Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1896, Síða 10

Sameiningin - 01.10.1896, Síða 10
—122 — alþing stundum ekki sem vinveittast kirkjunni. Biskup sýnist hér hafa gengiS út frá því, að kirkjuleg samkoma gæti ekkert eiginlegt gagn gjört svo lengi sem hún ekki hefði vaid til að gefa út lög fyrir kirkjuna um hag hennar hið ytra. En bæði er það, að slík samkoma getr æfinlega haft óendanlegt umtals- efni þar sem er trúarkenning og siðalærdómr kr:stninnar, og í annan stað ætti þessi tilfinning fyrir því, að kirkjan hefir verið svift löggjafarvaldi í sínum eigin málum, að hrinda þeim öllum, er þá tilfinning liafa, á stað til þess tafarlaust að brjótast í því með öllu leyfilegu móti, að fá kirkjuna leysta undan ánauðaroki hins veraldlega valds. Og væri hvergi eins sjálfsagðr staðr til þess að bera þetta mál, inálið um aðskilnað ríkis og kirkju á Islandi, fram og taka það til alvarlegrar og rœkilegrar umrœðu en einmitt á synodus. þá fengi si/'nocfoi.s-mennirnir þó áendan- um nógu stórt umtalsefni snertandi hina ytri hlið kirkjunnar fyrir þá samkómu sína og þyrfti ekki að verða í ráðaleysi rneð það, hvernig þeir ætti að verja fáeinum klukkustundum, sem vanalega eru látnar ganga til þessa tómlcga fundarhalds. Og þá gæti hinir einstöku kirkjumenn þar heiina, sem þótzt lmfa trúað á frjálsa og ríkisstjórninni óháða kirkju, rekið af sér sliðruorðið fyrir það, að þeim liggi það vdferðarmál fyrir lnnd og lýð í léttu rúmi og hafi að eins verið að flagga með frjAls- lyndi sitt og varpa ryki í augu almennings, þegar þeir minntust á það mál eins og sitt eigið. En þá fyndist amtmanninum í Reykjavík, ef til vili, sér fara að verða ofaukið á synoi/us, sök- um afstöðu embættis síns við stjórnina, og að minnsta kosti kysi liann undir þeim kringumstœðum lielzt að sleppa forsetasætinu við biskupinn. Fjárskiftin til uppgjafaprestanna og prestaekknanna, sun stiftsyfirvöldin höfðu gjört, voru samþykkt á þessari synodus óbreytt eins og vanalega. Frumvarpið til endrbótar á handbók presta eða hið nýja form fyrir guðþjónustum og embættisverkum presta, sem þar til kjörin nefnd hafði samið og lagt varfyrir tynodus í fyrra, hafði enn þá eigi orðið prentað, og því ekki heldr fengið neina út- breiðslu meðal presta. það hafði hindrazt á árinu sökum embættisanna biskups. En biskupinn bjóst við, að frumvarp þetta yrði nú prentað í hftust,

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.