Fréttablaðið - 15.02.2011, Page 42
15. febrúar 2011 ÞRIÐJUDAGUR34
sport@frettabladid.is
GUÐJÓN BALDVINSSON mun ekki semja við rússneska félagið Torpedo
Moskva. Félagið gerði honum samning en Guðjón var alls ekki nógu sáttur við tilboðið
og hafnaði því Rússunum, að því er fram kemur á fótbolti.net. Guðjón er samnings-
bundinn sænska félaginu GAIS en alls óvíst er hvar hann mun spila næsta tímabil.
Eimskipsbikar karla
Akureyri-FH 23-20 (13-9)
Mörk Akureyrar (skot): Bjarni Fritzson 9/2 (10/2),
Heimir Örn Árnason 5 (6), Oddur Gretarsson 5
(6), Guðmundur Hólmar Helgason 4 (10), Hörður
Fannar Sigþórsson 1 (2).
Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 20/1.
Hraðaupphlaup: 4 (Bjarni 2, Oddur 2).
Utan vallar: 8 mín.
Mörk FH (skot): Ásbjörn Friðriksson 5/1 (11/2),
Ólafur Guðmundsson 5 (12), Halldór Guðjónsson
3 (7), Atli Rúnar Steinþórsson 2 (2), Baldvin
Þorsteinsson 2 (6), Ólafur Gústafsson 1 (5).
Varin skot: Daníel Andrésson 5, Pálmar Pétursson
2.
Hraðaupphlaup: 4 (Ólafur, Baldvin, Halldór,
Ásbjörn).
Utan vallar: 2 mín.
IE-deild karla:
Stjarnan-Grindavík 79-70
Stjarnan: Daníel G. Guðmundsson 22, Justin
Shouse 13/5 fráköst, Jovan Zdravevski 12/4
fráköst, Guðjón Lárusson 11/10 fráköst, Renato
Lindmets 11/14 fráköst/3 varin skot, Marvin
Valdimarsson 7/5 fráköst/5 stolnir, Ólafur Aron
Ingvason 2, Fannar Freyr Helgason 1.
Grindavík: Þorleifur Ólafsson 13, Ryan Pettinella
12/11 fráköst, Kevin Sims 12, Páll Axel Vilbergs-
son 11/5 fráköst, Ólafur Ólafsson 9/5 fráköst,
Ómar Örn Sævarsson 5, Mladen Soskic 5/5
stoðsendingar, Björn Steinar Brynjólfsson 3.
Fjölnir-Njarðvík 82-94
Fjölnir: Ingvaldur Magni Hafsteinsson 23/7
fráköst, Ægir Þór Steinarsson 19/5 fráköst/6 stoð-
sendingar, Brandon Ja Juan Springer 14/9 fráköst,
Tómas Heiðar Tómasson 11, Jón Sverrisson 6,
Arnþór Freyr Guðmundsson 5/4 fráköst, Sindri
Kárason 2, Hjalti Vilhjálmsson 2.
Njarðvík: Christopher Smith 28/15 fráköst/4 varin
skot, Melzie Jonathan Moore 23/8 fráköst/6
stoðsendingar, Jóhann Árni Ólafsson 15, Nenad
Tomasevic 11, Páll Kristinsson 7, Hjörtur Hrafn
Einarsson 4, Rúnar Ingi Erlingsson 4, Friðrik E.
Stefánsson 2.
Haukar-Keflavík 99-106
Haukar: Semaj Inge 32/15 fráköst/8 stoðsending-
ar/5 varin skot, Gerald Robinson 20/11 fráköst/3
varin skot, Haukur Óskarsson 13, Davíð Páll
Hermannsson 10, Sveinn Ómar Sveinsson 8/6
fráköst, Óskar Ingi Magnússon 7, Örn Sigurðarson
4/6 fráköst, Sigurður Þór Einarsson 4, Emil Barja
1/4 fráköst.
Keflavík: Thomas Sanders 25/7 fráköst, Sigurður
Gunnar Þorsteinsson 24/13 fráköst/3 varin skot,
Gunnar Einarsson 20, Hörður Axel Vilhjálmsson
15/7 stoðsendingar/5 stolnir, Andrija Ciric 14/5
fráköst, Magnús Þór Gunnarsson 6/5 fráköst/7
stoðsendingar, Þröstur Leó Jóhannsson 2.
STAÐAN
Snæfell 18 15 3 1737-1615 30
KR 18 14 4 1755-1522 28
Keflavík 18 13 5 1690-1556 26
Grindavík 18 12 6 1495-1409 24
Stjarnan 18 10 8 1548-1547 20
Haukar 18 8 10 1536-1583 16
ÍR 18 7 11 1602-1648 14
Tindastóll 18 7 11 1436-1513 14
Njarðvík 18 7 11 1443-1512 14
Hamar 17 6 11 1360-1433 12
Fjölnir 18 5 13 1569-1667 10
KFÍ 17 3 14 1448-1595 6
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Sextán liða úrslit Meist-
aradeildar Evrópu hefjast í kvöld
með tveimur leikjum. Schalke
sækir Valencia heim og AC Milan
tekur á móti Tottenham.
Vængmaðurinn Gareth Bale
fór á kostum er Spurs sótti Inter
heim í riðlakeppni Meistara-
deildarinnar en hann mun ekki
endurtaka leikinn á San Siro í
kvöld þar sem hann er meiddur
og getur ekki spilað.
Bale hefur verið að glíma við
meiðsli í baki og Harry Red-
knapp, stjóri Spurs, vill ekki
hætta honum út á völlinn of
snemma.
„Ég myndi gjarna vilja hræða
Milan og segja að hann væri klár
í slaginn. Staðreyndin er aftur
á móti sú að hann er það ekki.
Bakið er enn að plaga hann,“
sagði Redknapp.
„Þetta eru ekki alvarleg
meiðsli og hann verður ekki of
lengi frá. Þetta tekur samt sinn
tíma. Við verðum að vera þolin-
móðir og gæta þess að hann sé
100 prósent klár er hann kemur
til baka,“ sagði Redknapp en
hann segir að bakmeiðsli Peters
Crouch séu mun alvarlegri.
„Við verðum að fara varlega
með strákinn, sem á frábæra
framtíð fyrir höndum. Ef hann
þarf aðeins lengri tíma þá fær
hann lengri tíma.“ - hbg
Meistaradeild Evrópu:
Bale ekki með í
Mílanó
GARETH BALE Lék sér að Inter á San Siro
en leikur ekki gegn Milan í kvöld.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
KÖRFUBOLTI „Það hefur verið mjög
mikil deyfð í þessu undanfarið og
liðið er því miður ekki með neitt
sjálfstraust,“ sagði Helgi Jónas
Guðfinnsson, þjálfari Grindavík-
ur, eftir að liðið beið lægri hlut
fyrir Stjörnunni, 79-70, í Iceland
Express deildinni í gær. Þetta var
fjórði ósigur liðsins í röð í deild-
inni.
Grindavík náði að leggja Hauka
í undanúrslitum bikarsins á dögun-
um en sá leikur virðist hafa gefið
liðinu lítið. „Maður vonaðist til
þess að sá sigur myndi lyfta lið-
inu eitthvað hærra en það er aug-
ljóst að hann hefur ekki gert það,“
sagði Helgi. „Við þurfum að fara í
góða naflaskoðun fyrir laugardag-
inn því þá er einn stærsti leikur á
tímabilinu.“
Næsti leikur Grindvíkinga er
sjálfur bikarúrslitaleikurinn og
ljóst er að ef þeir mæta til leiks
gegn KR eins og þeir gerðu í gær
eiga þeir ekki von á góðu.
Stjörnumenn byrjuðu betur
í Garðabænum. Með öflugum
varnar leik og yfirveguðum sóknar-
aðgerðum náðu þeir fljótt þægi-
legri forystu. Þeir voru þrettán
stigum yfir að loknum fyrsta fjórð-
ungi og staðan 40-28 í hálfleik.
Allt annað var að sjá Grind-
víkinga eftir hlé og þegar þeir
höfðu skyndilega minnkað mun-
inn í aðeins fimm stig tók Teitur
Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar,
leikhlé. Forysta Garðbæinga var
átta stig fyrir síðasta leikhluta.
Í honum náðu þeir að halda gest-
unum í hæfilegri fjarlægð frá sér
allan tímann.
Daníel Guðmundsson steig upp í
gær og var óvænt stigahæsti leik-
maður Stjörnunnar, hann skor-
aði 22 stig í leiknum. „Þetta var
hrikalega sterkur sigur hjá okkur.
Það er mikill stígandi í gangi hjá
okkur núna og liðið að ná betur og
betur saman,“ sagði Daníel eftir
leikinn.
„Við byrjuðum mjög vel. Varnar-
leikurinn var að ganga mjög vel og
sóknarleikurinn fínn. Svo í öðrum
leikhluta dróst aðeins af þessu. En
við héldum þetta út þrátt fyrir að
þeir væru að setja mikla pressu
á okkur. Það er mjög sterkt. Við
vorum vel skipulagðir fyrir leik-
inn og Grindavíkurliðið kom okkur
ekkert á óvart. Við vorum betri en
þeir.“
Daníel segir markmið Stjörn-
unnar ekki flókið. „Við ætlum
ekki neðar en fimmta sætið, þessi
fjögur lið sem eru í toppnum eru
aðeins á undan okkur.“ - egm
Stjarnan vann góðan sigur á Grindavík í gær en Grindjánar eru ekki alveg að finna taktinn þessa dagana:
Skortur á sjálfstrausti hjá Grindvíkingum
HVAR ER BOLTINN? Leikmenn liðanna bíða eftir að knötturinn komi úr loftinu í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HANDBOLTI Það var stiginn stríðs-
dans á fjölum Íþróttahallarinnar
á Akureyri í gær þegar handbolta-
lið bæjarins tryggði sér þáttöku-
rétt í úrslitum Eimskipsbikarsins í
fyrsta skipti. Akureyri mun mæta
Val í úrslitum en Valur er í úrslit-
um fjórða árið í röð.
Það var fyrst og fremst frábær
varnarleikur og mögnuð mark-
varsla Sveinbjörns Pétursson-
ar sem lagði grunninn að góðum
sigri Akureyringa í gær, sem var
afar sanngjarn. Akureyri var mun
betra liðið frá upphafi.
Heimamenn tóku völdin á vell-
inum strax í upphafi og náðu mest
sex marka forskoti, 10-4, í fyrri
hálfleik. FH náði aðeins að laga
stöðuna fyrir hlé en þá munaði
fjórum mörkum á liðunum, 13-9.
Akureyringar mættu grimm-
ari til síðari hálfleiks. Vörnin var
sterk sem aldrei fyrr og þegar
korter lifði leiks höfðu heimamenn
náð sjö marka forskoti, 20-13. Þá
tóku FH-ingar leikhlé, stokkuðu
spilin og seldu sig síðan dýrt það
sem eftir var.
Það gekk vel og þegar rúm mín-
úta lifði leiks minnkuðu FH-ingar
muninn í eitt mark, 21-20. Þá tóku
þeir Sveinbjörn og Bjarni Fritzson
leikinn í sínar hendur á ný. Svein-
björn varði og Bjarni skoraði tvö
síðustu mörkin og innsiglaði sann-
gjarnan sigur norðanmanna en
Bjarni átti frábæran leik. Heim-
ir Örn og Oddur voru einnig góðir
og ekki má gleyma þeim Guðlaugi
Arnarssyni og Herði Fannari Sig-
þórssyni í vörninni.
FH átti ekkert meira skilið úr
þessum leik. Sóknarleikurinn var
ekki nógu beittur, varnarleikur-
inn var ágætur í seinni hálfleik
en markvarslan var nákvæmlega
engin í leiknum og það dugir ekki
til í svona leik.
„Við skitum á okkur í 45 mín-
útur og það er ekki hægt gegn
svona góðu liði. Það gekk fátt upp
hjá okkur og þeir stýrðu leiknum.
Það verður að viðurkennast að við
töpuðum fyrir betra liði í þess-
um leik,“ sagði Pálmar Pétursson,
markvörður FH, hundsvekktur
eftir leik.
Atli Hilmarsson, þjálfari Akur-
eyrar, var aftur á móti mun
hressari enda kominn í fyrsta
skipti í úrslit með karlalið í bik-
arnum. Hann náði því ekki á sínum
tíma með KA, sem hann gerði
reyndar að Íslandsmeisturum.
„Þetta var virkilega sanngjarn
sigur að mínu mati. Það hefði verið
agalegt að tapa leiknum eftir það
sem á undan var gengið. Þeir náðu
að minnka í eitt mark en þá stigu
Sveinbjörn og Bjarni upp aftur.
Þessir strákar eru algjör hval-
reki fyrir þetta félag,“ sagði Atli
kátur.
„Munurinn á liðunum lá í
vörn og markvörslu. Við gerðum
þeim erfitt fyrir, létum þá taka
erfið skot og fengum oft hraðar
sóknir fyrir vikið. Einnig var
stuðningurinn úr stúkunni frá-
bær og við erum þakklátir fyrir
hann,“ sagði Atli en hann viður-
kenndi að dregið hefði verulega af
hans mönnum undir lokin er FH
kom til baka.
„Við héldum samt út og það
var fyrir öllu. Nú er það Valur í
úrslitum og það verður erfitt. Vals-
menn hafa mikla reynslu úr þess-
um leikjum. Þeir spila skynsam-
lega og gefast aldrei upp eins og
mátti sjá í leiknum gegn Fram. Það
verður svakalega erfiður leikur.“
henry@frettabladid.is
Skrifa söguna upp á nýtt
Akureyri komst í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta skipti í stuttri sögu félagsins
í gær. Þá vann liðið sanngjarnan sigur, 23-20, á FH-ingum. Akureyringar voru
með frumkvæðið allan leikinn og endurkoma FH hófst allt of seint.
KLÓKUR Heimir Örn Árnason átti virkilega fínan leik gegn FH í gær. Skoraði góð mörk
og var sterkur í vörninni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen
fékk að spila síðustu tíu mínútur
leiks Fulham og Chelsea í ensku
úrvalsdeildinni í gær en leiknum
lyktaði með markalausu jafntefli.
Eiður náði ekki að skapa mikinn
usla í vörn sinna gömlu félaga
hjá Chelsea en tæklaði þó Florent
Malouda með miklum látum.
Þegar rúm mínúta var eftir
af uppbótartíma sparkaði David
Luiz, hinn nýi varnarmaður Chel-
sea, Clint Dempsey niður.
Dempsey tók vítið sjálfur en
hann lét Petr Cech verja frá sér.
Chelsea er úr leik í baráttunni
um titilinn enda tólf stigum á
eftir Manchester United. - hbg
Jafnt hjá Fulham og Chelsea:
Eiður fékk að
spila í lokin
BARÁTTA David Luiz og Andy Johnson
slást um boltann. Luiz var næstum
orðinn skúrkur leiksins. NORDIC PHOTOS/GETTY