Barnablaðið - 01.04.1963, Blaðsíða 11

Barnablaðið - 01.04.1963, Blaðsíða 11
endurtœki þau. — Nú skuluð þið fá að heyra samtalið. Það var á þessa leið: — Halló, halló! — Halló, já. Hver er það sem ég tala við? — Iá, er þetta Guð? — Iá. — Er lesús við? — Iá. — Viltu vera svo góður að segja lesú, að mig langi til að tala við hann? — Það skal ég gera. — Er þetta þú, lesús? — Iá, hvað get ég gert fyrir þig? — Litli bróðir er svo veikur. Mundir þú ekki vilja hjálpa okkur, svo að hann verði frískur aftur? — Batnar honum ekki fljótt? Svarið kom ekki strax frá lesú. Stúlkan endurtók það sem hún hafði sagt. Nú kom svarið. — Iú, honum batnar fljótt. Anna litla lyfti upp heymartól- inu og heppnaðist að koma því á réttan stað. Hún flýtti sér niður af stólnum og litla andlitið Ijómaði af gleði. Nú œtlaði hún að flýta sér inn til mönnu sinnar og segja henni þessar góðu fréttir. Hún hafði að- eins tekið nokkur skref þegar mamma hennar kom til hennar og tók hana í faðm sinn. Frá þeim degi fór litla drengnum að batna. Hann hafði verið nœrri dauðanum. Eftir stuttan tíma var hann orðinn fullkomlega heilbrigð- ur. BARNABLAÐIÐ 31

x

Barnablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.