Fréttablaðið - 29.01.2011, Side 68

Fréttablaðið - 29.01.2011, Side 68
44 29. janúar 2011 LAUGARDAGUR Vinnie Paul, trommari hinnar sálugu þungarokkshljómsveitar Pantera, segir endurkomu hljómsveitarinnar ekki á dagskránni. Dimebag Darrell, gítarleikari Pantera, var skotinn til bana á sviði í desember árið 2004. Paul segir eftirlifandi meðlimi hljómsveitarinn- ar ekki ætla að koma saman á ný. „Að stinga upp á því að við komum saman er vanvirðing að mínu mati,“ sagði Paul í viðtali við rússnesku vefsíðuna Darkside. Hann bætti við að hljómsveitin myndi aldrei spila saman án Dimebags. „Dime var svo stór hluti af því sem við vorum að gera. Það væri fáránlegt að svo mikið sem hugleiða endurkomu. Hann skildi eftir sig ótrúlega arfleifð. Hún er falleg og einstök og ég ætla að halda henni þannig.“ Meðlimir Pantera stóðu í opinberum rifrildum þegar Dimebag var skotinn. Söngvarinn Phil Anselmo deildi þá við bræðurna Dimebag og Vinnie Paul og höfðu þeir ekki sæst áður en Dimebag var skotinn. Pantera kemur aldrei saman aftur FALLEG ARFLEIFÐ Vinnie Paul segir arfleifð bróður síns einstaka og fallega. Bandaríski leikarinn Charl- ie Sheen er hvergi af baki dottinn þrátt fyrir að Ricky Gervais hafi gert stólpagrín að honum á Golden Globe. Hann var færður á sjúkra- hús eftir síðasta partí sitt. Óhóflegt líferni Charlie Sheen er á allra vörum í Hollywood um þessar mundir. Leikarinn, sem er sá launahæsti í bandarísku sjón- varpi, var fluttur á sjúkrahús vegna magaverkja á þriðjudag- inn eftir að hafa skemmt sér sam- fleytt í 36 klukkustundir ásamt nokkrum vel völdum klámmynda- leikkonum. Fréttasíðan TMZ.com greindi frá því að Sheen hefði látið færa sér fulla skjalatösku af kóka- íni í partíið og klámmyndastjarnan Bree Olson staðfesti það nokkurn veginn í samtali við TMZ en hún og Sheen hafa verið að stinga saman nefjum. Vinir leikarans hafa mikl- ar áhyggjur af honum en hann er sagður ætla að mæta galvaskur á tökustað sjónvarpsþáttanna Two and a Half Men á þriðjudag. Og ætlar víst ekki í meðferð. Sheen, sem naut mikilla vin- sælda á níunda áratug síðustu aldar og lék meðal annars í stórmyndun- um Platoon og Wall Street, hefur átt í erfiðleikum með eiturlyfja- og áfengisfíkn sína. Hann hefur lamið eiginkonur sínar, læst fullorðins- leikkonur inni á klósetti á hóteli og staðið fyrir maraþondrykkju á heimili sínu og í Las Vegas. Sam- kvæmt heimildum TMZ neydd- ist starfsfólk hans þó til að grípa í taumana núna þegar það frétti af nýjustu áætlunum hans, Sheen hugðist nefnilega leigja glæsi- lega villu í sömu götu og hann býr undir nokkrar klámmyndaleikkon- ur og búa þannig til „klámmynda- fjölskyldu“ eða kvennabúr eins og það hefði einhvern tímann kallast. Bandarískir fjölmiðlar bíða eflaust spenntir eftir því hvað þessi helgi ber í skauti sér hjá Charlie Sheen. freyrgigja@frettabladid.is Charlie Sheen reynir að koma sér upp kvennabúri SUKK OG SVÍNARÍ Charlie Sheen eyðir flestum sínum frístundum í klámmyndaleik- konur, áfengi og eiturlyf. Hann ætlar ekki í meðferð og hyggst mæta á tökustað Two and a Half Men á þriðjudag eins og lög gera ráð fyrir. NORDICPHOTOS/GETTY Bandaríska söngkonan Nicki Minaj var stödd í London nú í vikunni og á meðan á heimsókninni stóð veitti hún dagblaðinu The Sun viðtal. Þar kemur meðal annars fram að faðir hennar hafi verið mjög ofbeldisfull- ur og lifði Minaj í stöðugum ótta. Faðir Minaj var eiturlyfjafíkill sem var sjaldan til staðar fyrir söngkonuna sem barn. Hún segir hann jafnframt hafa verið mjög ofbeldisfullan og beitt móður hennar miklu ofbeldi. „Öll barn- æska mín var lituð af því að ég var stöðugt hrædd um að faðir minn mundi einn daginn myrða móður mína. Þetta voru mjög erfiðir tímar og mér þótti hart að eiga foreldri sem var á valdi fíkniefna og áfeng- is. Faðir minn var mjög ofbeld- isfullur, bæði andlega og líkam- lega,“ sagði söngkonan. Hún sagði ofbeldið hafa hætt þegar eldri bróð- ir hennar komst til manns og hélt verndarhendi yfir henni og móður hennar. Hélt að pabbi myndi myrða mömmu mína ERFIÐ BARNÆSKA Söngkonan Nicki Minaj átti erfiða barnæsku. Faðir hennar var fíkill sem beitti fjölskylduna ofbeldi. NORDICPHOTOS/GETTY DIMEBAG DARRELL G æ ð i H r e i n l e i k i V i r k n i G Ú S T A V S S O N B J Ö R G V I N P Á L L „NOW eru klárlega fæðubótarefni í landsl iðsklassa fyrir al la íþróttamenn. Mæli sterklega með þessum vörum fyrir þá sem leita eftir styrk, úthaldi og snerpu -þær virka vel fyrir mig.“ NOW virkar vel fyrir mig! NOW - Fullkomin l ína af íþróttafæðubótarefnum – fáanleg í verslunum um allt land Meðal fyrirlesara má nefna Lee Hibbard, verkefnisstjóra hjá Evrópuráð- inu, sem mun fjalla um þróun og stefnumótun á Internetinu. Í málstofum mun m.a. verða fjallað um fjölmarga fleti netnotkunar svo sem: netnotkun barna og unglinga, samspil mannréttinda og netnotkunar, stafrænt aðgengi mennta- og menningarefnis, uppbyggingu nýrra atvinnugreina á Internetinu og álitaefni varðandi öryggi fjarskiptainnviða á Íslandi. Mennta- og menningarmálaráðuneytið, innanríkisráðuneytið og SAFT standa fyrir ráðstefnu um Internetið á alþjóðlega netöryggis- daginn, þann 8. febrúar 2011, á Hilton hóteli Nordica. Ekkert þátttökugjald Rafræn skráning á http://www.saft.is/skraning/ Nánar auglýst á www.saft.is Áhugasamir um þátttöku í málstofum sendi tölvupóst á saft@saft.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.