Barnablaðið - 01.12.1978, Qupperneq 11
dæmd úr leik. Gabel hripaði skilaboð á lít-
inn pappírsmiða og borgaði hlaupara að
fara með þau til Chandu Ray í Lahore.
Hann skrifaði ekki nafnið sitt undir, né
gaf staðsetninguna, vegna þess að óvina-
njósnarar vildu ná í hann.
I Lahore var Chandu Ray að biðja fyrir
j, tíbetsku Bihlíunni, þegar hlauparinn kom
inn til hans. „Eg kom frá brúnni sem ligg-
ur yfir Sandaá í Kashmir/' sagði hann
másandi. „Gamall maður borgaði mér fyr-
ir að fara með þessi skilaboð.“
Chandu Ray flýtti sér á flugvöllinn og
spurði eftir flugi til Kashmir.
„Fljúga inn í landareign óvinanna á
meðan stríðið er!“ sagði flugmaðurinn. —
„Þetta var síðasta flugvélin sem átti að
gera það, og ég hef nýlega fengið fyrirmæli
um að aflýsa fluginu.
Chandu Ray bað í hljóði til Guðs og
sagði síðan: „Hvernig ætlar þú að endur-
i greiða alla peningana til farþeganna sem
áttu að fara með?“ spurði hann hljóðlega.
Flugmaðurinn ákvað að leggja strax af
stað. Eftir að þeir komu til Kashmir varð
Chandu Ray að ganga í þrjá daga áður en
hann kom að brúnni yfir Sandaá. En Ga-
bel var hinum megin við hana. Indverskur
herflokkur stöðvaði Rev. Ray, en hann gaf
þeim guðspjöllin á þeirra eigin máli, og
voru þeir mjög hamingjusamir að fá þau.
Einn af liðsforingjunum hjálpaði Rev.
Ray yfir þessa brú, sem bannað var að
fara yfir, og þarna hinum megin fann hann
5 Gabel.
Hvernig mundu þeir geta komist til baka
til Lahore? Flugvél sem var full af særð-
um hermönnum var tilbúin til flugtaks til
Delhi, langt, langt frá þeim stað sem þeir
ætluðu til. Chandu Ray og Gabel var gefið
sérstakt leyfi til að fara með þessari flug-
vél. Þetta var annað kraftaverk.
I Dehli fóru þessir tveir menn um borð
í gamla lest sem átti að fara norður, ásamt
hundruðum af öðru fólki, og urðu þeir að
standa alla leiðina. Enn á ný urðu þeir að
fara á puttunum á landamærastöðina miRi
Indlands og Pakistans. Þaðan tóku þeir
gamlan leigubíl heim til Lahore.
Heimleiðin var mjög krókótt en bókinni
var bjargað.
Mynd 7.
Biblían var látin í pressuna og unnið við
að prenta hana dag og nótt. Prentvélin
stansaði ekki fyrr en verkinu var lokið.
Gabel fékk fyrsta eintakið af tíbetsku Biblí-
unnið. Þá fyrst fór hann af stað heim til
sín.
Gabel hafði verið marga mánuði í burtu
11