Barnablaðið - 01.09.1972, Qupperneq 6

Barnablaðið - 01.09.1972, Qupperneq 6
Lesum við kannski ekki í skólanum um stórskáldin okkar, og hvert einasta þeirra er karlmaður! Hefurðu hugsað um það eða hvað? — Ekki hvert einasta skáld- Og svo er það að athuga, að það eru karlmennirnir, er samið hafa kennslubækurnar, og þá er það svo sem auðvitað, að þeir seg|a bara frá öðrum karlmönnum. Þetta er svo rang- látt, sem mest má vera. Eg skal bara lofa þér því, að þegar ég er orðin stór, þá skal . . . — O — o, þá skalt þú gifta þig og eign- ast fjögur börn, sagðirðu einu sinni. Þá færðu engan tíma til annars en snýta ungbörnum, búa til mat og þvo upp, og svo og svo . . . — Svona, hættu nú þessu masi einhvern tíma! Hvernig heldurðu að nokkur geti skrifað undir þessu sifellda röfli þínu? Maður verður að samstilla hugann, þegar maður er að yrkja, skilurðu? — Ja, hvort ég skal ekki þagna! Ætl- arðu þá að lofa mér að lesa það sem þú ert að skrifa, þegar þú ert búin? Lotta lofaði honum því, og Lárus skreið niður í rúmið sitt, með skemmtilega bók í hendinni, er hann ætlaði að fara að lesa. Bókin sagði frá flugævintýri. Flug- maður, það var toppurinn á öllu! Það vildi Lárus helzt verða. Það breytti svo litlu þó að pabbi væri að segja við hann að margar stöður í lífinu væru fluginu betri. Hann gat orðið gjaldkeri í sterku fyrirtæki, eins og pabbi. En það breiddi engan töfraljpma yfir framtíðarvonir hans. Pabbi sat baTa bak við skrifborðið alla daga með pappira og peninga fyrir fram- an sig. Það var ekkert sérstakt við það. Nei, flugið, flugið! — Loksins er ég búin, kallaði Lotta, eftir nokkra stund. En nú heyrði Lárus ekki til hennar, því að hann stóð rétt I miðdepli á æsilegu flugævintýri. — Ég er búin, heyrir þú ekkert lengur? Þú varst að biðja um það að fá að lesa Ijóðið mitt. Lárus lagði bókina aftur og gekk til Lottu, sem rétti að honum Ijósmyndabók- ina með Ijóðinu. Lárus las: ,,Blíð skín sól um bjartan dag / birtan glæðir vonahag / Vin ég verð að eiga / Vin með ttyggð ódeiga / ,,Lánið kemur, lánið fer / Lánið mitt er Guð hjá þér". — A nú þetta að vera skáldskapur þinn, til dæmis síðustu tvær línurnar? Ég sé ekki betur en það sé gömul bæn. — En þú, að heyra til þín! Það er þó alla götu satt, sem ég hef skrifað. Það finnst mér. — Kannski það. Veiztu, að ég bið þessa bæn á hverju kvöldi. Og alveg eins fyrir það, þó að Aki hæddist að mér, þegar ég sagði honum frá því einu sinni, og kallaði mig aumingja fyrir það. Þessi bæn er fyrir smábörn, sagði hann og hló hæðnis- hlátri. — Finnst þér það kannski líka? — Nei, langt frá því. Ég trúi því, að við verðum aldrei of gömul til þess að biðja þessa bæn. Ég heyrði einu sinni gamlan mann vitna um það 1 samkomu, að hann hefði frelsazt, er hann fór með þessi orð, fyrir ári síðan. Og þessi maður var að minnsta kosti 60 ára gamall. — Já, þá er það ekki svo slæmur skáldskapur þetta, sagði Lárus um leið og hann rétti henni bókina aftur. K. K. Þrír ritningarstaðir, sem öll börn þurfa að muna: 1. Því að svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver, sem á hann trúir, glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Jóh. 3, 16. 2. Allt, sem faðirinn gefur mér, mun koma til mín, og þann sem til min kemur, mun ég alls ekki burt reka. Jóh. 6, 37. 3. En öllum þeim sem tóku við honum (Jesú), gaf hann rétt til þess að verða Guðs börn: þeim sem trúa á nafn hans. Jóh. 1, 12. 6

x

Barnablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.