Sameiningin - 01.11.1898, Qupperneq 3
—131—
minningar um reformazíónina, oftast þó ekki seinasta daginn í
Október, nema því að eins, að hann beri upp á sunnudag, heldr
þann sunnudag, sem reformazíónardeginum er næstr annaðhvort
á undan eða eftir. Og samkvæmt bendingum, er komið hafa
fram á kirkjuþingunum, er það farið að tíðkast, að söfnuðirnir
við þær guðsþjónustur beri fram dálítið offr, sem menn þó heldr
vilja kalla „samskot", til handa missíónarsjóöi kirkjufólagsins.
Sá siðr á mjög vel við, því fyrir hann glœÖist hjá almenningi
safnaðanna meðvitundin um hina guðlegu köllun kirkjunnar til
þess samfara hinu andlega starfi heima fyrir í söfnuði hverjum
út af fyrir sig að vinna að útbreiðslu guðs ríkis á öðrum stöðum.
þegar lúterska kirkjan man eftir því, hvað mikið henni
hefir verið veitt af drottni, hvað mikið af andlegum auði liún á
í eigu sinni fram yfir allar aðrar kristnar kirkjudeildir—hreinna
guðs orð, meira af sönnu frelsi—, þá á henni ekki að geta
gleymzt, hvað mikið af henni er heimtaö að því, er snertir út-
breiðslu guðs ríkis, og missíónarskyldan þá einnig að vera henni
ljúf skylda. Vonanda, að fólk í söfnuðum vorum muni nú betr
eftir öllu þessu út af reformazíónar-guðsþjónustum þeim, er það
hefir tekið þátt í þetta síðastliðna haust.
Ur bindindisprédikan
eftir ritst. „Sam.“
[Alyktan kirkjuþingsins í fyrra um það, að prestar kirkju-
félagsins vekti í prédikunum sínum athygli á bindindismálinu
einn sérstakan sunnudag á árinu var á síðasta þingi endrtekin,
þó með þeirri breyting, að hætt var við að tiltaka daginn. En
jafnframt var mælzt til, að í ár væri dagrinn valinn fyrir þann
tíma, er atkvæðagreiðsla fœri fram um vínsölubannið hér í
Canada. Með tilliti til þessa flutti ritstjóri þessa blaös bindind-
isprédikan í Fyrstu lútersku kirkju { Winnipeg sunnudaginn 25.
Sept., fjórum dögum áðr en menn greiddu atkvæði um vínsölu-
banniö. Af því að vór vorum á móti því í sumar, að kirkju-
þingið fœri að skifta sér af því máli og þá einnig móti yfirlýs-
ingunni, sem þingið gjörði út af því, þá þótti oss réttast að láta
hér í blaðinu koma þann part af þessari bindindisprédikan, sem