Barnablaðið - 01.12.1978, Side 8
Jólagjöfin er þin
Það skeði í kyrrlátum garði í Moskvu.
Ferðamaður hafði komist í samband við
einn af landsins sonum. Meðai annars barst
talið að boðskapnum um hjálpræðið í Jesú
Kristi. Rússinn var alls ekki framandi fyrir
því. Hafði heyrt boðskapinn gegnum út-
varpssendingar. En Biblíu haíði hann ekki
séð, en þráð að eignast eina sii'ka.
Athyglisvert að hitta þennan ferðamann
þarna. — Ferðamaðurinn hafði nokkrar
rússneskar Biblíur í farangri sínum. Hann
rétti þessum nýja vini sínum eitt eintak.
Varlega tók hann við henni, blaðaði gæti-
lega í henni, en rétti hana síðan til baka
aftur. „Þökk fyrir að ég fékk að líta í
hana,“ sagði hann hrærður. Ferðamaðurinn
horfði undrandi á hann og síðan á bókina.
„En þú mátt eiga hana,“ áréttaði hann.
„Ó, þökk fyrir að ég fæ að líta ofurlítið
meira í hana.“ Augu hans drukku í sig
boðskapinn nokkur augnablik, en svo rétti
hann frá sér bókina aftur.
„Það getur ekki verið mögulegt að þú
meinir að ég skuli fá hana, en þökk fyrir
að ég fékk að lesa svolítið í henni.“
Undrun ferðamannsins óx. Nokkuð því-
líkt hafði hann aldrei upplifað. Hann opn-
aði Biblíuna og skrifaði á titilblaðið vinar-
kveðju til hans og sagði ákveðið, um leið
og hann lét Rússann sjálfan lesa það og
skilja að hann meinti það í alvöru: „Gjörðu
svo vel — hún er þín.“
Guðs gjöf.
Jesús kom til okkar sem Guðs gjöf. —
Margir hafa í gegnum aldirnar veitt Jesú
athygli, rannsakað líf hans, hrifist af hon-
um, eða varpað honum frá sér. Hvað sem
8
við gerum er og verður Jesús Guðs gjöf til
okkar.
Jesús varð að koma til vor sem gjöf, þar
sem við verðskulduðum ekki neitt frá Guði.
Við voi’um syndarar, fjarri honum. Við
hefðum átt að leita hans, en nú hefur Guð
leitað okkar og boðið okkur hessa gjöf.
Vissulega er það of stórkostlegt til að
vera satt. Undrun mín tekur aldrei enda,
þegar ég hugsa um, að einmitt ég fékk að
taka á móti Jesú. Samt sem á'ður er það
satt. 1 hvers konar kringumstæðum sem þú
ert í þá er gjöfin fyrir þig!
Guðs gjöf er sönnun kærleika hans til
okkar. Hér er ekki um að ræða kærleika
aðeins á vörunum, heldur fórnandi kær-
leika. Hann hugsaði ekki um sinn eigin
hag, heldur einvörðungu okkar. Guð er
kærleikur! Hann hefur sannað það. Sönn-
unina höfum við í Jesú.
Astand okkar án Jesú er glötunarástand.
Við skelfumst þegar við heyrum um þau
öfl, sem vildu ryðja Jesú úr vegi. Hann
var ekki fyrr kominn til jarðarinnar, og
lá sem lítið barn í jötu, en Heródes
hófst handa að ofsækja hann, og sem hafði
þær afleiðingar að fjöldi smábarna missti
lífið. Þetta er þó aðeins örlítið sýnishorn
af öflum vonskunnar hér á jörðinni.
Glötunin er engin trúarspurning. Hún er
staðreynd, hvort sem við trúum því eða
ekki. En Jesús kom til þess að við fyrir-
færumst ekki. I öllum heiminum er eng-
inn annar sem liægt er að segja þetta um.
I hátign sinni tilbýður hann okkur frelsi.
Taktu á móti gjöfinni í trú.
Við öðlumst aldrei neitt án þess að grípa