Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.10.1896, Qupperneq 14

Sameiningin - 01.10.1896, Qupperneq 14
—126— bœkr, sem eigi eru svo við alþýðuhœfi, að við eiganda þyki að þeirra sé minnzt í hinum almennu kirkjumálablöðum. Ein ein- asta skýrsla um prestaskólann á íslandi kom og út í gamla daga (1856), með svipuðu fyrirkomulagi og skólaskýrslurnar frá latínuskólanum. En líka við það fyrirtœki var hætt og það hefir aldrei verið lífgað aftr. ------í—o<>o—<------ Minning séra jiorkels 0. Sigurðssonar heitins til sóma hefir af bókaverðinum við Thiel College í Greenville, Pa., ritgjörð sú verið gefin út á prent, sem hann í fyrra var gjörðr að doktor í heimspeki fyrir þar við skólann. það er sérstakr ritlingr 30 blaðsíður að stœrð. Efni ritgjörðarinnar er: Thc cloctrine of reality in philosophical thought. Framan við bœklinginn er ofr-stutt æfiininning séra þorkels og mynd af honum, sem vel hefir heppnazt. ---------------------- Séra Jón J. Clemens, prestr safnaðanna í Argyle-byggð, Manitoba, ferðaðist í Agústmánuði til nýlendu Islendinga í Pipestone-sveit, sem liggr nærri vestrtakmörkum Manitoba- fylkis nálægt 70 mílum beint vestr frá Glenboro. Og er það í fyrsta sinn, að íslenzkr prestr hefir heimsótt það byggðarlag. Hann fór með járnbrautinni til Brandon og þaðan til Reston. Frá þeirri brautarstöð eru að eins 8 mílur til íslendingabyggð- arinnar. Idinn 12. Agúst hafði hann guðsþjónustusamkomu með nýlendubúum í húsi Kristjáns Bardals, og eftir prédikan tók hann fólk til altaris og skírði 7 börn. Nálega hvert manns- barn í nýlendunni sótti sainkomuna. Og komu menn sér sam- an um áðr en menn skildu, að koma framvegis saman til hús- lestrar-guðsþjónustu fyrsta sunnudag í hverjum mánuði í ein- hverju af íbúðarliúsum byggðarinnar. Er vonanda, að þetta verði byrjan til þess að nýlendubúar dragi sig saman bráðlega og myndi hjá sér reglulegan söfriuð. A leiðinni út til Islendingabyggðar þessarar heimsótti séra Jón hinn litla íslenzka söfnuð í Brandon. Dvaldi hann hjá þeim söfnuði sunnudaginn 9. Ágúst (10. e. trín.), liafði þar tvær guðsþjónustur, tók fólk til altaris og skfrði 4 börn. Talsverðan kirkjulegau áhuga þóttist hann vcrða var við meðal íslendinga

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.