Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.12.1896, Page 13

Sameiningin - 01.12.1896, Page 13
—157— dagana, sem hann dvaldi hér, var veörið svo kalt og hart, að varla var út faranda. En árangrinn var ágætr. Samskotin hér urðu $538.75. Og vantaði þó mikið á, að hann fengi tœki- fœri til að bera erindi sitt fram við alla þá, sein hugsanlegt eða jafnvel líklegt er um að fúsir sé til að leggja eitthvað til sam- skotanna. En væntanlega kemr séra Jónas hingað að áliðnum Janúarmánuði og getr þá náð í ýmsa, sem ekki fékkst tuni til að finna í þetta sinn. Oss er ekki vel kunnugt, hve mikið af samskotum þeim, er fengust meðal Winnipeg-manna, var borgað séra Jónasi út í hönd. það er miklu minna tiltölulega en í hinum aðalbyggðunuin, sem hann hetír heimsótt, líklega nokkuð hátt á annað hundrað dollara ; en vér efumst ekki um, að allt borgist upp í topp á sínum tíma. Óhætt er að fullyrða, að enginn er til í hópi vorum, sem betr og heppilegar gæti rekið fjársöfnunarerindi skólamálsins en séra Jónas. Og á hann mikið þakklæti skilið fyrir hina ötulu vinnu sína og söfnuðir hans fyrir það, sem þeir leggja í sölurnar með því að missa hann frá sér meðan hann er að vinna þetta verk fyrir kirkjufélagið. Á hinn bóginn er meira en lítið gleðih'gt, að árangrinn af fjársöfnunar-erindi séra Jónasar hefir reynzt svo ágætr og að ómótmælanleg og áþreifanleg sönnun er nú komin fram fyrir því, að almenningr safnaða vorra og jafn- vel fólk af þjóðflokki vorum, sem fyrir utan stendr, hefir lifanda áhuga á skólamáli kirkjufélagsins og trúir á það sem brennanda framtíðar-spursmál Vestr-íslendinga. vr * % Bending síðasta kirkjuþings um það að halda missíónar- hátíð í sambandi við minningardag reformazíónarinnar (30. Okt.) hefir að meira eða minna leyti verið tekin til greina í prestaköllum séra Björns B. Jónssonar, séra Jónasar A. Sig- urðssonar, séra Friðriks J. Bergmanns og séra JónsBjarnasonar. Að hve miklu leyti það var gjört í prestakalli séra Björns sést í fréttagreininni frá honum í þessu blaði. I öllum söfnuðum sínum flutti séra Jónas sérstakt reformazíónar-erindi um sama leyti, og til missiónar var þar skotið saman 16 doUurum. Um samskotin í söfnuðum séra Friðriks vitum vér ekki með vissu. En einhverju var þar skotið saman. Itœöa sú, er flutt var í

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.