Sameiningin - 01.11.1898, Síða 16
—144—
— Ramsey prestr í Minneapolis, sem í nafni General Councils kom
á kirkjuþing vort í sumar, ritaði laglega grein um þessa ferð sína hing-
að norðr í ,,Th.e Lutlieran'‘ skömmu síðar.
— Séra Jön J. Clemens, prestr Argyie-safnaðanna, fór missíönarferð
til Brandon í Ágúst. í kirkju Brandon-safnaðarins prédikaði kann tvis-
var sunnud. hinn 21. í þeim mánuði og skírðí þá tvö börn og tók 15
manns til altaris. — Fyrir atvik hefir dregizt að geta þessa í ,,Sam.“
þangað til nú.
— Um ferð Vilhjálms Þýzkalandskeisara til Jerúsalem hefir mikið
verið talað í síðustu tíð. Aðalerindi hans þangað var að vera viðstaddr
við vígslu hinnar miklu þýzk-lútersku kirkju þar í hinni helgu borg.
Vígslan fór fram 31. Okt., reformazíónardaginn. Hornsteinn musteris
þessa var lagðr sama dag árið 1893.
— Lutlier League Bandaríkjanna hélt þriðju almennu árssamkomu
sína í New York nálæ^t miðjum Oktöbermánuði. — Félagið er öðum að
fœra sig út og vinnr vist víða gott og gagnlegt verk fyrir kirkjuna. All-
margar raddir heyrast þó frá lúterskum mönnum, er telja þessa bandalags-
hreifing mjög varúðarverða. Jafnvel í General Council eru eigi all-fáir
á móti. Aðallega eru það Þjóðverjar, sem þannig líta á hreifinguna.
— í bandalagi 1. lút. kirkju í W.peg hefir það tíðkazt nú um nokkra
mánuði, að sögð hefir verið saga af meginatburðum í stjórnmálum stör-
veldanna, þeim er sýnilega hafa allsherjar heimsþýðing, jafnöðum og
þeir atburðir hafa verið að gjörast. Þetta hefir þó að eins verið gjört á
skemmtifundum bandalagsins. Hr. Magnús Pálsson hefir tekið þetta
hlutverk að sér bandalagsmönnum bæði eldri og yngri til mikillar ánœgju
og væntanlega til uppbyggingar.
— ,,The Lutheran11, aðalmálgagn General Council-manna, hefir ný-
lega komið með ritgjörð um Island eftir dr. Sculler, endrprentaða upp
úr „The United Presbyterian“. Þar er mjög hlýlega talað um Islend-
inga, og sumt vel sagt._ En ,all-öá_reiðanlegt er sumt. Þar segir t. a.
m., að nálega hver kirkja á Islandi hafi bökasafn til útláns. I fáum
löndum, stendr þar enn fremr, er eins auðvelt að lifa með lítilli vinnu
eins og á íslandi. Enn fremr, að biskupsdœmi Jóns Arasonar hafi verið
afnumið, þá er hann var líflátinn. Og loks þetta, sem öllu öðru er bros-
legra: „Það (ísland) er einasti blettrinn í prótestantiska heiminum öll-
um, þar sem allr landslýðrinn er í einum anda.“
,,KENNARINN“, mánaðarrit til notkunar við kristindómsfrœðslu barna í sunnu-
dagsskólum og heimahásum; kemr út í Minneota, Minn. Árgangrinn, 12 nr.,
kostar að eins 50 cts. Ritstjóri séra Björn B. Jónsson. Útg. S. Th. Westdal.
„ÍSAFOLD", lang-stœrsta blaðið á íslandi, kemr út tvisvar í viku allt árið; kostar
í Ameríku $1.50. Halldór S. Bardal, I81 King St„ Winnipeg, er útsölumaðr.
„VERÐI LJÓS !“—- hið kirkjulega mánaðarrit þeirra séra Jóns Ilelgasonar, séra
Sigurðar P. Sívertsens og Haralds Nielssonar í Reykjavík —• til sölu í bókaverzlan
Halldórs S. Bardals i Winnipeg og kostar 60 cts. ___________________________
„SAMEININGIN” kemr út mánaðarlega, 12 nr. á ári. Verð í Vestrheimi: $1.00
árg,; greiðisj fyrirfram.—Skrifstofa blaðsins: 704 Ross Ave., Winnipeg, Manitoba,
Canada,—Útgáfunefnd: Jón Bjarnason(ritstj.), Friðrik J. Bergmann, Jón A.Blöndal,
Björn B, Jónsson og Jónas A. Sigurðsson.
PKENTSMIDJA LÖGBERGS — WtNNIPEG.