Fréttablaðið - 24.12.2010, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 24.12.2010, Blaðsíða 34
30 24. desember 2010 FÖSTUDAGUR BAKÞANKAR Þórunnar Elísabetar Bogadóttur 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. gryfja, 6. í röð, 8. þróttur, 9. veitt eftirför, 11. kusk, 12. kúlu, 14. áburð- ur, 16. í röð, 17. útdeildi, 18. ennþá, 20. óreiða, 21. velta. LÓÐRÉTT 1. trappa, 3. guð, 4. útvegunar, 5. skordýr, 7. vonsvikinn, 10. traust, 13. háttur, 15. trauður, 16. húðpoki, 19. núna. LAUSN LÁRÉTT: 2. gröf, 6. rs, 8. afl, 9. elt, 11. ló, 12. perlu, 14. gúanó, 16. hi, 17. gaf, 18. enn, 20. rú, 21. snúa. LÓÐRÉTT: 1. þrep, 3. ra, 4. öflunar, 5. fló, 7. sleginn, 10. trú, 13. lag, 15. ófús, 16. hes, 19. nú. Af hverju ætti einhver að vilja sitja í stól og horfa á klósettpappír?! TÐOMMA!! Ég hataþig! Hæ mamma. Hvað segirðu pabbi? Kannski átta ég mig ekki á öllum tímanum sem ég er inni í herbergi. Það er rétt! Þetta er sonur okkar! Blaðrandi í tímum, skjótandi blautkúl- um, fer úr sætinu... Þetta er hræðleg umsögn Hannes! Já. En hins vegar, ef við horfum á allt það slæma sem ég gerði ekki... Góð tilraun. Það sem skapar jólin er hefðir. Þessu hef ég komist að á aðventunni. Auðvitað vissi ég þetta fyrir, en mér finnst sem fólk sé farið að halda fastar í hefðirnar en áður. Að minnsta kosti hafa margir talað meira um þær við mig á þessari aðventu. HEFÐIRNAR eru sem sagt sameiginleg- ar flestum sem halda jól. Það sem okkur finnst hátíðlegt, og gerir jólin að jólum, er það sem við höfum alist upp við eða tileinkað okkur. Það getur verið afskap- lega mismunandi eftir fólki. Það sem mér finnst mjög nauðsynlegt og hátíðlegt getur öðrum fundist algjör óþarfi. FRÁ því að ég man eftir mér hafa mín jól verið haldin á sama stað, utan eitt skipti. Alltaf hefur verið sami matur á boð- stólum og alltaf er hlustað á aftansöng- inn í Dómkirkjunni á Rás eitt. Að sama skapi koma jólin ekki til mín nema ég hafi hlustað á jólakveðjurnar á Þorláks- messu (enda vann ég við að taka á móti kveðjunum á síðunglingsárum), en það er eina Þorláksmessuhefð- in. Ég verð að fá heitt súkkulaði í hádeginu á jóladag og fara til ömmu minnar um kvöld- ið. Tilfinningin er sú að ef þetta gengur ekki allt eftir koma ekki jól. JÓLIN koma nú alltaf samt. Hversu vel eða illa þau eru undirbúin, hversu margar smákökusortir, jólakort eða gjafir eru til þá koma þau nú alltaf á sama degi og sama tíma. Og þótt það breytist aldrei breyt- ist ýmislegt annað með tímanum, og ekki vill maður verða algjörlega fastur í viðjum gamalla hefða. Nýjar hefðir eru líka allt- af að verða til, bæði þegar nýtt fólk kemur inn í fjölskylduna með sínar eigin hefðir og samfara því að fólk eldist. ÍSLENDINGAR eru sérlega góðir í því að halda jól og áramót, enda keppnisfólk upp til hópa. Þó að hefðirnar séu nú ólíkar er eitt sem mér finnst að allir eigi að tileinka sér á þessum árstíma. Eins væmið og það hljómar þá er það þakklæti. Ef einhvern tímann er tími til að vera væminn og þakk- látur er það líka á jólum og áramótum, sama hvort það mikilvægasta er hækkandi sól, fæðing frelsara, matur og gjafir eða samvera með fjölskyldunni. Við gleymum því nefnilega fjandi oft hvað við höfum það í raun og veru gott, svona í stóra samhengi hlutanna. AÐ endingu (með rödd Gerðar G. Bjarklind í höfðinu) sendi ég landsmönnum öllum, vinum og vandamönnum nær og fjær hug- heilar jólakveðjur með þökk fyrir samver- una á árinu sem er að líða. Gleðileg jól! Það koma alltaf jól Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.