19. júní - 01.10.1994, Síða 6
Víða annars staðar er það stefna stjórn-
valda að fjölga lögreglukonum þar sem við-
horf þeirra eru talin nauðsynleg innan lög-
reglunnar.“
Lögreglukonur silja eflir við
slöðuliækkanir
Dóra Hlín segir langflestar lögreglukonur
vera í almennu lögreglunm
Þær vinna mikið á nætur-
vöktum og þeim er skylt eins
og öðrum lögreglumönnum
að vinna fasta yfirvinnu.
„Þessi vinnutilhögun gerir
það að verkum að marg...
konur hætta eftir barnsburð
þar sem þær geta ekki sinnt
þessu vinnuálagi.“
Það er því óopinber stefna
lögregluyfirvalda að störf
innan lögreglunnar og
barnauppeldi fari ekki sam-
an og yfirmenn hafa verið ósveigjanlegir í
þessu. En þó að konurnar sinni almennri
löggæslu á við karlana hafa þær greinilega
setið eftir við stöðuhækkanir.
Ef litið er á valdakerfi lögreglunnar þá er
engin kona yfirlögregluþjónn, engin að-
stoðaryfirlögregluþjónn og engin aðalvarð-
stjóri. Af 29 lögreglufulltrúum er ein kona
og tvær konur eru rannsóknarlögreglu-
menn, af 76. Af 113 varðstjórum eru tvær
konur, engin kona er aðstoðarvarðstjóri. Af
204 flokkstjórum eru 10 konur en þangað
komast menn sjálfkrafa eftir 5 ára starf
innan lögreglunnar. Flestar konurnar sinna
almennri löggæslu, af 80 lögregluþjónum
eru 9 konur.
Dóra segir að ef vinna eigi á markvissari
hátt gegn glæpum þar sem konur og börn
eru þolendur þá þurfi að breyta þeim við-
horfum sem
KARLAR
KONUR
AAstoöar-
yfirlögreglu
þjonar
Yfirlögreglu
þjónor
við lýði innan lögreglunnar í dag. „Gamalt
dæmi sem gerðist úti á landi fyrir nokkrum
árum lýsir þessum viðhorfum. Stúlka leit-
aði illa til reika til lögreglunnar fyrir utan
samkomuhús og sagði að sér hefði verið
nauðgað og vísaði á árásarmanninn sem
var þarna fyrir utan. Lögreglumennirnir
handtóku manninn en urðu þá varir við
ölvunarakstur sem þeir mátu sem alvar-
legra brot og létu manninn því lausan og
fóru að eltast við hinn drukkna ökumann.
Ættingjar konunnar höfðu upp á nauðg-
aranum nokkrum dögum síðar og lagði
hún þá inn kæru hjá RLR.
Eg tel að það þyrfti að ráða fólk sérstak-
lega til að sinna þessum málaflokkum inn-
an lögreglunnar og gæta þess að tekið sé
tillit til fag-
legra sjónar-
miða, þannig
að sálfræð-
ingur eða fé-
lagsráðgjafi
vinni innan
RLR. í deild
sem hefur
með rann-
sókn á efna-
hagsbrotum
að gera eru
sérfróðir
starfsmenn
" I fastráðnir. Að
mínu viti er
ekki síður
þörf á að fastráða sérfræðinga á þá deild
sem hefur með ofbeldismál að gera. Það
þarf mikla sérþekkingu til að átta sig á fjöl-
skyldumynstri og stöðu hvers og eins í fjöl-
skyldum þar sem t.d. um sifjaspell er að
ræða. A þann hátt er hægt að vinna að því
að fækka þessum ofbeldisverkum því starf
lögreglunnar á ekki síst að vera fyrirbyggj-
andi,“ sagði Dóra Hlín að lokum.
Löqrcglu-
þjónor
ORYGGISSIMI MEÐ ÞRAÐLAUSUM NEYÐARHNAPPI
LANGÞRAÐ LAUSN A VIÐKVÆMU VANDAMALI
KVENNA SEM BÚA VIÐ OFBELDI OG EINELTI
„...eins og að hafa verndarengil..."
„...hjálpaði mér að lifa lífinu á ný..."
eru umsagnir kvenna sem hafa öryggissíma.
Áður óþekkt öryggi og þægindi
meb öryggissíma fró VARA
ORYGGIS^ ^VORUR^
„Þegar öryggid skiplir öUu“
SKIPHOLTI 7 • SÍMI 29399 • OPIÐ 10-18 MÁNUD,- FÖSTUD.
6