Sameiningin - 01.12.1896, Síða 4
—148—
nema syndugr aumingja inaðr, eins og stendr. En þú hefir von
1 hjarta þínu. Og þá von hefir Jesús Kristr gefið þér með júla-
hátiöinni. Haldir þú jólahátíð eins og þú átt að gjöra, glœðist
sú von rneð hverjum jólum. þú hetír von um, þegar líf þitt er
liðið hér á jörðinni, að fá að halda eilíf jól á himni,—hjá þínum
himneska föður, hjá frelsara þínum, hjá englunum og öilum
þeim sem trúað hat'a á nafn guðs eingetins sonar hér á jörðinni.
það er hin fegrsta von og hin gleðiríkasta tilhugsan, sem vakn-
að getr í nokkurri mannssál.
Hugsaðu þá um hana; vermdu þig við hana, svo þér verði
hlýtt; vefðu þig inn í hana, þegar þér er kalt; láttu hana tala
við þig, þegar þú ert einn, þerra tárin þín, þegar þú átt bágt,
hvíla þig í faðmi sínum, þegar þú ert þreyttr.
Jólin og1 ljósin.
Eftir séra N. Steingrím Þorláksson.
þau verða ekki skilin að—ljósin og jólin. þau eru svo ná-
tengd hvort öðru, að oss er ekki unnt að hugsa oss jól án Ijósa.
Undir eins og vér hugsum um jólin, vaknar ljóshugmyndin hjá
oss. það er bjart yfir jólunum, enda er geislinn bjartr, sem af
þeim stafar inn í sálu trúaðs manns. Börnin hugsa líka til jól-
anna sem hátíðar ljósanna og fagna þeim eins og þau fagna
ljósinu, enda er ljósblettrinn skær, sem Ijósin mynda í sálum
þeirra. Hann var því fagr, jólasiðrinn á íslandi, að gefa öllum
kerti, gefa þeim ljós í jólagjöf. Sömuleiðis siðrinn hér, að gjöra
jólin minnisstœð ungum og gömlum með jólatrjánum alsettum
ljósum. Yér höfum myndaboekr, og eiga myndirnar að skvra
lesmálið. Ljósin á jólunum eiga að skýra fyrir oss hið mikla les-
mál jólanna, jólaboðskapinn. Enda höfuin vér fyrirmyndina
fyrir oss; því birta, himnesk ljóss-dýrð, myndaði umgjörðina um
hinn fyrsta jólaboðskap, myndaði svo að segja hvelfinguna yfir
jólasöngnum fyrsta. Jólaljósið, það var útskýring guðs sjálfs á
jólaboðsapnum, að ljósið væri upprunnið af hæðum, náðarsól
upp risin yfir mannkyni, sem „rneinvillt í myrkrunum lá“. Já,
sannarlega er jólaboðskaprinn ljós.
Yér kveykjum Jjós í húsum vorum, svo að verði bjart í