Barnablaðið - 01.12.1978, Side 17
vil tala um við þig, það hefur legið mér á
hjarta tvo síðustu mánuðiua.
Þú manst eftir Billý í mínum bekk, hann
hefur misst mömmu sína, og nú vill pabbi
hans flytja til Ameríku og 1 áta Billý á
barnaheimili. Ef við nú tækjum hann á
okkar heimili, gæti það ekki verið ofurlítið
trúboð? Við höfum herbergið hans Jerrý,
öll hans föt og allt hans dót.“
Frú Stuart fékk óstöðvandi grát. „Ann-
ar drengur í Jerrýs herbergi!“ hrópaði
hún, „það er ekki til að tala um.“
„Ellen,“ sagði maður hennar milt og al-
varlega. „Vor elskaði Frelsari var aldrei
eigingjarn. Hann gaf allt fyrir okkur. Litli
Jerrý okkar var heldur ekki eigingjarn, —
hann gaf allt sem hann átti til að gleðja
þig á jólunum. Eg veit, elskan mín, að þú
vilt heldur ekki vera eigingjörn, en ég skil
svo vel að hugsunin um þetta er þér ofviða
í augnablikinu, taktu heldur enga ákvörð-
un um þetta strax, hugsaðu um það. Það
er mín trú, að gleðin komi inn í heimili
okkar með Billý.“
Það leið ekki langur tími, þar til frú
Stuart fór að skilja að þetta var ráðsálykt-
un Guðs, og þá byrjaði gleðin að spretta
fram í hjarta hennar. Og ekki varð hún
minni, þegar Billý var fluttur mn í heimil-
ið. Aftur var lítill drengur sem þurfti um-
hyggju og kærleika. Og foreldrarnir fengu
ríkuleg laun, því Billý var þeim góður og
eftirlátur sonur. Minningarnar um Jerrý
voru ennþá dýrmætar en ekki sárar — að-
eins blessaðar.
Slíkt getur Guð gert þegar við erum fús
að ganga Hans veg. — Gleðileg jól!
(Þýtt úr Kirkeklokken, lítið eitt
stytt. Kristín Jónsd.).
KROSSGÁTA
Jæja krakkar, nú fáið þið að spreyta ykkur
á krossgátu. Til að geta leyst þessa krossgátu
þurfið þið að hafa Biblíu eða Nýja testamenti
við hendina. Þið skuluð finna Lúkasarguð-
spjall, annan kafla. Þið sjáið litlar tölur inn
á milli setninganna eða við jaðarinn á þeim.
Þessar tölur merkja það sem kallað eru vers
(skammstafað v.).
Til að finna orðin í krossgátunni verðið þið
að lesa versin sem merkt eru við hverja linu.
Til dæmis er lausnarorðið í fyrstu línu að
finna í 13. versi, — „Þér munuð finna
UNGBARN“.
Lúk, 2.
1. Þér munuð finna ......... v. 13.
2. Fór þá einnig Jósef úr borginni . . . . v.4.
3. Og lagði hann í ......... v. 7.
4. Og.......Drottin stóð hjá þeim v. 8.
5. Þvi yður er í dag........v. 8.
6. Og í þeirri byggð voru ........ v. 8.
7. Og þeir fóru með skyndi og fundu hæði
Maríu og .......... v. 17.
8. Og dýrð Drottins ........ v. 9.
Ef ráðningin er rétt, er hægt að lesa lóðrétt
nafn á þekktri borg í ísrael.
Lausnina er að finna á bls. 19.
17