19. júní


19. júní - 19.06.1958, Page 29

19. júní - 19.06.1958, Page 29
jöfn laun karla og kvenna nái til alls starfsfólks á landinu (sbr. 2. gr. jafnlaunasamþykktarinnar, 1. mgr.). Samkvæmt 2. málsgr. 2. gr. skal þessari reglu komið til framkvæmda með: a. landslögum og reglugerðum; b. ráðstöfunum, sem komið er á eða viðurkenndar eru með lögum, til ákvörðunar á launum; c. í heildarsamningum milli vinnuveitenda og verkafólks. í 3. gr. segir: „Þar sem slíkt mundi greiða fyrir því, að ákvæðum samþykktarinnar sé framfylgt, skal gera ráðstafanir til þess að koma á óvilhöllu mati á störfum, sem byggist á því, að metin sé sú vinna, sem inna skal af hendi.“ Með tilliti til þessara þriggja megingreina jafn- launasamþykktarinnar virðist eðlilegt, að skipuð sé nefnd til þess að gera tillögur um þær ráðstafanir, sem tiltækar kunna að vera til að koma á fullu launajafnrétti, en allar slíkar tillögur hljóta að byggjast á rannsókn á því, hvernig þessum málum er nú háttað. Er því gert ráð fyrir, að fyrsta verk nefndarinnar verði almenn athugun á launagreiðsl- um og verði niðurstöður þeirrar athugunar birtar opinberlega. Samkvæmt launalögum ríkisins á launajafnrétti að ríkja meðal starfsmanna hins opinbera, en þrátt fyrir lagaákvæðin telja konur sig órétti beittar í launagreiðslum hjá ríkinu. Ber þar tvennt til. 1 fyrsta lagi eru þau störf, sem yfirleitt hafa verið unnin af konum, óeðlilega lágt metin, miðað við þá hæfni, sem krafizt er af þeim, sem leysa störfin af unni, reytti hún handfylli af grasi og þurrkaði leir- uga fæturna. Hinum megin við mýrina lágu kýrn- hendi. Og í öðru lagi eru ekki fastar reglur um störf og starfsheiti, og hcfur gamalt launamisrétti hald- izt í skjóli þess. Hér virðist því liggja beint við, að rannsókn verði látin fara fram og störf metin á þann hátt, sem gert er ráð fyrir í 3. gr. jafnlauna- samþykktarinnar, enda var það krafa síðasta þings Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. I almennum kjarasamningum munu vera mjög mismunandi ákvæði um launagreiðslur til kvenna. 1 nokkrum kjarasamningum er svo kveðið á, að konum skuli greidd lægri laun en körlum, þó að um sömu störf sé að ræða og sömu menntunar sé krafizt af báðum. Á þetta t. d. við um verzlunar- störf. Hins vegar eru í öðrum kjarasamningum ákvæði um algert launajafnrétti við ýmsa vinnu og þá einkum þau störf við fiskvinnslu, sem erfið- ust eru og til skamms tíma hafa verið talin karl- mannsverk eingöngu. Einnig má geta þess, að við þau störf, þar sem krafizt er æðstu menntunar, njóta konur fyllsta jafnréttis. Þegar svo er komið, að launajafnrétti ríkir jafnt í verstu erfiðisvinnu og við þau störf, sem krefjast sérstakrar sérmenntunar, virðist torvelt að finna rök fyrir því, að t. d. við verzlunarstörf og í iðnaði séu konur það miklir eftirbátar karlmanna, að rétt- mætt sé að greiða þeim mun lægri laun í þessum starfsgreinum. Krafan um launajafnrétti er gömul og svo aug- ljóst mannréttindamál, að það þjóðfélag, sem tel- ur sig veita öllum þegnum sínum jöfn réttindi, get- ur ekki látið málin kyrr liggja, eins og þeim er nú raunverulega háttað, enda hefur rikisstjórnin með undirritun jafnlaunasamþykktarinnar skuldbundið sig til að vinna að framgangi jafnlaunareglunnar. Tillaga þessi var samþykkt í sameinuðu þingi 30. apríl síðastliðinn. Fimmta maí síðastliðinn gekkst Kvenréttinda- félag Islands fyrir almennum fundi ásamt laun- þegasamtökunum um launa- og atvinnumál kvenna. Á þeim fundi var samþykkt eftirfarandi áskorun: Almennur fundur haldinn í Tjarnarkaffi 5. maí 1958 að tilhlutan Kvenréttindafélags íslands, Al- þýðusambands Islands, Bandalags starfsmanna rík- is og bæja og Verzlunarmannafélags Reykjavíkur skorar á ríkisstjórnina að skipa nú þegar jafnlauna- nefnd samkvæmt þingsályktunartillögu nr. 73 frá 30. apríl 1958. Ennfremur skorar fundurinn á rík- isstjórnina að skipa í nefndina a. m. k. þrjár konur í samráði við K.R.F.l. og launþegasamtökin. Hannibal Valdimarsson félagsmálaráðherra skip- aði jafnlaunanefndina 21.maí 1958. 1 henni eiga sæti: Snorri Jónsson, formaður, Herdís Ölafsdóttir, Hulda Bjarnadóttir, Sigríður J. Magnússon, Valborg Bentsdóttir. 19. JtJNl 27

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.