Sameiningin - 01.01.1891, Blaðsíða 4
164—
skáldskaparverks séra Valdemars, a5 vér hiklaust áræðum
aS segja ];að fyrir, að ];að mun fyr eSa síðar fá viðrkenn-
ing’ sem eitthvert mesta og göfugasta ritið í íslenzkum
bókmenntuin. það ev eiginlega safn af biblíumyndum, rneist-
aralega dregnum upp af þessu þjóðskáldi voru. Og eins
og sýnishorn af verkinu í heild sinni leggjum vér nú eina
af þessum myndum fram fyrir lesendr vora í kvæði því,
sem hefir þessa fyrirsögn: Ljónagröfin. Séra Valdemar Briein
stendr eiginlega einn í ísienzkum nútiðar-bókmenntum.
Séra Mattías Jokkumsson hefir gjört hinn stór-fræga skáld-
prest þýzkalands, Karl Gerok, sem andaSist í fyrra, all-
kunnan þjóS vorri meS hinum prýðis-fögru þýðingum sín-
um af nokkrum beztu biblíuljóðunum hans. Séra Valdemar
Briem er Gerok Islands.
Um leiS og vér í þessu nr.i „Sam.“ erum svo heppnir,
að geta látiS lesendr vora fá vandaða mynd af séra Valde-
mar jafnframt þessari biblíumynd eftir hann, sem nefnd
er Ljónagröfin, skuluin vér geta þess, aS hann er
freddr á Grund í Eyjafirði 4. Febr. árið 1848, og einn af hinum
mörgu börnum Olafs Briem og Dómhildar þorsteinsdóttur konu
hans. Frá því hann var eitt hvað tíu ára gamall ólst hann upp hjá
föSurbróður sínum, séra Jóhanni Briem í Hruna. Arið 1863 kom
hann í latínuskólann í Reykjavík og tók þar stúdentspróf
1869, gekk svo ári seinna á prestaskólann íslenzka, tók
þar embættispróf 1872 og prestvígöist árið eftir 27. Apr.
1873 til Hrepphóla í Arnessýslu, fékk svo nokkru síðar
Stóra-Núp, lítið prestakall þar í nágrenninu, þar sem hann
síðan hetír dvalið, eins og einn af hinuin kyrrlátu í land-
inu, látandi varla noklcurn tíma neitt til sín heyra opin-
berlega út af íslenzkum þjóðmálum, en sí-vinnandi út af
fyrir sig aS sínu biblíulega skáldskaparverki. Um sama
leyti og hann varð prestr kvæntist hann frændstúlku sinni
og uppeldissystur Ólöfu, dóttur séra Jóhanns, mjög gáfaSri
konu.
það er einkennilegt við séra Valdemar Briein, að hann
hefir, eins og þegar er á drepiS, nálega alls ekkert orkt
nema trúarlegs efnis. I því greinir hann sig alveg frá öll-
um aðalskáldum Islands á þessari öld og í rauninni á öllum öld-