19. júní


19. júní - 01.10.1994, Blaðsíða 5

19. júní - 01.10.1994, Blaðsíða 5
Mál ekki Lckin nógu iösluni tökum »Það eru svo til eingöngu karlmenn í lög- reglunni, konur eru aðeins um 4% og það er of lágt hlutfall til að þær geti haft ein- hver áhrif,“ segir Dóra Hlín. „Þar af leið- andi virðist afstaða oft tekin, eflaust ómeð- vitað, með gerandanum, sem oftast nær er karlmaður, en ekki fórnarlambinu sem í flestum tilfellum er kona eða barn. Málin eru ekki tekin nógu föstum tök- um strax,“ segir Dóra. Þá segir hún það hafa verið algengt, að málum væri vísað til Félagsmálastofnunar án þess að skýrslur væru teknar og þar hafi oft verið tekin sú ákvörðun að það borgaði sig ekki að leggja fram kæru. Almennt væri of mikil áhersla lögð á að vernda friðhelgi einkalífsins þegar grunur um heimilisofbeldi eða brot gegn börnum væri að ræða, einkum og sér í lagi ætti þetta við þegar um væri að ræða „góð keimili“ eða fjölskyldur sem hafa góða stöðu innan samfélagsins. Mál opnist frek- ar ef fjölskyldumeðlimir eru skjólstæðingar Félagsmálastofnunar. Dóra Hlín segist stundum velta fyrir sér hvers vegna konur hafi verið ráðnar til starfa hjá lögreglunni þar sem sjónarmið þeirra og reynsla fái ekki að njóta sín sem skyldi. „Við erum ekki öll steypt í sama mótið og ólík sjónarmið verða að fá að njóta sín inn- an lögreglunnar sem annars staðar." Fljóllcga viðurkcnnd scni cin strákunuiii Hún var ráðin til starfa 1973 ásamt Katr- inu Þorkelsdóttur og voru þær fyrstu kon- urnar sem ráðnar voru til að gegna sömu störfum og karlarnir. Fyrsta konan var ráð- m til lögreglunnar 1954 og í kjölfarið voru ráðnar þrjár konur til afmarkaðra starfa. Þær fóru elcki í Lögregluskólann, voru ekki etnkennisklæddar og unnu aðallega að unglingamálum í tengslum við Barna- verndarnefnd Reykjavíkur. Þær konur sem hófu störf eftir ’73 gengu hins vegar í sömu störf og karlarnir. »Ég var fljótlega viðurkennd sem „ein af strákunum" og eftir um það bil 3 ára starf í alniennu lögreglunni fór ég að vinna hjá Rannsóknarlögreglu Reykjavíkur og flutti svo sjálfkrafa til Rannsóknarlögreglu Rikis- uis eftir að það embætti var stofnað. Smám saman fór ég að vinna við kynferðisbrota- mál og eflaust hefur sú staðreynd að ég er kona ráðið einhverju þar um. Eftir að hafa unnið í þessum málaflokki 1 ákveðinn tíma fór ég að efast meir og Uieir um að þessi mál væru unnin á réttlát- an hátt fyrir alla málsaðila. Mér fannst vera óeðlilega mikil samúð með gerendunum en það er alls eldci óeðlilegt því menn hafa dlhneigingu til að taka afstöðu með kyn- bræðrum sínum þegar um er að ræða karlastétt eins og lögregluna. Það voru því ekki sömu viðhorf til þess- ara mála innan lögreglunnar og úti í sam- félaginu, einkum þó meðal kvennahópa sem hafa sérhæft sig í þessum málaflokk- um. Þar er litið á þessi brot frá sjónarhóli þolendanna sem í flestum tilfellum eru konur og börn. Eftir að ég fór að vinna með þessum kvennahópum fór ég að upp- lifa mig sem flugumann á vinnustað. I>ögnin vinnnr nicð brotamönnnnum Ég hef stundum velt því fyrir mér hvers vegna vinna er lögð í að reyna að uppræta glæpi þegar sumir glæpir fá að þrífast í skjóli þagnar. Löggjöf er sett til að vernda hagsmuni þegnanna en viðhorf þeirra sem vinna að þessum málum skipta ekki minna Dóra Hlín, ein fyrsta íslenska lögreglukon- an, horföi björtum augum til framtíðarinn- ar við upphaf starfferils síns. máli. Það er alvarlegur hlutur að ýta þess- um málum frá, því þögnin vinnur alltaf með brotamönnunum.11 Dóra Hlín segir að þegar hún líti til baka sjái hún að konurnar í lögreglunni hafi þurft að laga sig að viðhorfum karl- anna til að vera viðurkenndar. „Meðan ég lagaði mig vel að ríkjandi viðhorfum var ég talin hæf af yfirmönnum en eftir að ég fór að efast um að þau viðhorf sem voru ríkj- andi væru sanngjörn þá má segja að ég hafi hreinlega fallið í ónáð. Nú er búið að ýta mér út úr þeim málaflokkum sem ég vann með og búið að setja mig í vinnu við boð- anir, en það er lægsta staðan hér innan RLR, nokkurs konar sendlastarf." Hún segir margar lögreglukonur með- limi í Evrópusambandi lögreglukvenna og þar sé talað um að ef viðhorf og sjónarmið kvenna innan lögreglunnar eigi að hafa einhver áhrif þá þurfi þær að vera um 20% af heildarfjölda. „Lögreglukonur í Evrópu virðast alls staðar upplifa svipuð viðhorf innan lögreglunnar. Hollenskar lögreglu- konur héldu ráðstefnu um málefni lög- reglukvenna 1989 og við fórum fimm héð- an frá íslandi. Þetta var mjög lærdómsríkt og þar kviknuðu ýmsar hugmyndir. Lög- reglukonur hætta mjög oft störfum eftir barnsburð þar sem ekki er hægt að fá hlutastöður. Hollendingar gerðu átak til að endurráða konur sem höfðu hætt af þess- um sökum og mátu að verðleikum þá reynslu sem þær höfðu öðlast af barnaupp- eldi. I kjölfarið af ráðstefnunni ’89 var Evr- ópusamband lögreglukvenna stofnað.“ Kríuriiar - samlök lögrcglula'cniia „Þaðan fengum við svo hvatningu um að stofna félag hér á landi og í mars s.l. stofn- uðu lögreglukonur á íslandi félag sem heit- ir Kríurnar. Félagar eru um 20 talsins, allt konur enn sem komið er, en karlmenn eru hjartanlega velkomnir, þ.e. ef þeir hafa áhuga á að styrkja stöðu lögreglukvenna. Tilgangur félagsins er gagnkvæmur stuðningur, að miðla hver annarri af reynslu og þekkingu, efla störf lögreglu- kvenna, auðvelda samskipti við Evrópu- samband lögreglukvenna og vera ráðgef- andi varðandi störf á meðgöngu og eftir barnsburð. Þá fáu mánuði sem við kon- urnar höfum verið að hittast og bera sam- an bækur okkar eftir að félag okkar var stofnað hefur komið í ljós hvað við höfum mikla þörf fyrir samstöðu, því konur hafa mikið til staðið einar fram að þessu. Fé- lagsskapurinn hefur einnig verið kjörinn vettvangur til að kynnast hver annarri því við erum dreifðar milli embætta, vakta og deilda. Við höfum komist að því að við eigurn ýmislegt sameiginlegt, margar eig- um við ættingja innan lögreglunnar og höfum líklega verið ráðnar til starfa af þeirn sökum. Faðir minn var t.d. lögreglu- maður og það er eflaust ástæða fyrir því að ég fékk áhuga á starfinu og hefur haft sitt að segja þegar ég var ráðin. Stúlkur virðast hafa mikinn áhuga á störfum innan lög- reglunnar, það sýna starfskynningar. Ég held að það sé orðið tímabært að Dómsmálaráðuneytið móti stefnu um mál- efni lögreglukvenna, hvort ráða eigi konur til starfa innan lögreglunnar og þá einnig hve margar, í samræmi við þingsályktun um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynj- anna sem samþykkt var á Alþingi s.l. vor, en þar er hvatt til þess að markvisst verði unnið að því að ráða fleiri rannsóknarlög- reglukonur í störf hjá RLR 5

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.