19. júní - 19.06.1958, Síða 35
eru þrep né byggingar, er fólk að fást við þvott.
Síðan breiðir það þvottinn á fljótsbakkann. Þetta
er ákaflega áhrifarík og ógleymanleg sigling. —
Turnar, hvolfþök, mínarettur og musteri ber við
himin. Fjöldi sólhlífa er á fljótsbakkanum. Píla-
grímarnir eru dökkir á hörund og einstaka maður
síðhærður með alskegg. Eftir baðið fara jicir til
musteranna til þess að tilbiðja guð sinn. Oft sá ég
fólk, sem var málað á enni og annars staðar í
andliti. Er það merki um, að það hafi nýlokið
bænagerð. Þarna rýkur upp af einhverju á fljóts-
bakkanum, og nú segir fylgdarmaðurinn, að hér
megi ekki taka myndir, því að verið sé að brenna
lík. Rýkur upp af tveim bálköstum, en þrír kestir
bíða þess að verða brenndir. Meðan brennslan
stendur yfir, kemur stundum upp úr dúrnum, að
eigi sé nóg fé fyrir hendi til greiðslu á brennsl-
unni. Er henni þá hætt og leifunum fleygt í fljótið.
Að öðrum kosti er öskunni dreift í fljótið. Þykir
mjög eftirsóknarvert að sameinast hinu helga
fljóti á þann hátt. Fólk kemur langar leiðir til þess
að deyja þarna eða líkin eru flutt til brennslu
við Gangesfljót.
Benares er ekki einungis mikilvægur staður fyrir
Hindúatrúarmenn, heldur einnig fyrir Búddha-
trúarmenn, því að það var í Sarnath, nokkrar míl-
ur frá Benares, sem Búddha flutti fyrstu prédikun
sína og kunngerði heiminum kenningar sinar. —
Búddhatrúarmenn byggðu þarna kGnctur stup-
ur, en rústir þeirra hafa verið grafnar upp. Stupa
er haugur eða turn, holur að innan, og geymir
helga dóma. Þær eru oft byggðar úr steini með
ýmiss konar myndaflúri. Dhamekstupan er 150 fet
á hæð. Þar mættum við fjórum Tíbetbúum, sem
sennilega hafa verið pílagrímar og komið fótgang-
andi að heiman. Þeir voru berfættir, í rifnum og
bættum görmum, en feitir, pattaralegir og glað-
legir. Einn þeirra var með smápoka í bandi um
hálsinn, líklega undir skildinga. Einn pílagrím-
anna, held ég, að hafi verið stúlka. Hún var feimin
og hljóp burtu, þegar ég ætlaði að taka mynd af
henni, en herrarnir voru hinir kátustu og báðu
nhg um pening, þegar ég hafði fengið að taka af
þeim mynd. Þeir voru alldökkir, sumir með hálf-
sítt, úfið hár, grófgerðir í andliti með lítil augu.
Lagði af þeim stæka ullarlykt. Nálægt Dhamek-
stupunni er hvítt nútíma Búddhamusteri með há-
um tui-num og mikilli sundurgerð. Umhverfis voru
víðir vellir með ljómandi fallegu blómskrúði í öll-
um regnbogans litum. Inni í musterinu var ungur
1 9. JUNI
maður við guðræknisiðkanir. Fleygði hann sér flöt-
um hvað eftir annað með jöfnu millibili fram á
gólfið frammi fyrir geysilega stóru Búddhalíkneski,
þangað til svitinn bogaði af honum. Þá tók hann
sér smáhvíld, en byrjaði fljótlega aftur. Tíbet-
búamir komu nú inn í musterið, en ég held helzt,
að þeir hafi verið feimnir við gestina frjl Vestur-
löndum. Á veggjum musterisins voru málverk eftir
japanskan listamann, sem lýsa atburðum úr lífi
Búddha.
Benares hefur frá fornu fari verið aðsetur heim-
spekinga og málfræðinga. Hindúaháskólann í Ben-
ares sækja stúdentar hvaðanæva að á Indlandi og
erlendis frá. Daginn, sem við heimsóttum háskól-
ann, var skólahátið og samkomusalur skólans þétt-
setinn glæsilegum ungum stúdentum og gestum.
Nóbelsverðlaunaskáldið frá Islandi og kona hans
voru kynnt fyrir stúdentunum af sviðinu. Bauð
rektor háskólans þau velkomin með ræðu. Nem-
endur sungu og léku indverska tónlist á ýmis inn-
lend hljóðfæri, og fleira var til skemmtunar.
f háskólanum er merkilegt málverkasafn, Bharat
Kala Bhavan, frá ýmsum tímum indverskrar mál-
aralistar.
Eitt af þvi, sem Benares er fræg fyrir, er silki-
vefnaður. Þar sá ég ákaflega fallega gullofna saría
og sjöl. Vefnaðurinn er fjölbreyttur og mynztrin
glæsileg.
Hin stutta dvöl í fornu borginni Benares verður
mér ógleymanleg engu síður en svo margt annað í
stórkostlegri og fróðlegri ferð kringum hnöttinn.
Halla Bergs.
Taj Mahal.
33