Barnablaðið - 01.12.1978, Síða 2
Hátíð baruanna
Svo hafa jólin oft verið nefnd og það
með réttu. Kemur þar miargt t-il. Fœðing
Jesú-barnsins, með sinni dýrð og Ijóma.
Fátœklegu umliverfi. Umkomuleysi Jósefs
og Maríu, sem voru á ferðalagi í framandi
stað. Fullt gistihús en opin jata. Englasöng,
Ijóma og dýrð, sem yfirnáttúrlegt var.
Oll þessi sérstaða við fakðingu Jesú fell-
ur inn í hugarheim barnsins, hvar sem er
og hvenær sem er. Svo komu vitringarnir
frá fjarlægum A usturlöndum og færðu Jesú-
barninu gjafir: gull, reykelsi og myrru.
Þá er nú skyldleikinn farinn að fœrast
u.pp á skaftið. Jólin í dag fyrir fjöldann
allan af börnunum er ekki hvað minnst
tengdur fallegu pökkunum, sem geymdir
eru undir jólatrénu — í stofunni hjá pabba
og mömmu.
Er það ekki gott?
Margir meina annað og tala um bruðl
og f járaustur í glingur og glys. Ofgar eru
sjálfsagt til á báða bóga. Hví tala þeir ekki
sem nagga út í heilög jól um tilefnislausan
fjáraustur í áfengi og dýran skemmandi
munað, að ekki sé getið austurs til hernað-
ar, sem ætlaður er til að vera manndrep-
andi?
Bœði börn og aldnir. Höldum jólin liá-
tíðlega og í kristnum anda. Láturn Guðs
Orð vera lesið í heimilum okkar, fögnum
í háskammdegi yfir Honum, sem er Lífs-
ins sól — hvers birta aldrei dvínar. Leyf-
um okkur að halda liátíð hóflega í mat og
drykk. (Alls ekki áfengi!) Fögnum í anda
vorum yfir því að Jesús er fœddur og Hann
kom með Ijós, sem vill upplýsa hvern mann.
Jólafögnuður einskorðast ekki við eigið ég.
Minnumst þeirra sem sjúkir eru. Minnumst
þeirra sem í fangelsum eru. Minnumst
þeirra sem eru fjarvistum frá heimilum sín-
um. Ef það er gert, þá gefur það allt gildi
og blessun um heilög jól. Jóliin fá þá sitt
sanna innihald.
Kirkjuferðir og kristilegar samkomur eru
sjálfsagðar um jólin. Þá má ekki gleyma
kristnu heimilishaldi um jól. Þar sem jóla-
guðspjallið hjá Lúkasi er lesið og jóla-
sálmar sungnir, sem við eigum gott úrval
af. I þessu er blessun og innihald, fyrir þá
sem ná því, meira en í ytra prjáli.
Foreldrar. Skapið börnum yklcar heilaga
jólahátíð. Útilokið allt sem saurgun veld-
ur. Haldið Frioarins hátíð grundvallaða á
Guðs Orði. Þá verða jólin gleðileg og til-
hlökkunarefni — „vetrarperlan fríð“.
Jesús blessi okkur jólin 1978.
Gleðileg jól.
Ritstj.
Kristilegt blað fyrir börn og unglinga.
41. árgangur 1978. — 4. tölublað.
Ritstjóri: Einar J. Gíslason (ábm.).
Ritnefnd: Daniel Glad, Hallgrímur Guðmannsson.
Útgefandi: Blaða- og bókaútgáfan Hátúni 2.
Reykjavík. Box 5135. Sími 20735.
Kemur út fjórum sinnum á ári.
Argangurinn kostar 950,00 kr. til áskrifenda.
í lausasölu 250,00 kr. eintakið.
Borgarprent.
2