna
Seyfried
fyrir börn-
um Phill-
ippe sem
hann á með
fyrrver-
andi eigin-
konu sinni,
leikkon-
unni Reese
Wither-
spoon.
Hamingju-
söm saman
Þriðja plata hljómsveitarinnar
Þrjú á palli hefur verið endurút-
gefin á geisladiski. Platan kom
fyrst út í september 1971 og
fagnar því fjörutíu ára afmæli á
þessu ári. Platan var gríðarlega
vinsæl á sínum tíma. Á henni
taka meðlimir fyrir erlend þjóð-
lög við texta Jónasar Árnasonar,
þar á meðal lögin Lífið er lotterí
og Dirrindí, sem hafa lifað með
þjóðinni og eru fyrir löngu orðin
sígild. Einnig er á plötunni lag
sem á vel við þessa dagana, eða
Þorrablót.
Þrjú á palli
endurútgefin
ÞRJÚ Á PALLI Þriðja plata hljómsveitar-
innar hefur verið endurútgefin.
HARÐDUGLEG Söng-
konan Katy Perry er
dugleg að búa sig undir
komandi tónleikaferða-
lag. NORDICPHOTOS/GETTY
Vinir sundurorða vegna Gibsons
MEL GIBSON
Þriðja umferðin í undan-
keppni Eurovision-keppn-
innar fer fram í Sjón-
varpinu í kvöld. Í síðustu
umferð fóru lögin Nótt og
Eldgos áfram, þrátt fyrir
að hafa ekki fengið flest-
ar stjörnur hjá álitsgjöfum
Fréttablaðsins, þeim Kam-
illu Ingibergsdóttur, Ragn-
heiði Mjöll Baldursdóttur
og Herði Sveinssyni. Í þetta
sinn komast lögin „Aftur
heim“ og „Ég lofa“ áfram
í úrslitin ef stjörnugjöf
þeirra fær að ráða.
Hrífast af lagi Sjonna Brink
R: Ragnheiður
Mjöll Baldurs-
dóttir, útvarps-
kona á FM 957.
K: Kamilla Ingi-
bergsdóttir,
verkefnastjóri
hjá ÚTÓN og
verkefnastjóri
markaðsmála
hjá Iceland
Airwaves.
H: Hörður Sveins-
son, ljósmynd-
ari og tónlistar-
áhugamaður.
KYNNA EUROVISION Ragnhildur Stein-
unn og Guðmundur Gunnarsson eru
kynnar Eurovision-keppninnar.
Sáluhjálp
(Flytjandi: Buff)
K: „Er þetta úr söngleiknum Sáluhjálp? Ég myndi fara að
sjá hann en kannski ekki gefa þessu lagi atkvæði mitt í
Eurovision.“ ★★
R: „Ágætis lag með frábærum listamönnum. Spurning
hvort Pétur semji þetta lag til Elísabetar?“ Eitthvað af
þessum lögum þurfti að fá þessa einu stjörnu frá mér.
★
H: „Byrjar ekki vel í þetta skipti. Rólegheitapopp sem þó hljómar aðeins
betur við aðra hlustun.“ ★★
Ég lofa
(Flytjandi: Jógvan Hansen)
K: „Það besta við þetta lag er mjúki hreimurinn hans
Jógvans, er að spá í að taka hann upp sjálf. Fínt popp-
lag og ég held það komist áfram.“ ★★★
R: „Kunnugleg ballaða sem fellur mér ágætlega í geð.
Ég lofa því samt ekki áfram í úrslitin.“ ★★
H: „Ég hélt með Jógvan í úrslitunum í fyrra og varð smá
fúll fyrir hönd Færeyja þegar hann komst ekki áfram.
Þetta árið er hann ekki með alveg jafn gott lag en skítsæmilegt samt. ★★
Ég trúi á betra líf
(Flytjandi: Magni Ásgeirsson)
K: „Ég flýg, á vonarvængjum svíf, því ég trúi á betra líf.“
Ég trúi að þetta sé hugsanlega væmnasti texti sem ég
hef heyrt. Ég man ekki einu sinni hvernig lagið er, ég var
svo upptekin við að hlusta á textann.“ ★
R: „Mikið og stórt lag sem greip mig strax. Magni „magn-
aði“ klikkar ekkert á smáatriðunum og færir okkur þetta
flotta lag með góðri trú.“ ★★★★
H: „Blarg! Versta lagið þessa vikuna. Algjör fýlubomba.“ ★
Morgunsól
(Flytjandi: Georg Alexander Valgeirsson)
K: „Gaman að sjá nýtt andlit í Euroklúbbnum. Finnst
samt svolítið eins og þetta sé lag frá 1988, sem er
kannski bara rosa fínt í þessu Eurovision-samhengi.“
★★
R: „Afslappað og yfirvegað lag sem fær mann til að
gleyma stað og stund í „smá stund“.“ ★★★
H: „Næstversta lagið. Ég á í mestu erfiðleikum með að
finna eitthvað jákvætt að segja þannig að ég sleppi því bara.“ ★
Aftur heim
(Flytjendur: Vinir Sigurjóns Brink)
K: „Hvað er annað hægt að segja en hvíl í friði, Sigurjón
Brink.“ ★★★★
R: „Hresst og skemmtilegt lag, án efa langbesta lagið
í keppninni. Spennandi að heyra hvernig strákarn-
ir eiga eftir að skila laginu frá sér fyrir hönd Sjonna.“
★★★★★
H: „Feelgood-popp sem á eftir að virka vel í landann,
ég spái þessu áfram.“ ★★★