19. júní - 19.06.1958, Síða 40
er það notað til pokagerðar og í annars konar efni,
sem nauðsynlegt er að séu eldtraust.
Löngu áður en E. Stanford uppgötvaði alginsýr-
una, höfðu Japanir notfært sér lífræn efni rauðþör-
unga til iðnaðar. Framleiðsluvaran agar agar varð
fyrst kunn í Evrópu, er R. Koch uppgötvaði ágæti
hennar árið 1883 við gerlarannsóknir, en áður hafði
gelatín verið notað. Upp frá því varð mikill útflutn-
ingur frá Japan til Evrópu og annarra heimsálfa,
og notkunin varð almennari ekki aðeins við gerla-
og svepparannsóknir, en líka í alls kyns iðnaði.
Þegar dró úr útflutningi Japans vegna aukinnar
notkunar innan lands og einkum eftir að heims-
styrjöldin lokaði viðskiptunum, komst skriða á
framleiðslu carrageens og annarra agar agar-likra
efna, sem unnin eru úr rauðþörungum í öðrum
löndum. Og með aukinni tækni hefur verið hægt
að framleiða carrageen, sem á mörgum sviðum
getur komið í stað agar agars.
Hagnýting carrageens er margvísleg, eins og
hinna fyrmefndu efna, alginata og agar agars, og á
sama hátt og þau er það notað sem hleypiefni i
alls konar matargerð og sem bindiefni í hvers kon-
ar iðnaði.
Fleiri efnasambönd þörunganna eru notuð til
iðnaðar, t. d. maniít, laminarin, aukaefni við algin-
sýruframleiðslu, og fucoid, en þau eru að minnsta
kosti enn ekki eins mikilvæg og þau, sem að fram-
an er getið.
Eins og sagt var í upphafi þessa máls hefur fram-
leiðsla á fóðurmjöli úr þangi mikið gildi. Rann-
sóknir á mjölinu hafa leitt í ljós, að það er auðugt
af mikilvægum efnum, svo sem vítaminum og
steinefnum, og fóðurtilraunir hafa sýnt, að það er
mjög heppilegt til fóðurbætis fyrir öll húsdýr. Hef-
ur því markaður fyrir þangmjöl stóraukizt á sein-
ustu árum.
Norðmenn, sem flytja út mikið af fóðurmjöli
auk annarra þörungaafurða, sendu fyrir nokkrum
árum á markaðinn þangmjöl til manneldis. Þetta
mjöl ber vörumerkið Vitalia, og fer notkun þess
vaxandi.
Við strandlengju Islands (ca. 6000 km) er gnægð
af þörungagróðri, sem hefur ennþá ekkert verið
nýttur, en á vegum rannsóknarráðs rikisins hefur
verið hafin umfangsmikil rannsókn til að kanna
möguleika á framleiðslu þaraafurða og þá helzt
alginsýru hér á landi. Álit þeirra manna, er að
rannsókninni unnu, liggur fyrir í ýtarlegri grein-
argerð (1950—54). Af 60 ferkílómetra svæði, sem
rannsakað var á Rreiðafirði, var 25 ferkílómetra
svæði vel fallið til þaravinnslu, og á því svæði var
magnið af þara 75000 tonn. Var álitið, að þara-
svæði þetta gæti nægt verksmiðju, er notaði 10
þúsund tonn af þara árlega. Með þáverandi verði
(1950) á fullverkaðri alginsýru reiknaðist árleg
framleiðsla 10 millj. króna virði.
Einnig voru ýtarlegar athuganir gerðar á því,
hvort það mundi borga sig að reka slíkan iðnað við
þær aðstæður, sem hér eru. Niðurstaða þeirra at-
hugana var sú, að talið var líklegt, að þaravinnsla
yrði arðvænleg, einkum ef nýtt væru bæði algin-
sýra og önnur aukaefni. Var notkun jarðhita talin
frumskilyrði.
Þessi greinargerð var fengin 1954, en árið 1957
var borin fram þingsályktunartillaga, þar sem
farið var fram á, að lokið yrði við þær athug-
anir, sem gerðar hafa verið til að kanna mögu-
leika á þang- og þaravinnslu hér á landi. Athuga
skyldi, hvort ekki væri unnt að vinna þang og
þaramjöl i þeim síldar- og fiskimjölsverksmiðjum,
sem til eru í landinu. Einnig skyldi athugaður
möguleiki á notkun jarðhita við framleiðsluna og
hvort grundvöllur sé fyrir alginsýruframleiðslu.
I greinargerð tillögunnar segir meðal annars,
að Norðmenn hafi notað mikið síldar- og fiskimjöls-
verksmiðjur til að fullhreinsa, þurrka og mala
mjölið, og sé það sérstaklega athyglisvert fyrir Is-
lendinga, er eigi fjölda slíkra verksmiðja, er skort-
ir verkefni.
Það væri æskilegt, að þessi þingsályktunartillaga
yrði til þess, að lokasporið yrði stigið í þeim undir-
búningi, sem er nauðsynlegur til að þörungavinnsla
geti hafizt hið bráðasta hér á landi. Þjóðarbúskap-
urinn hefur ekki ráð á, að þetta dragist öllu lengur.
Þórunn ÞórSardóttir.
Á góÖviðrisdegi
ég gladdist með þér.
Nú grœt ég þig eigi,
þú gleymt hefur mér.
Frá vetri ég vakna,
er vorið mér hlœr,
og sízt mun ég sakna
sólar í gær.
Valborg Rentsdóttir.
38
1 9. JÚNI