19. júní


19. júní - 01.10.1994, Side 21

19. júní - 01.10.1994, Side 21
Markviss \1nna en elilci áhlaup kynnti verkefnabókina Grósku sem gef- in hefur verið út fyrir fulltrúa í jafnréttis- nefndum. Ragnheiður byrjaði á að skýra frá niðurstöðu úr könnun sem gerö var í Noregi á starfi jafnréttis- nefnda en ástandið þar virðist lítið betra en hér á landi. í könnuninni kom fram að aöeins um 1/4 hluti nefnd- anna er virkur en svör bárust einungis frá 46% skipaöra nefnda. Algengast er að konur séu formenn jafnréttisnefnda í Noregi, oftast virkar í pólitík og þá á vinstri væng. Ef formaðurinn er virkur er nefndin virk og meiri líkur eru á virku starfi ef skipuö er sérstök jafnréttis- nefnd. Um vanda jafnréttisnefnda sagði Ragnheiður: „Viðfangsefnið er vissu- lega yfirgripsmikið og verkefnin blasa ekki við. Nefnarmenn eru óvanir að sjá jafnréttisjónarhorn á málum og þurfa að venja sig á að líta á öll mál með „jafnréttisgleraugum". Þegar engin verkefni berast nefnd getur hún átt erf- itt með að skynja tilgang meö tilvist sinni og oft eru þessar nefndir fjár- sveltar. Auk þess getur fólk verið skip- að í jafnréttisnefnd þótt það hafi engan áhuga á jafnréttismálum." Því næst ræddi Þórveig Þormóðs- dóttir, fulltrúi í jafnréttisnefnd BSRB, um samstarf jafnréttisnefnda sveitar- félaga og jafnréttisnefnda stéttafélaga. Greindi hún frá jafnréttisáætlun sem nefndin ætlar að leggja fyrir þing BSRB en eitt markmið þeirrar áætlunar er að kynjahlutfall í stjórn, nefndum og ráðum sambandsins endurspegli hlutfallið í samtökunum sem er 66% konur og 34% karlar. Þórveig taldi jákvætt ef hægt væri aö koma á samstarfi milli jafnréttisnefndar BSRB og jafnréttis- nefnda sveitarfélaga en starfsmenn þeirra eru einmitt félgagar í BSRB. Ekki halda fundi við eldhúsborð í umræðum á eftir var rætt um vanda jafnréttisnefnda í litlum sveitar- félögum og starfsmenn Skrifstofu jafnréttimála spurðir ýmissa gagn- legra spurninga. Oft kom fram hjá fundarmönnum að starf nefndanna mætti litlum skilningi hjá þeim sem fara meö stjórn sveitarfélaganna. Stefanía Traustadóttir brýndi fyrir fólki aö taka starfiö jafn hátíðlega og starf í öðrum nefndum: „Það þarf að hafa fastan funaartíma á ákveðnum fund- arstað, t.d. einu sinni í mánuði, boða fundi meö prentaðri dagskrá, skrifa fundargerð og senda hana til nefndar- manna. Það er alltof algengt að fundir í jafnréttisnefndum fari fram við eld- húsborð einu sinni til tvisvar á ári. Meö slíkum vinnubrögðum minnka nefndarmenn sjálfa sig og starf sitt,“ sagði Stefanía. Elísabet Þorgeirsdóttir Seinni dag landsfundarins var fjallað um jafnréttisáætlanir sveitarfélaga og hvort jafnréttisnefndir geti haft áhrif á þróun til meiri launajöfnunar. Einnig var greint frá störfum kærunefndar jafnréttismála, sagt frá um könnun á launamuni karla og kvenna á íslandi og talað um starfs- mat. Fulltrúar jafnréttisnefnda sögðu frá störfum nefndanna og í umræðum á eft- ir var Jafnréttisráði falið að koma á fram- færi óánægju fundarmanna með skipan í nefnd sem á að endurskoða reglur um starfsmat en í þeirri nefnd sitja fjórir karlar og ein kona. Stefanía Traustadóttir skýrði í upp- hafi frá gerð jafnréttisáætlana sem er tímabundin, formlega samþykkt áætl- un. Sagði hún að íslendingum félli illa aö setja sér langtímamarkmið og vinna að ýmsum smáatriðum dag frá degi. Okkur henti betur að vinna í áhlaupum að átaksverkefnum. „Frá 1985 hefur ríkisstjórnin gert 4 ára áætlun í jafnréttismálum og hafa opinberar stofnanir þurft að gera jafn- réttisáætlanir um starfsmannamál sín. Mjög er misjafnt hvernig er staðiö að gerð þessara áætlana og engar reglur eru til um það hvernig á aö framfylgja þeim. Við íslendingar verðum að læra að vinna á þennan hátt. í Svíþjóð hefur verið unnið lengi eftir svona áætlunum og má líta upþskeru þess m.a. í skipan ríkisstjórnar Svíþjóðar enda hefur því marki verið náö hægt og sígandi," sagði Stefanía. Valgeröur Bjarnadóttir, fræðslu- og jafnréttisfulltrúi Akureyrar lýsti því næst gerð jafnréttisáætlunar en á Akureyri var slík áætlun fyrst samþykkt 1989 og endurskoðuð á síðasta ári. Eitt af því sem jafnréttisáætlunin hefur komiö til leiðar er aö í auglýsingum um störf á vegum Akureyrarbæjar eru konur sér- staklega hvattartil að sækja um. Sagði Valgerður að smátt og smátt hafi fræðslustarfið sem bærinn hefur staðið fyrir skilað sér í aukinni meðvitund um jafnréttismál. Stærsta verkefnið I þeim efnum er Menntasmiðja kvenna sem tók til starfa í ágúst sl. en þar sækja 20 atvinnulausar konur nám T dagskóla. Valgerður fór síðan yfir jafnréttisáætl- un Akureyrar og skýrði tilgang hennar og markmiö. „Vinna að jafnréttismálum er þolinmæðisverk. Starfið gengur hægt og erfitt er að mæla árangurinn en umræðan hefur aukist og ýmis óbein áhrif eru sjáanleg. Jafnréttis- nefnd var fyrst skipuð á Akureyri 1982 og tók nefndin sér góöan tíma til lest- urs og umræðu fyrstu árin,“ sagöi Val- gerður. Fládegisverður var snæddur í boði Sambands íslenskra sveitarfélaga. For- maður þess, Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son, ávarpaði fundarmenn og nefndi mörg dæmi um að hér á landi er mikið verk óunnið þangað til jafnrétti næst, m.a. varðandi þátttöku I opinberum störfum. Kvennaafsláttur og karlabónus „Launamunur - hvernig verður hann til - hvað getum við gert?" var yfirskrift ræðu Ragnheiðar Harðardóttur. Hún sagði frá norrænu jafnlaunaverkefni sem lauk á Nordisk Forum í Finnlandi. Mikla athygli vakti þar hin slæma staða sem hér er en á íslandi hafa karlar 40% hærri laun en konur. Það er mun meira en á hinum Norðurlöndunum þar sem munurinn er 20 til 25%. Ragnheiður tal- aði um hugtökin „kvennaafslátt" og „karlabónus" sem virðast rikjandi viö- horf þegar kaup og kjör eru annars veg- ar og eiga mikla sök á því kynbundna launamisrétti sem hér ríkir. Taldi hún mikilvægt aö konur kærðu meint launa- misrétti til kærunefndar jafnréttismála og benti á að jafnréttisnefndirnar gætu 21

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.