Barnablaðið - 01.12.1978, Qupperneq 4

Barnablaðið - 01.12.1978, Qupperneq 4
Jolaboð Elsn Þuríður stóð og horfði á leiksystur sína leika sér. Hún skildi ekki hvers vegna hún fékk ekki að vera með. Þær léku sér þarna, bæði Anna, Katrín og Elsa. Snjórinn rauk um þær og þær litu út eins og reglulegar snjókerlingar. En gat nokkur skilið vegna hvers Þuríður fékk ekki að vera með? Hún sem alltaf var með þeim. Það var eiginlega Elsa, sem ákvað þetta. Hún réði venjulega mestu. Hún var heldur stærri en hinar. Þegar Þuríður, sem venju- lega lék sér með hinum, hafði gengið nið- ur garðinn, voru hinar eitthvað skrítnar á svipinn. „Þú færð ekki að vera með, þú færð ökki að vera með,“ höfðu þær sagt. Elsa hafði meira að segja dregið stóran hring umhverfis hana og sagt: „Nú ert þú í ruslatunnunni. Ha, ha, ha.“ Og Þuríður stóð þarna eins og negld nið- Það var ekkert ánægjuverk fyrir systur hans að þvo honum hátt og iágt og þrífa föt hans. En það varð að gera. Þetta voru skólafötin. Allt fór þetta vel. Hanni og Guðlaugur reynslunni ríkari. Skrauta og Hálsa undu sér vel saman. Er. ekki mátti Hanni koma svo í fjósið, að Krossa sýndi iekki valdsvið sitt, ef hann kom nærri Skrautu. Krossa lifði mörg ár eftir þetta og gerði sitt góða gagn. Það rættist svo vel úr Skrautu einnig og líktist hún móður sinni í mjólkurlægni og gæðum. Ur sveitinni eru sendar innilegar jóla- kveðjur til allra barnanna, sem lesið hafa þessa sönnu þætti. 4 ur, þótt hún vissi mjög vel að hún gat stigið út fyrir hringinn. Allt í einu rankaði hún við sér. Það var reyndar afmælisdagur Elsu í dag. Það hafði verið hvísl og pískur í frímínútunum í skólanum. Elsa hafði fengið smágjafir, bæði frá Betty, Katrínu og fleirum. Og Elsa hafði lagt smá boðskort á borðin þeirra. Þuríður hafði skyggnst um á sínu borði, en þar lá ekkert kort. Það átti að verða heimboð í sambandi við afmælið á laugar- daginn og það átti að verða jólatré. „En hvað þær eiga gott,“ hafði hún hugsað, en hún var aldrei langrækin, svo að nú hafði hún gleymt þessu. Sannleikurinn var sá, að Þuríður átti enga peninga til að kaupa fyrir konfekt- kassa eða annað til að gefa Elsu eins og hinar höfðu gert. Elsa hafði hugsað sér að gefa öllum stúlkunum boðskort, en hún hafði orðið fyrir vonbrigðum, þegar Þuríð- ur gaf henni enga gjöf. Og svo fékk Þuríð- ur ekkert boðskort. Þetta gat Elsa átt til. Þuríður hafði einu sinni verið boðin til hennar og það hafði verið alveg sérstakt. En hún hafði ekki getað boðið henni aftur. Hún sneri sér hægt við og liéll heim- leiðis. Mamma var víst einsömul heima, ef hún var þá komin heim. Hún vann í verslun. En Þuríður hafði lykil að íbúð- inni og hún ætlaði að elda kartöflur, þeg- ar hún kæmi heim. En fyrst ætlaði hún að kaupa bjúgu hjá Svenson. Hún ieit til stúlkn- anna, sem stóðu og hvísluðu ieyndarmálum hver að annarri. Nei, það var best að halda sína leið. En hvað allt var ómögulegt í dag. Ef hún aðeins hefði peninga til að

x

Barnablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.