Fréttablaðið - 29.01.2011, Síða 78

Fréttablaðið - 29.01.2011, Síða 78
54 29. janúar 2011 LAUGARDAGUR Ari Helgason er stofnandi fyrir- tækisins Fabricly sem er ætlað að aðstoða fatahönnuði við að koma fatalínu sinni markað. Ari er búsettur í New York og stofnaði Fabricly í byrjun síð- asta árs. Móttökurnar hafa að hans sögn verið mjög góðar bæði meðal hönnuða og kaupenda enda fer fyrirtækið nýjar leið- ir í framleiðslu og sölu á tísku- fatnaði. Tímaritið Women‘s Wear Daily hefur meðal annars fjallað um starfsemi Fabricly en Anna Wintour, ritstjóri bandaríska Vogue, er sögð lesa það blað reglu- lega til að fylgjast með nýjungum innan tískuheimsins. „Fabricly hjálpar fatahönnuðum við að koma línum sínum á markað. Þeir senda okkur hugmyndir að línum og við borgum fyrir prótótýpur, fram- leiðslu, myndatöku og fleira. Fötin eru síðan seld á vefsíðunni okkar og seinna munum við einnig selja í verslanir.” Samstarfið er því svipað og milli plötufyrirtækja og tónlistarfólks. Hugmyndina að Fabricly segir Ari hafa kviknað í kjölfar fyr- irtækis sem hann hafði stofnað ásamt bróður sínum, fatahönnuð- inum Ingvari Helgasyni. Fyrir- tækið selur hugbúnað sem hjálpar litlum tískufyrirtækjum með sölu og flýtir fyrir framleiðslu. Í gegn- um það kynntist Ari fjölda hönn- uða sem áttu í miklum vandræð- um bæði með framleiðslu og að koma vörum sínum á markað. „Við sáum tækifæri í því að fá kaupend- ur til að aðstoða okkur við valið á flíkum og koma þannig með vöru sem fólk vill kaupa. Við horfðum líka á hvernig fyrirtæki eins og Zara geta framleitt föt á fáeinum vikum og komist hjá því að fram- leiða of mikið af vöru, sem selst ekki, með því að framleiða í minni skömmtum.” Vefsíða Fabricly er www.fabricly.com. - sm PERSÓNAN Jón Atli Helgason Aldur: 30. Starf: Athafna- skáld. Fjölskylda: Eins „single“ og mögulegt er. Foreldrar: Val- dís Leifsdóttir, starfar í apóteki, og Oddur Helgi Jónsson, starfs- maður Toyota. Þau eru best í heimi. Búseta: CPH. Stjörnumerki: Tvíburi. Plötusnúðurinn Jón Atli Helgason, Hair- doctor, flytur til Danmerkur í næstu viku. „Sjonni var mjög spenntur fyrir því að taka þátt, hann hafði lagt mikla vinnu í lagið sitt ásamt Vigni Snæ. Hann hlakk- aði mikið til að keppa með það,“ segir Hreimur Örn Heimisson tónlistarmaður. Eins og fram hefur komið lést tónlistamaðurinn Sigurjón Brink langt fyrir aldur fram á heimili sínu í síðustu viku. Hann hafði komið lagi að í Söngvakeppni Sjónvarpsins og um tíma ríkti óvissa um hvort lagið, sem kall- ast Aftur heim, yrði flutt í keppn- inni. Að endingu tók fjölskylda Sigurjóns þá ákvörðun að halda laginu inni í keppninni og keppir það í kvöld. Sex nánir vinir Sig- urjóns munu flytja það: Hreimur, Vignir Snær Vigfússon, Gunnar Ólason, Benedikt Brynleifsson, Pálmi Sigurhjartarson og Matthías Matthíasson. Lagið sjálft er eftir Sigurjón en textann gerði eiginkona hans, Þór- unn Erna Clausen. Hreimur segir að Þórunn hafi hringt í hvern og einn þeirra og spurt hvort þeir treystu sér til að flytja lagið í keppninni. Hreimur var aldrei í neinum vafa hvert svar hans væri. „Allar vanga- veltur og pælingar um keppni eru okkur víðsfjarri. Við viljum bara heiðra minningu Sigurjóns með þessum hætti og flytja það eins vel og við getum. Sigurjón batt okkur alla saman, hann var vinur svo margra og miðjan í þessum hópi. Við lítum allir svo á að enginn komi í staðinn fyrir Sigurjón, við erum allir vinir hans og viljum halda merki hans á lofti. Svo sjáum við bara til, það er enginn með neina háleita drauma.“ Hreimur segir síðustu tvær vikur hafa verið ákaflega erfið- ar, þær hafi liðið eins og tvö ár. „Þetta hafa verið þung spor og jarðarförin hans var einn af þess- um áföngum til að hjálpa okkur að klára þetta og gera andlát hans upp. Við höfum oft grínast með það tónlistarmennirnir að við horfum ekkert of mikið til baka því við erum svo uppteknir af því sem er að gerast á morgun. Þessar tvær vikur hafa kennt manni að maður á að njóta þess að vera til og for- gangsraða rétt. Sigurjón var með sína forgangsröðun á hreinu, hann fékk bara ekki tíma til að klára sitt.“ freyrgigja@frettabladid.is HREIMUR ÖRN HEIMISSON: VIÐ HEIÐRUM MINNINGU HANS Í KVÖLD Sjonni batt okkur alla saman Í MINNINGU SIGURJÓNS Sex vinir Sigurjóns ætla að flytja lagið hans, Aftur heim, sem eiginkona hans, Þórunn Erna Clausen, gerði textann við. Þetta eru þeir Hreimur Örn, Vignir Snær, Benedikt Brynleifsson, Matthías Matthíasson, Gunnar Ólason og Pálmi Sigurhjartarson. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Íslendingar eru svo gegnsósa af bandarískri og breskri tónlist að það er orðið tímabært að kynna fyrir þeim nýja tónlist. Og hvar er þá betra að byrja en í nágranna- löndunum? Þar er alveg heill hell- ingur í gangi,“ segir Gunnhildur Gunnarsdóttir, einn af forsvars- mönnum nýrrar tónlistarhátíð- ar sem hefur verið gefið nafnið Reykjavík-Bergen-Nuuk. Eins og nafngiftin gefur til kynna munu tónlistarmenn frá þessum þrem- ur borgum spila en ráðgert er að hátíðin standi yfir frá 25.-27. febrú- ar. Heimavöllur hennar verður í nýju leikhúsi úti á Seltjarnarnesi, Norðurpólnum. Gunnhildur, sem er fram- kvæmdastjóri leikhópsins Vestur- ports, segir að draumurinn sé auð- vitað að þetta verði að árvissum viðburði, tónlistarhátíðin stækki með hverju ári og fleiri norrænar borgir bætist í hópinn. „Við erum með styrk frá Nor- ræna menningarsjóðnum og erum að vona að þetta verði til þess að opna augu fólks fyrir því sem er að gerast í næsta nágrenni við okkur.“ Sjálf segist Gunnhildur hafa til að mynda verið með efasemdir gagn- vart grænlenskum tónlistarmönn- um en þegar hún fletti einni hljóm- sveitinni upp á YouTube komst hún að raun um að áhyggjur henn- ar voru algjörlega óþarfar. Þetta voru bara hennar eigin fordóm- ar. „Þetta voru bara sætir strák- ar með húðflúr að spila virkilega flotta rokktónlist.“ Að sögn Gunn- hildar er enn ekki staðfest hvaða íslensku sveitir munu spila en það mun skýrast á næstunni. - fgg Ný norræn tónlistarhátíð FRUMKVÖÐULL Ari Helgason er stofn- andi fyrirtækisins Fabricly sem aðstoðar hönnuði við að koma línum sínum á markað. NÁGRANNATÓNLIST Gunnhildur Gunn- arsdóttir er ein þeirra sem standa fyrir nýrri norrænni tónlistarhátíð í Norður- pólnum á Seltjarnarnesi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Vekur athygli tískuheimsins Það verður mikið hlegið í íslensk- um kvikmyndahúsum í mars því þá verða tvær íslenskar gaman- myndir frumsýndar. Myndin Okkar eigin Osló eftir Reynir Lyngdal, þar sem Þorsteinn Guðmundsson og Brynhildur Guðjónsdóttir leika aðalhlutverkin, ríður á vaðið. Rúmum tveim- ur vikum seinna verður síðan kvik- mynd Ólafs Jóhann- essonar, Kurteist fólk, frumsýnd en það er fyrsta kvikmynd Stefáns Karls Stefánssonar í aðalhlutverki. Og meira af íslenskum kvikmynd- um því heimildarmyndin Feath- ered Cocaine eftir Örn Marinó Arnarson og Þorkel Harðarson fær frábæra dóma í bandarísku kvikmyndabiblíunni Variety. Þar er því spáð að myndin eigi eftir að vekja mikið umtal hvar sem hún verði sýnd og dreifingarfyrirtækjum bent á að hún geti gert góða hluti í almennum sýningum. Gagnrýnandi NBC var sömuleiðis mjög hrifinn af myndinni en hún fjallar um fálkasölu í Mið-Austurlöndum og bein tengsl hennar við hryðjuverka- samtök. - fgg FRÉTTIR AF FÓLKI Lau 29.1. Kl. 19:00 Fös 4.2. Kl. 19:00 Lau 5.2. Kl. 19:00 Mið 9.2. Kl. 19:00 Fös 18.2. Kl. 19:00 Lau 19.2. Kl. 19:00 Mið 2.3. Kl. 19:00 Mið 9.3. Kl. 19:00 Lau 12.3. Kl. 19:00 Fim 17.3. Kl. 19:00 Sun 30.1. Kl. 13:00 Sun 30.1. Kl. 15:00 Allra síð.sýn. U Fíasól (Kúlan) Íslandsklukkan (Stóra sviðið) Gerpla (Stóra sviðið) Ö Sun 6.3. Kl. 13:00 Sun 6.3. Kl. 14:30 Sun 13.3. Kl. 13:30 Sun 13.3. Kl. 15:00 Sindri silfurfiskur (Kúlan) Lér konungur (Stóra sviðið) Fim 3.2. Kl. 18:00 Sun 6.2. Kl. 14:00 Sun 6.2. Kl. 17:00 Sun 13.2. Kl. 14:00 Sun 13.2. Kl. 17:00 Sun 20.2. Kl. 14:00 Sun 20.2. Kl. 17:00 Sun 27.2. Kl. 14:00 Sun 27.2. Kl. 17:00 Sun 6.3. Kl. 14:00 Sun 6.3. Kl. 17:00 Sun 13.3. Kl. 14:00 Sun 13.3. Kl. 17:00 Sun 20.3. Kl. 14:00 Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið) U Ö Ö Ö Ö Ö Ö Ö Ö Ö Sun 30.1. Kl. 20:00 Síð.sýn. Fim 10.2. Kl. 20:00 Aukasýning Fös 11.2. Kl. 20:00 Lau 12.2. Kl. 20:00 Fim 17.2. Kl. 20:00 Fös 25.2. Kl. 20:00 Ö Brák (Kúlan) Sun 6.2. Kl. 20:00 Fös 11.2. Kl. 20:00 Lau 12.2. Kl. 20:00 Sun 13.2. Kl. 20:00 Ö Ö Ö Ö Ö U Ö Ö U U U Ö U FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MEIRI SKEMMTUN Meiri Vísir.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.