Sameiningin - 01.11.1898, Page 9
—137—
lögmál er innst í mínu hjarta1þessi orS, sem Jesá eru hér
eignuð, standa í 40. Davíðs sálmi eins og líka frá er skýrt neðan-
máls. Sálmr þessi hefir að vísu. af sumum verið talinn meðal
hinna messíönsku sálma, er svo eru nefndir, en efni sálmsins í
heild sinni talar á móti þeirri ímyndan, og þó einkum þessi yfir-
lýsing í 12. versinu: „Minar syndir hópast í kring um mig, svo
eg get ekki séð út yfir. þær eru fleiri en hárin á mínu höfði;
og mitt hjarta hefir yfirgefið mig.“ — Á 84. bls. er vitnað til
þessara orða Krists í fjallrœðunni: „Skoðið akrsins liljugrös,
hvernig þau vaxa.“ Og er það gjört til skýringar því máli, að
að trúarlíf kristins manns sé sama vaxtarlögmáli háð eins og
lífið í náttúrunni. En þegar t'relsarinn kemr með þau fögru orð,
þá er. hann um allt annað að tala, nefnilega um það, hve dásam-
lega guð beri umhyggju fyrir hverjum smæsta og litilmótleg-
asta einstaklingi í náttúruríkinu, til þess að sannfœra mennina,
sina lærisveina, um það, hve óviðrkvæmilegt, heimskulegt og
syndsamlegt það sé fyrir þá, að lifa í áhyggjum út af sínum
iíkamsþörfum, hve heilög og sjálfsögð skylda það ætti að vera
fyrir þá að reiða sig á föðurforsjón hans að því, er snertir liið
jarðneska líf þeirra. — Hitt er auðvitað rétt og satt, sem bókin
tekr fram, að hið kristilega trúarlíf er háð vaxtarlögmálinu, en
það er villanda, að taka þessi orð Jesú, slitin út úr hinu rétta
sambandi þeirra í fjallrœðunni, því máli til sönnunar. — Svipað
kemr fyrir á bls. 91, þar sem tekið er fram, að lærisveinar Jesú
til forna hafi verið menn, sem sömu kjöruin hafi átt að sæta og
vér, og þessu til staðfestingar neðanmáls vitnað í Jakobs bréf 5,
17. því á þeim stað er postulinn að tala um allt annað, nefni-
lega um kraft og nauðsyn trúaðrar bœnar, og í því sambandi
minnt á Elías, sem hafi verið oss líkr að breyskleika, en hafi
þó verið bœnheyrðr af guði, þegar hann bað fyrst um það, að
ekki rigndi á jörðina, og síðan, hálfu fjórða ári síðar, að regn
fólli jörðinni til frjóvgunar.
En þrátt fyrir allt þetta er margt vel sagt í bókinni og lsstr
hennar getr vissulega orðið fólki til all-mikillar kristilegrar
uppbySgioga1--
Snemma í kaflanum um „þörf syndarans á K-risti“ stendr
þetta, sem vert er sérstaklega á að benda sem mjög mikilsverð-
an sannleik ;