Fréttablaðið - 15.02.2011, Page 20
15. febrúar 2011 ÞRIÐJUDAGUR20
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Sigurður Sverrir
Einarsson
Vatnsnesvegi 29, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn 11.
febrúar. Jarðarförin auglýst síðar.
Sigurður Júlíus Sigurðsson Marta V. Svavarsdóttir
Helga Ellen Sigurðardóttir Benjamín Guðmundsson
Ólafía Þórey Sigurðardóttir Hallgrímur I. Guðmundsson
Ásta Rut Sigurðardóttir Þórhallur Sveinsson
Pálína Hildur Sigurðardóttir Rafnkell Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra
Ingveldur Albertsdóttir
Bachmann
Bólstaðarhlíð 58 Reykjavík,
lést 7. febrúar. Útförin fer fram frá Háteigskirkju
miðvikudaginn 16. febrúar kl. 13.
Rúnar Bachmann Guðrún B. Hauksdóttir
Petrina Bachmann Sigríður Bachmann
og fjölskylda
Elskulegur faðir okkar,
Erlendur Birgir Blandon
flugstjóri,
lést á Landspítalanum 11. febrúar sl. Útför hans fer
fram frá Digraneskirkju í Kópavogi 21. febrúar nk.
kl. 13.00.
Bjarndís Sjöfn Blandon
Guðgeir Ingi Blandon
Einar Dagur Blandon
og ástvinir
Elskulegur faðir okkar
Leifur S. Halldórsson
skipstjóri,
Skipholti 2, Ólafsvík,
andaðist á heimili sínu í Reykjavík 9. febrúar. Útförin
fer fram frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 26. febrúar
kl. 14.
Matthildur S. Leifsdóttir
Þorgrímur Leifsson
Steingrímur Leifsson
Úlfhildur Á. Leifsdóttir
MOSAIK
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi
Hálfdán Hannesson
Árskógum 8, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörkinni 12. febrúar sl.
Útförin auglýst síðar.
Inga María Hannesson
Helgi Hálfdánarson
Gunnar Hálfdánarson Erla Dóris Halldórsdóttir
Sigrid Hálfdánardóttir Guðjón Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigurlaug Gröndal
Claessen
Stóragerði 34, Reykjavík,
sem lést 6. febrúar sl., verður jarðsungin frá
Háteigskirkju í dag, þriðjudaginn 15. febrúar, kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vildu minnast hennar er bent á líknarfélög.
Hjördís Claessen
Jón Eyjólfur Jónsson
Hildur Claessen
Skapti Steinbjörnsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Guðlaug Ólafsdóttir
Lækjasmára 8, Kópavogi,
sem lést 8. febrúar, verður jarðsungin frá
Digraneskirkju miðvikudaginn 16. febrúar kl. 13.00.
Jón A. Þórarinsson
Guðný Rut Jónsdóttir Lárus Valberg
Ólafur Haukur Jónsson Inga Lára Helgadóttir
Arnfinnur Sævar Jónsson Helga Daníelsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðbjörg Jóna
Guðmundsdóttir
frá Suðureyri við Súgandafjörð,
síðast til heimilis að Hrafnistu í Reykjavík, andaðist að
morgni 10. febrúar. Þeim sem vildu minnast hennar er
bent á líknarfélögin. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Marvin Helgi Friðriksson Kolbrún Sigurbjörnsdóttir
Hilmar Friðriksson Ingibjörg Kristjánsdóttir
Jón Örn Friðriksson Lorraine Friðriksson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur faðir minn, sonur og bróðir,
Daði Daðason
varð bráðkvaddur á heimili sínu miðvikudaginn 26.
janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Hjartans þakkir öllum þeim sem sýnt hafa okkur
samúð og hlýhug.
Hrefna Daðadóttir
Eygló H. Halldórsdóttir
Elínborg Tryggvadóttir
Ólafur Valdimars.
Tuttugu og fimm ár eru síðan skyndibitastaðurinn Hlölla-
bátar fór að seðja svanga vegfarendur í Reykjavík á Ingólfs-
torgi. Staðurinn var stofnaður árið 1986 af Hlöðveri Sigurðs-
syni en Sigurður Garðarsson keypti Hlöllabáta árið 1998.
„Við opnum nýjan stað í Lóuhólunum á allra næstu dögum,
staðurinn er tilbúinn en við bíðum bara eftir því að skrif-
finnskan gangi í gegn,“ segir Sigurður, sem gegnum árin
hefur opnað Hlöllabáta víðar í Reykjavík og úti á landi.
„Við erum á Ráðhústorginu á Akureyri og í miðbæ Selfoss,
Spönginni, Smáralind og Smiðjuveginum í Kópavogi. Þetta
er innrás, ekki útrás,“ segir Sigurður á léttu nótunum, en
hann stendur sjálfur við grillið og steikir ofan í gesti. Hann
fullyrðir að Hlöllabátar séu með elstu skyndibitum á Íslandi.
Báturinn eigi sér ekki erlenda fyrirmynd. Hann sé alíslensk-
ur og framreiddur úr íslensku hráefni.
„Allt hráefnið kemur til okkar fullunnið og við hitum ofan
í hvern og einn. Það er einföld og þægileg vinnsla á þessu
og við erum snöggir að afgreiða. Hér geta allir fundið eitt-
hvað við sitt hæfi,“ segir Sigurður og vill ekki kannast við
að Hlöllabátur sé óhollur matur. „Ekki í sjálfu sér, þetta er
brauð og kjöt! Fólk ræður auðvitað hvað það fær sér mikla
sósu,“ segir hann en sósan á Hlöllabátum er búin til á staðn-
um. „Hún er alveg spes, eftir leyniuppskrift sem ekki verð-
ur gefin upp.“
Vinsælustu bátana gegnum tíðina segir Sigurður vera
Línubát og New York bát. Þeir haldi jafnan vinsældum
sínum en reglulega bætir Sigurður við nýjungum á mat-
seðilinn. Nýjasta viðbótin kallast Tuddi, bátur með nauta-
kjöti, osti og beikoni. Sjálfur á Sigurður sér uppáhaldsbát,
Pinnabát með lambakjöti.
Á Ingólfstorginu er opið fram undir morgun. Margir koma
því við og fá sér í svanginn eftir skemmtanir næturinnar
áður en haldið er heim. Þó segist Sigurður ekki hafa lent í
vandræðum með illa fyrirkallaða gesti. „Hér eru oft miklar
raðir en þegar fólk er að fá sér að borða er eins og það komi
ró yfir það. Við höfum nánast aldrei þurft að hringja á lög-
regluna, sem er ótrúlegt.“
Í tilefni tímamótanna ætlar Sigurður að bjóða afmælis-
tilboð á fjórum tegundum báta í mánuð. Hann segir fyrir-
tækið hafa gengið vel og þó að nýr staður verði opnaður á
næstu dögum segir hann ekki loku fyrir það skotið að þeir
verði fleiri á næstu árum.
„Við erum til dæmis hvorki í Hafnarfirði né Keflavík. Við
höfum alltaf hug á að bæta við okkur.“ heida@frettabladid.is
HLÖLLABÁTAR: FAGNA 25 ÁRA AFMÆLI
Hlöllasósan er
leyniuppskrift
ERUM Í INNRÁS Sigurður Garðarsson, eigandi Hlöllabáta, og Svavar
Smárason, starfsmaður til margra ára. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN