Fréttablaðið - 15.02.2011, Side 4
4 15. febrúar 2011 ÞRIÐJUDAGUR
SVEITARSTJÓRNIR Mosfellsbær braut
sveitarstjórnarlög með því að taka
við víxlum sem greiðslu fyrir skuld
verktaka og með því að gangast í
sjálfskuldarábyrgð fyrir verk-
takann. Þetta segir í lögfræðiáliti
sem unnið var fyrir bæjarráð.
Mosfellsbær gerði árið 2006 sam-
starfssamning við forvera Helga-
fellsbygginga ehf. um uppbyggingu
í Helgafellslandi. Verktakinn átti
að greiða bænum 700 þúsund krón-
ur fyrir hverja byggða íbúð og átti
að lágmarki að borga fyrir 1.020
íbúðir. Heildargreiðslan átti því að
verða minnst 714 milljóir króna.
Í júlí 2008 höfðu 416 íbúðir
verið seldar og bærinn fengið 130
milljónir króna en 200 milljónir
voru ógreiddar. Þá var samið um
að Helgafellsbyggingar borguðu
eftirstöðvarnar með víxli. Gaf
félagið síðan út 239 milljóna króna
víxil til uppgjörs á 198 milljóna
króna skuld. Í september 2009
var samkomulagið framlengt með
því að bærinn gekk í sjálfskuldar-
ábyrgð fyrir 246 milljóna höfuðstóli
láns Helgafellsbygginga hjá Lands-
bankanum.
Fulltrúi minnhluta Íbúahreyf-
ingarinnar í bæjarstjórn, Jón Jósef
Bjarnason, gagnrýndi þessi vinnu-
brögð. Bæjarráðið fékk Lex til að
meta lögmæti gjörninganna. Telur
lögmannsstofan að í báðum tilvik-
um hafi 6. málsgrein sveitarstjórn-
arlaga verið brotin.
„Samkvæmt ákvæðinu getur
sveitarfélag annars vegar ábyrgst
lán til stofnana og fyrirtækja sem
er að hálfu eða meirihluta í eigu
sveitarfélagsins sjálfs. Hins vegar
getur sveitarfélag veitt einfalda
ábyrgð vegna lánveitinga til fram-
kvæmda á vegum félaga sem
sveitar félagið á og rekur í sam-
vinnu við önnur sveitarfélög eða
aðra opinbera aðila til að veita lög-
bundna þjónustu,“ segir í áliti Lex.
Þá eigi 7. grein laganna ekki við því
gerningarnir falli ekki undir dag-
legan rekstur. Slík ábyrgðarskuld-
binding, sem stofnað sé til í and-
stöðu við lög, sé ógild.
Haraldur Sverrisson bæjarstjóri
er ósammála því að ekki sé um
„daglegan rekstur“ að ræða. „Það
sjónarmið kemur á óvart enda var
full samstaða um það í bæjarráði
og bæjarstjórn á sínum tíma að
afgreiða málið með þessum hætti,“
segir bæjarstjórinn sem kveður
ekki munu reyna á ábyrgð bæjar-
ins fyrr en næsta haust þegar við-
skiptabréfið verður á gjalddaga.
„Mosfellsbær hefur trygg veð
fyrir sinni framsalsábyrgð, ef svo
ólíklega vildi til að ábyrgðin félli
á bæinn. Hins vegar væri æskilegt
að skoða almennt í framhaldinu
hvaða áhrif þetta hefur á aðferðir
sveitarfélaga við skuldainnheimtu,
ef rétt reynist að slíkur gjörningur
flokkist ekki undir daglegan rekst-
ur, því það er ekki einsdæmi í Mos-
fellsbæ að sveitarfélag hafi fram-
selt viðskiptabréf til að breyta því í
handbært fé eins og í þessu tilviki,“
segir bæjarstjórinn. Veðin segir
Haraldur vera í byggingarrétti á
fjölbýlishúsalóð og í 300 fermetra
einbýlishúsi. gar@frettabladid.is
Bæjarábyrgð fyrir verktaka
ólögleg segir í lögfræðiáliti
Lögmannsstofan Lex segir Mosfellsbæ ekki hafa mátt ábyrgjast víxla verktaka né taka á sig sjálfskuldar-
ábyrgð vegna 246 milljóna króna skuldar. Kemur á óvart segir bæjarstjóri því samstaða var í bæjarstjórn.
BÆJARSTJÓRINN OG HELGAFELLSLAND Haraldur Sverrisson bæjarstjóri sést hér með Helgafell í baksýn. Hann er ósammála
niðurstöðu lögfræðiálits sem unnið var fyrir bæjarráð um að viðskiptin við verktaka í Helgafellslandi hafi brotið í bága við lög.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ALÞINGI Vinna starfshóps sem leit-
ar leiða í umboði stjórnvalda til
að draga úr vægi verðtryggingar í
íslensku efnahagslífi er á lokastigi
og lýkur væntanlega fyrir mánaða-
mót.
Þetta kom fram í máli Eyglóar
Harðardóttur Framsóknarflokki,
formanns starfshópsins, á Alþingi
í gær. Í umræðunni kom fram hjá
Lilju Mósesdóttur, Hreyfingunni, að
vegna verðtryggingarinnar hefðu
skuldir heimila hækkað um 500
milljarða króna eftir hrunið.
Árni Páll Árnason viðskiptaráð-
herra sagði ríkisstjórnina stefna að
því að draga úr vægi verðtrygging-
ar en við núverandi aðstæður gæti
afnám verðtryggingar orðið bjarnar-
greiði við húseigendur.
Magnús Orri Schram, Samfylk-
ingu, sagði að stöðugur gjaldmiðill
væri besta leiðin frá verðtryggingu.
Kostnaður Íslendinga við krónuna
komi fram í hærri vöxtum og verð-
tryggingu sem hafi í för með sér
að heildarkostnaður við 20 millj-
óna króna húsnæðislán til 25 ára sé
64,2 milljónir króna hér á landi en
um 31,6 milljón króna í Evrópulandi.
Munurinn jafngildi 105.000 krónum
á mánuði í 25 ár. Gangi Ísland í ESB
fáist strax aukaaðild að myntsam-
starfi með fastgengisstefnu sem losi
heimilin undan vaxtamun og verð-
tryggingu. - pg
Starfshópur um að draga úr vægi verðtryggingar er á lokasprettinum:
Lán hækkuðu um 500 milljarða
EYGLÓ
HARÐARDÓTTIR
LILJA
MÓSESDÓTTIR
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
14°
8°
0°
-2°
7°
8°
-2°
-2°
20°
8°
15°
3°
22°
-7°
8°
14°
-5°Á MORGUN
3-8 m/s, en 8-15
á Vestfjörðum.
FIMMTUDAGUR
Hæg austanátt.
2
4
-1
-2
-1
-1
0
0
3
2
-4
6
7
6
5
5
7
3
13
7
7
8
2
-10
1
2
12
2
4
3
NOKKUÐ RÓLEGT
Það lítur út fyrir hið
sæmilegasta veður
víðast hvar næstu
daga. Fremur hæg-
ur vindur af norð-
austri eða austri.
Úrkoman verður að
mestu bundin við
austanvert landið
en á morgun má
víða gera ráð fyrir
skúrum eða éljum.
Hitinn breytist lítið.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
Meta hlut í Faxaflóahöfnum
Sveitarstjórn Borgarbyggðar ætlar að
fá Atvinnuráðgjöf Vesturlands til að
leggja mat á virði eignarhluta Borgar-
byggðar í Faxaflóahöfnum og á það
hvers virði það sé fyrir Borgarbyggð
að eiga hlutinn í félaginu áfram með
tilliti til atvinnulífs á Vesturlandi.
BORGARBYGGÐ
GRAFLAX OG SÓSA Reykás grafinn lax
merktur „best fyrir 06.02.2011“ hefur verið
kallaður af markaði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HEILBRIGÐISMÁL Vegna gruns um
Listera monocytogenes-eitrun
hefur Eðalfiskur ákveðið að
stöðva sölu og kalla af markaði
Reykás grafinn lax með dagsetn-
ingunni „best fyrir 06.02.2011“.
Á vef Matvælastofnunar kemur
fram að bakterían geti orsakað
sjúkdóminn listeriosis, sem
lýsir sér með mildum flensuein-
kennum, vöðvaverkjum, hita og
stundum ógleði og niðurgangi.
„Alvarlegri einkenni eru heila-
himnubólga í ungbörnum, blóð-
eitrun og getur sjúkdómurinn
einnig valdið fósturláti.“ Í ein-
staka tilfellum er bakterían sögð
geta verið banvæn en þá sé yfir-
leitt um að ræða einstaklinga með
skert ónæmiskerfi. - óká
Reykás graflax innkallaður:
Grunur leikur á
listeríusýkingu
MENNTAMÁL Hvert viðbótarár í
skóla skilar fólki 8,3 prósenta
hækkun launa, samkvæmt niður-
stöðum rannsóknar Eyjólfs Sig-
urðssonar hagfræðings. Eyjólfur
kynnti skýrslu sína á hádegisfundi
Bandalags háskólamanna í gær.
Niðurstöðurnar benda til að ein-
staklingur með menntun á fram-
halds skólastigi hafi 28 prósent
hærri ævitekjur heldur en ef hann
hefði eingöngu grunnskólamennt-
un. Einstaklingur með menntun á
háskólastigi hefði aftur á móti 88
prósentum hærri tekjur. - óká
Menntun eykur ævitekjurnar:
Hvert ár í skóla
hækkar launin
GENGIÐ 14.02.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
214,8432
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
117,54 118,1
187,94 188,86
158,09 158,97
21,199 21,323
20 20,118
18,032 18,138
1,4089 1,4171
182,29 183,37
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
Aumir og stífir vöðvar?
Voltaren Gel® (Díklófenaktvíetýlamín 11,6 mg/g) er notað sem staðbundin útvortis meðferð við vöðva- og liðverkjum. Lyfið má ekki bera
á skrámur, opin sár eða á exem, varist snertingu við augu og slímhúðir, notist eingöngu útvortis og má aldrei taka inn. Þegar lyfið er notað
án ávísunar læknis skal hafa samband við lækni ef einkenni batna ekki eða versna innan viku. Á meðgöngu skal ávalt leita ráða læknis eða
lyfjafræðings áður en lyfið er notað, þó skal það ekki notað á síðasta þriðjungi meðgöngu. Voltaren Gel® er ekki ætlað börnum yngri en 12
ára. Lítil hætta er á ofskömmtun vegna útvortis notkunar lyfsins. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli. Geymið þar
sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
Verkjastillandi og bólgueyðandi við
verkjum í mjóbaki, öxlum og vöðvum
Nýtt lok!
Auðvelt að opn
a