19. júní


19. júní - 19.06.1958, Blaðsíða 23

19. júní - 19.06.1958, Blaðsíða 23
krónur sænskar á ári, — en allt annað sér bygg- ingarfyrirtækið um. Mér finnst það mesta sleifarlag, að auðug bygg- ingarfyrirtæki geti ekki alveg eins byggt smáíbúð- arhverfi, þar sem þeir, sem svo kjósa, geta leigt sér hús án þess að verða svefnlausir eða gráhærðir eða hvort tveggja. Sannleikurinn er sá, að vegna húsnæðiseklunnar er hvaða íbúð, sem er, jafnvel þegin, — menn velja ekki lengur, heldur taka feg- ins hendi því, sem að þeim er rétt á miðlunar- skrifstofunni, þegar loksins er að þeim komið í biðröðinni. Þegar gera átti samanburð á, hvort húsmæðrum með ung börn þætti þægilegra að búa í háum eða lágum húsum, svöruðu flestar, er spurðar voru, af sömu ástæðu, að reyndar væru 8—10 stiga hlaup allerfið fyrir smábörnin (sem ekki mega nota lyft- una einsömul) og samband milli móðurinnar við heimilisstörfin í íbúðinni og barnsins að leik í sand- kassanum alls ekkert, en samt væru þær ánægðar með íbúðina sína og vildu alls ekki fíytja. Þótti þar með nefnd þeirri, sem hafði málið með hönd- um, það vísindalega sannað, að há og lág hús væru jafnheppileg fyrir barnafjölskyldur, — hið eina, sem nú væri á dagskrá, væri tækni- og kostn- aðarhliðin. Hið eina, sem mér fannst sannað, var, að sænsk- ar konur eru kurteisar mjög, bljúgar og lítillátar. Nú er ekki svo að skilja, að hægt sé að hreykja upp kumböldum eftir geðþótta byggingarmei stara. Nei, vilji hann eða fyrirtækið, sem oft er eign bæj- anna, fá lánveitingu frá Bostadsstyrelsen, verður að fara nákvæmlega eftir fyrirmælum þaðan, sér- staklega hvað snertir stærð herbergjanna og rúm- stæðanna í þeim, tölu fataklefa, þægindi í eldhúsi, birtu í íbúðinni o. s. frv. Eru kröfumar allháar, en réttmætar. Enginn veit fyrirfram, hver leigjand- inn verður í íbúðinni, en margar af kröfum þeim, sem Bostadsstyrelsen setur, eru þó miðaðar við það, að barnafjölskylda eigi hægt með að notfæra sér íbúðina, t. d. að svigrúm sé fyrir borðkrók í eld- húsinu, að hægt sé að nota herbergin sem svefn- eða leikherbergi og ekki einungis sem stássstofur, að rúm sé fyrir bamavagna í kjallara o. s. frv. Ný sparnaðartillaga hefur komið fram, hið svo- nefnda „vátelement“, sem er að eldhús, baðher- bergi og svalir séu í samhengi, svo að leiðslur verði ódýrari og smábarnaþvotturinn auðveldari. önnur tillaga er að hafa upphitaðan fataklefa við forstofu, svo að léttara sé að þurrka yfirhafnir 1 9. J tJN f á veturna. Einnig er í ráði, að leigjendur fái sjálf- ir að ráða herbergjafjölda í íbúðinni með því að flytja létta milliveggi eftir þörfum og stærð fjöl- skyldunnar. Og svona mætti lengi telja. En ekki má gleyma voldugum aðilja, sem er „Stadsplanekontor“ hvers bæjar, sem gerir fram- tíðaráætlun og skipulagsuppdrátt fyrir ný hverfi. Ég hef nýlega farið á fund skipulagsstjóra hér í Stokkhólmi og fengið að sjá marga og fagurlit- aða uppdrætti yfir ný hverfi í nágrenni borgar- innar og undir liennar hlífiskildi. Markmiðið virðist vera að gera göturnar sem hættuminnstar, þar sem greinarmunur er gerður á aðalvegi, bústaðavegi, gangvegi o. s. frv., og er sérstaklega reynt að fá gangvegi án bílaumferðar fyrir börn á leið í skólann. Áherzla er lögð á, að aðlaðandi og fjölbreytileg miðstöð skapist í hverfunum, með verzlunum, kvikmyndahúsum, bókasöfnum og skrifstofuhúsum og fleiri stórhýsum, að ógleymdum bilastæðum, sem mikil þörf virðist fyrir. Reynt er að hafa grasvelli kringum ibúðarhúsin og að auðvelt sé að komast þaðan út í óbreytta náttúruna. Oft er deilt um, hvort betra sé að reisa lágar, dreifðar byggingar eða þéttbýli með háum húsum, með stærra svæði til leiks eða hvíldar. En var ég ekki að tala um þetta áðan? — Það er nótt, — ég er hætt---------- Halldóra Briem. 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.