19. júní


19. júní - 19.06.1958, Page 36

19. júní - 19.06.1958, Page 36
RÖKKVR. Við amma sitjum í rökkrinu og prjónum. Það er ein þegsara dásamlegu rökkurstunda, þegar allt er hljótt og kyrrt. Fólkið hefur lagt sig og sofnað, hægur andardráttur þess heyrist. tJti fyrir glugg- anum svífa snjókornin til jarðar, eitt og eitt — það er vetur. Þannig höfum við amma oft setið áður og skrafað. En núna langar mig í þulu eða aevintýri, svo að ég bið ömmu að verða við þeirri ósk. „Auktu þá spori við leti mína og sæktu fyrir mig mórauða hnykilinn rninn“, segir amma. Þegar ég hef náð í hnykilinn, setjumst við, og amma byrjar söguna. Sagan er afar venjuleg. Kóngur og drottning áttu sér dóttur, og karl og kerling áttu sér son. Meira þarf ekki, þarna er efnið komið í góða sögu. Óðar en varir er herbergiskytran hennar ömmu orðin að ævintýrahöll, og með augunum hennar ömmu sé ég gegnum holt og hæðir. Karlsson berst við óargatröll og óvættir, frelsar að lokum lokkaprúða kóngsdóttur, fær hana að launum og hálft ríkið með. Þessi endir kom mér raunar ekki á óvart, því að amma segir mér aldrei önnur ævintýri en þau, sem enda vel. Vonandi tekur hún ekki eftir, að stund- um svífur á mig eins konar höfgi og ég gleymi alveg að hlusta. Allar svipmyndirnar hverfa burt, eftir situr aðeins gömul kona með prjónana sína á rúmstokknum. Ég hnipra mig saman á skemlin- um við fætur hennar og stelst til þess að horfa á mjúkar snjóflygsurnar flögra fyrir utan glugg- ann. Eftir andartak réttir amma úr sér, prjónaskrjáfið eykst, og ofurlítill titringur í rödd hennar vekur vonir um, að eitthvað mikilvægt muni bráðum gerast í frásögninni. Hún hefur þá fundið, hvað mér leið, heimsk var ég að halda, að ég gæti blekkt hana; ég ætti að vera farin að þekkja, að hún amma getur séð mig án þess að horfa á mig, fundið til mín án þess að vita af mér. Og ég gleymi mér á nýjaleik, og ævintýrið heldur áfram að gerast milli okkar ömmu. Ég bíð aftur í ofvæni eftir fram- haldinu, sem ég veit þó, hvernig verður. Ég finn vel nú, að það var ekki sagan sjálf, sem ég var að sækjast eftir, heldur að vera í návist Þórdís Þorgeirsdóttir. ömmu, taka þátt í hugarheimi hennar, heyra hana þylja fornar sögur og ævintýri og finna blæ- inn, sem hvíldi yfir öllu, á meðan rökkrið seig hægt og hægt yfir sveitina. Þessu sama hafa flest íslenzk börn sótzt eftir öldum saman, þessum hugljúfu stundum, sem færðu birtu og ljóma ævintýranna til þeirra gegn- um skammdegismyrkrið, sem annars hefði orðið þeim óbærilegt. Nú eru slíkar rökkurstundir óðum að hverfa úr tilveru islenzkra barna með vaxandi gengi þjóðar- innar. Nú geta flestir veitt sér að kveikja ljós, óðar en dimmir, og er það vel. En eru börnin ham- ingjusamari, megnar það ljós að kveikja eld sálar- innar? Ég veit það ekki, en hitt er víst, að ekkert getur komið í staðinn fyrir rökkurstundirnar við fótskör hennar ömmu. Arndís SigurÖardóttir. 34 1 9. JÚNÍ

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.