Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.09.1894, Page 6

Sameiningin - 01.09.1894, Page 6
—102— Jmr saman komnir 4 pnifastar, 10 prestar og 2 prestaskóla- kennarar, auk stiftsytirvaldanna, J>að er að segja biskups og amtmanns suðr- og vestrlandsins. Séra Ólafr Ólafsson í Arn- arbœli prédikaði og hafði fyrir texta 1. Mós. 4, 9-10 (:„þí sagði drottinn við Kain: Hvar er Abel bróðir þinn? Og hann mælti: það veit eg ekkki; á egað geta bróður míns?“ o. s. frv.). því næst var f'undrinn settr í efrideildarsal alþingishússins, og var nú, í fyrsta siuni í sögu synodusar, haldinn í heyranda hljóði. Hafði sú nýlunda verið samþykkt á synodus í fyrra. Annars gjörðist fátt, er tíðindum sætti, á samkomu þessari, enda stóð hún ekki yfir nema tæpar 4 stundir, að því er Kirlcjublaðið' segir frá. Eftir vanda var fé nokkru úthlutað til uppgjafapresta og prestaekkna og skýrt frá hag hins svo kall- aða prestsekknasjóðs. Biskup skýrði frá því, að nefndin, sem um árið var kosin til að endrbieta handbók presta, væri vinn- andi og hefði þegar komið sér sarnan um flest undirstöðu-atriði. Sömuleiðis vakti hann máls á sölu biblíunnar og nýja testa- mentisins frá brezka liiblíufélaginu og beiddist þar fylgis fuud- armanna. Einn prestr hreifði því, að prestum væri leyft að fella niðr guðsþjónustur í kirkjum sínum svo sem þrjá sunnu- daga á ári, svo þeir fengi þá tœkifœri til að heiinsœkja ná- grannapresta sína og heyra þá prédika. En því var mótmælt, og var í þess stað komið með þá bending, samkvæmt því, er tíðkast í Danmörk, að heppilegt væri, að nágrannaprestar, til þess betr að geta kynnzt hver öðrum, kœmi sarnan á virkum dögum hver hjá öðrum, í því skyni að rreða um andleg nrál, og enn fremr, að þeir í \iðh;gum á lielgum dt'gum hefði kirkna- skifti og flytti „messur' hver fyrir annan. Eftirfylgjandi tillaga kom frá biskupi og var samþykkt í einu hljóði: „Synodus lýsir yfir því, að nú, þegar viðunanlega er brett úr prestafœðinni á íslandi, sé það reskilegt, að nokkur prestaefni, sem því gæti við komið, vildi helga starfsemi sína andlegum þörfum landa vorra í Vestrheimi." S imuleiðis hreifði biskup samskotum td missíónsprestsins íslenzka í Utah, séra Runólfs Bunólfssonar, og ráðgjc'rði, að rita um það mál í pró- fastsdremin sunnanlands. Minnt var líka af einum fundarmanni (séra Jens Púlssyni)

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.