Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.12.1889, Page 3

Sameiningin - 01.12.1889, Page 3
—163— vera eða elcki vera. Og geti það ekki vakiS þá upp og kom- iö þeim til að sjá hinar kirkjulegu ógöngur, sem þjóð vor er komin út í, veit jeg ekki, hvað annað ætti að verða til þess. Jeg fyrir mitt leyti vona, að það gæti orðið til þess, að hinar kristilegu leifar fóllcs vors færu að vakna til kirkjti- legrar starfsemi; þær færu þá að reyna að bjarga eins mörgum og unnt væri af farþegjuin hins söklcvanda skips hinnar ís- lenzku kirkju. það er einmitt þessi tilfinning, sem hrundið hefur á á stað hinum kirkjulega fjelagsskap vorum hjer. Hinir kristilega hugsandi menn og konur, sem hjer höfðu tekið sjer bólfestu, sáu, að nú var spursmálið einmitt um að vera eða elclci vera í kirkjulegu tilliti. Svo framarlega ekkert yrði gjört, til að láta guðs orð og hin heilögu sakramenti búa meðal ftilks vors hjer, mundi kristindómur þess hverfa, það mundi t\'ístrast og týnast og líða skipbrot í andlegu til- liti. 0g svo var gengið að því starfi, að bvggja upp kirkjuleg- an fjelagsskap meðal vor. það eru að eins rúm fimm ár, síðan sú vinna komst í það horf, sem hún nú hefur. þeg- ar örðugleikar þeir, sem við hefur verið að stríða, eru teknir til greina, er það engan veginn lítið verk, sem af hendi hefur verið leyst. Aldrei í sögu þjóðar vorrar mun almenn- ingur fólks hafa lagt jafn-mikið í sölurnar fyrir trú sína og hinir fátæku íslenzku nýbyggjar hafa gjört hjer vestur frá. það er þannig ekki fyrir neitt valdboð frá hærri stöð- um, ekki einusinni fyrir forgöngu kirkjunnar á Islandi, að söfnuðir vorir hafa myndazt. það er eingöngu fyrir kristi- legan áhuga þeirra manna, sein þar hafa sjálfir átt hlut að ináli. þeir hafa öldungis ekki myndazt fyrir aðgjörðir neins klerkavalds, heldur þvert á móti fyrir sinn eigin kristilega áhuga. Hið kristilega frelsi hafa söfnuðir vorir ritað með gullnu letri á fána sinn. þeirn hefur verið um það hugað, að láta allt hið ytra fyrirkomulag vera sem allra frjálslegast; enda bera safnaðarlög vor þess ótvíræðan vott. Sðfnuðir vorir hafa sjálfir öll völdin í sinni hendi. Á fundum sínum taka þeir þau mál til meðferðar, sem fyrir þá eru lögð af meðlimum þeirra og láta þau fá þau afdrif, sein rneiri hluti safnaðarmanna kemur sjer saman

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.